Fréttatíminn - 14.01.2017, Page 38

Fréttatíminn - 14.01.2017, Page 38
Þ að kallast „grænþvottur“ þegar fyrirtæki beitir blekkingum í markaðs- eða kynningarstarfi sínu til þess að sýnast vera umhverfisvænna eða samfélags- lega ábyrgara en það raunverulega er. Íslensk fyrirtæki hafa undan- farið í auknum mæli tekið upp hugmyndafræði um samfélagsá- byrgð. Stundum vakna grunsemd- ir um að þetta eða hitt fyrirtækið sé eingöngu að fegra ímynd sína með orðalagi um samfélagsábyrgð, að fyrirtækið sé ekki að segja satt eða segi ekki alla söguna þegar það auglýsir umhverfisvænar vör- ur eða þjónustu sem það tengir við samfélagsábyrgð. Sú þarf þó ekki að vera raunin og því er nauðsyn- legt að fyrirtækin sýni heilindi og almenningur kanni málið áður en dómar eru felldir. Ábyrg upplýsingagjöf Margir eru á þeirri skoðun að betra sé að segja minna og fram- kvæma meira. Það er vissulega rétt að lítil ábyrgð felst í að standa ekki við yfirlýsingar, en það má heldur ekki draga svo úr upplýs- ingagjöf um starf fyrirtækisins að enginn viti hvernig það starfar og fólk freistist til að geta í eyðurnar. Raunin er sú að bæði viðskipta- vinir og starfsmenn vilja gjarnan vita af því ef fyrirtækið vinnur af ábyrgð gagnvart umhverfinu eða samfélaginu. Einhvers staðar þarf að byrja og þó svo endamarkinu hafi ekki verið náð, þá felst ábyrgð í því að gefa raunsanna mynd af þeim áhrifum sem fyrirtækið hefur á hverjum tíma á umhverf- ið og samfélagið. Hver sem hin raunsanna mynd er þá byggir fyr- irtækið upp traust við það að gefa upp rétta mynd af stöðu þess. Ekki bara glansmynd Fyrirtækjum, líkt og einstakling- um er annt um orðspor sitt og ímynd. Þau vilja að fólki líki við vörumerkið, tengi það við jákvæða eiginleika og treysti því. Stundum getur þó kynningarstarf fyrirtæk- isins einblínt of mikið á jákvæðu þættina í starfsemi þess að það verður ótrúverðugt. Fyrirtæki eru ekki fullkomin, frekar en mann- fólkið, og þess vegna viljum við frekar fá heiðarlegt svar við erfið- um eða óundirbúnum spurningum heldur en að fá falska glansmynd. Viðskiptavinir vilja að stjórnend- ur stýri fyrirtækjum skynsamlega, að þeir bregðist við á réttan hátt ef vandamál koma upp, að tillit sé tekið til hagsmunaaðila, enn frem- ur að reynt sé að lágmarka þann skaða sem þau valda og hámarka jákvæð áhrif sín á umhverfið og samfélagið. Hvað einkennir grænþvott Það getur reynst flókið að meta hvort fyrirtæki stundi grænþvott. Bandarískt rannsóknarfyrirtæki hefur sett fram lista yfir atriði sem bent gætu til grænþvotts. Þar má nefna hvort athyglinni sé beint frá aðalatriðinu, hvort sannanir fyrir staðhæfingum vanti, hvort rangar merkingar séu notaðar, hvort orðalag sé of loðið eða hvort hrein- lega sé verið að segja ósatt. Vistvænt varð grænþvottur Algengt dæmi um grænþvott er þegar fyrirtæki notast við merki sem ætlað er að auka traust neyt- anda á vörunum sem seldar eru. Sum merki eru notuð til að votta að vörur séu umhverfisvænar og þá eru einungis þeim leyft að nota merkið sem hafa fengið óháða aðila til að staðfesta að varan er umhverfisvæn. Ef ónógt eftirlit þriðja aðila er með merkinu þá er ekki hægt að treysta því að varan sé örugglega umhverfisvæn. Dæmi um slíkt er íslenska merkið Vist- væn landbúnaðarvara. Í upphafi voru það samtök framleiðend- anna sjálfra, búnaðarsambanda, sem sáu um gæðaeftirlit og vott- un, til að auka gæði í framleiðslu. Eftirlitið var hins vegar ekki nóg, svo reglugerðin var felld úr gildi, en framleiðendum áfram leyft að skreyta vörur sínar sem Vistvæn- ar. Við það var framleiðendum leyft að blekkja neytendur, eða grænþvo vörur sínar, má segja í boði yfirvalda. Ketill Berg Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Grænþvottur – þegar fyrirtæki beita blekkingum Nauðsynlegt að fyrirtæki sýni heilindi í markaðs- og kynningarstarfi sínu. V ísindamenn um allan heim eru sammála um að mengun af manna- völdum ógnar lífi á jörðinni. Sameinuðu þjóðirnar halda árlega loftslagsráð- stefnu þar sem reynt er að finna leiðir til að minnka mengun. Á loftslagsráðstefnunni sem haldin var í París árið 2015 (kölluð COP21) var gert sögulegt samkomulag ríkja heims um að draga úr meng- un gróðurhúsalofttegunda. Ísland var eitt þeirra ríkja og setti sér það markmið að minnka losun gróður- húsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030 (miðað við árið 2010). Á sama tíma voru fyrirtæki og borgir einnig hvött til að draga úr mengun. Loftslagsyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar Borgarstjórinn í Reykjavík stakk uppá því við Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð að saman skyldu þau hvetja fyrirtæki til að setja sér markmið um að minnka mengun. Úr varð að forsvarsfólk samtals 104 íslenskra fyrirtækja og stofnanna kom saman í Höfða og skrifaði und- ir sögulega loftslagsyfirlýsingu. Þar lofuðu fyrirtækin að • minnka losun gróðurhúsaloft- tegunda í starfsemi sinni, og • draga úr losun úrgangs. Jafnframt hétu fyrirtækin því að setja sér markmið, mæla niðurstöð- urnar og birta þær reglulega. Samgöngur algengasti mengunarvaldurinn Hjá flestum fyrirtækjum sem tóku þátt í Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar kom í ljós að samgöngur sem notast við jarðefna- eldsneyti eru stærsti mengunar- valdurinn. Minnka má mengun af samgöngum með orkuskiptum, t.d. með því að skipta bensínbílum út fyrir rafbíla. Stóriðjan mengar mjög mikið og allur orkufrekur iðnaður þar sem notast er við jarðefnaelds- neyti. Einnig kemur í ljós að fram- ræsing á votlendi með skurðum veldur mikilli losun koltvísýrings úr jarðveginum sem annars hefði verið bundinn þar með vatninu. Nýsköpun og verðmæti Þegar sorp er grafið óf lokkað í jörðu fer óþarfa landsvæði til spill- is, gróðurhúsalofttegundir mynd- ast, auk þess sem oft er verið að henda verðmætum afurðum eins og pappír, plasti og málmum sem hægt er að flokka og endurvinna á hagkvæman hátt. Með viðhorfs- breytingu og breyttum innkaupum geta fyrirtæki og heimili minnkað losun sorps og flokkað það svo að sem minnst hlutfall sorps verði urð- að. Með hugkvæmni og nýsköpun getur flokkað sorp orðið verðmætt hráefni í hágæða vörur. Dæmi um það eru aukaafurðir af fiski, sem áður var hent, en eru núna notað- ar til framleiðslu á eftirsóttum mat- vælum, heilsubótaefni, fatnaði og jafnvel sáraumbúðum. Mótvægisaðgerðir Á Íslandi, eins og víða annars stað- ar, er hægt að planta gróðri sem bindur koltvísýring í andrúmsloft- inu. Það virkar því sem mótvægis- aðgerð á móti mengun sem enn er ekki tæknilega mögulegt að losna við. Enn er t.d. ekki hægt að fljúga eða sigla milli landa nema með tækjum sem nota jarðefnaelds- neyti. Til að sporna við slíkri meng- un hafa fleiri og fleiri fyrirtæki og einstaklingar farið þá leið að sjá til þess að tré séu gróðursett, eða land grætt upp, í samræmi við þá losun sem ferðalagið veldur. Þannig má minnka kolefnisfótspor af rekstrin- um og jafnvel stefna að kolefnishlut- lausum rekstri. Ketill Berg Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Hreint loftslag Ísland eitt þeirra ríkja og setti sér það markmið að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030. Hjá flestum fyrirtækjum sem tóku þátt í Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar kom í ljós að samgöngur sem notast við jarðefnaeldsneyti eru stærsti mengunarvaldurinn. Mynd | Getty 10 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.