Fréttatíminn - 14.01.2017, Side 39
11 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
Samfélagsábyrgð OR
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
segir skýra samsvörun á milli samfélagsábyrgðar
og sjálfbærni reksturs fyrirtækisins.
Unnið í samstarfi við
Orkuveitu Reykjavíkur.
Þær þarfir sem eigendur Orkuveitu Reykjavíkur hafa falið fyrirtækinu að uppfylla eru tímalausar.
Vatn er undirstaða lífs og hreint
drykkjarvatn er nauðsynlegt
fyrir margra hluta sakir, á Ís-
landi verðum við að hita upp hí-
býli okkar og rafmagn knýr nán-
ast öll tæki sem við höfum tekið
í þjónustu okkar. Samskipti okk-
ar og tækjanna og þeirra á milli
reiða sig svo í síauknum mæli
á öflug fjarskiptakerfi. Rekstur
OR og dótturfyrirtækjanna –
Veitna, Orku náttúrunnar og
Gagnaveitu Reykjavíkur – þarf
því að standast tímans tönn,
vera sjálfbær.
Umhverfismálin eru
grundvallarmál
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR,
segir skýra samsvörun á milli
samfélagsábyrgðar og sjálf-
bærni rekstursins. „Hlutverk
okkar í samfélaginu er að sinna
grunnþörfum fólks. Ef við ger-
um það þannig að reksturinn
standist umhverfislega, fjár-
hagslega og samfélagslega
getum við talist samfélagslega
ábyrg,“ segir Bjarni. Hann legg-
ur sérstaka áherslu á umhverfis-
þáttinn. „Okkur hefur verið
falin umsjón með miklum nátt-
úrugæðum í formi vatnsbóla,
jarðhitasvæða og fallvatna, fyrir
nú utan plássið sem veitukerfin
taka í umhverfinu. Við leggjum
því mikla áherslu á að gera op-
inberlega grein fyrir áhrifum
okkar á umhverfið í árlegri Um-
hverfisskýrslu, sem er líklega
ein sú nákvæmasta sem gefin er
út hér á landi,“ segir Bjarni.
Hann segir að aðhald sam-
félagsins hafi miklu máli skipt,
til dæmis þegar ráðin voru
niðurlög brennisteinsvandans
sem fyrirtækið glímdi við. „Nú
eru það loftslagsmálin og við
hjá OR og dótturfyrirtækjunum
öllum höfum sett okkur metn-
aðarfull markmið um að draga
úr losun gróðurhúsalofts um
helming,“ segir Bjarni og segir
að framvindan verði birt opin-
berlega.
Fjárhagurinn
Það hefur vakið athygli að
undanfarin ár hefur OR birt ná-
kvæmar upplýsingar um fram-
vindu endurreisnar fyrirtæk-
isins. „Planið, sem við unnum
eftir á árunum 2011-2016, var
mjög gegnsætt verkefni,“ bend-
ir Bjarni á. „Heildarmarkmiðið
lá fyrir í upphafi og við gerðum
ítarlega grein fyrir framvindunni
ársfjórðungslega. Fólk sá að
það var talsvert fleira í Planinu
en bara að hækka gjaldskrá.
Það skipti miklu máli,“ segir
Bjarni, „því við hjá OR getum
ekki ákveðið einhliða hvað telj-
ist sanngjarnt að borga fyrir
þjónustu okkar; það hlýtur að
vera einhverskonar samkomu-
lagsatriði milli okkar og þess
fólks sem við þjónum. Ef við
viljum að fólk sýni því skilning
hvað kalda eða heita vatnið þarf
að kosta, þá þurfum við að hafa
bækurnar opnar,“ bætir hann
við.“
Í sátt við samfélagið
OR hefur valið þá leið að gefa
út samfélagsskýrslu sam-
kvæmt alþjóðlegum viðmiðum
GRI. Það var gert í fyrsta skipti
vegna ársins 2015 og verður aft-
ur gert nú í vor vegna nýliðins
árs. „Gegnsæi og aðgangur að
öllum þeim upplýsingum sem
við á annað borð megum veita
aðgang að er lykilatriði í mínum
huga í samfélagslegri ábyrgð
okkar,“ segir Bjarni.
„Við hjá OR fullyrðum ekki
að reksturinn sé samfélagslega
ábyrgur á hverjum tíma. Sam-
félagið verður að hafa skoðun á
því,“ segir hann og bætir við að
birting upplýsinga um rekstur-
inn sé því grundvallaratriði í
samfélagslegri ábyrgð. „Við
viljum að sem flestir myndi sér
skoðun á þeim umhverfisupp-
lýsingum, fjárhagsupplýsing-
um og samfélagsupplýsingum
sem við birtum og meti frá eigin
sjónarhorni hvort við stöndum
undir eðlilegum kröfum sem til
okkar eru gerðar,“ segir Bjarni
að lokum og bendir á að árleg
birting á upplýsingum um stöðu
rúmlega 100 sjálfbærnivísa sem
tilteknir eru í GRI-skapalóninu
séu viðleitni OR og dótturfyrir-
tækjanna til þess. Bjarni Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að
birting upplýsinga um rekstur fyrirtækisins
sé grundvallaratriði í samfélagslegri ábyrgð.
OR gefur út samfélagsskýrslu samkvæmt
alþjóðlegum viðmiðum GRI.
Unnið í samstarfi við
Andrými ráðgjöf
Andrými ráðgjöf var stofnað af dr. Snjólaugu Ólafsdóttur með það að markmiði að vinna að
bættri umhverfismenningu innan
fyrirtækja og stofnana og auka
umhverfisvitund starfsfólks.
Snjólaug, sem er umhverfisverk-
fræðingur, hóf að halda fyrir-
lestra í fyrirtækjum um hvernig
umhverfismálin birtast okkur í
daglegu lífi. „Ég fann hvað þetta
brann á fólki, það vildi gera rétt
en vissi ekki hvar átti að byrja.
Það var greinilega grundvöllur
fyrir því að draga úr umhverfis-
áhrifum fyrirtækja og vinnu-
staða almennt með því að tala
við starfsfólkið um þessi mál,“
segir Snjólaug. „Starfsfólkið sér
vinnustaðinn út frá mismunandi
sjónarhornum og þegar við fræð-
um og virkjum alla til að draga úr
sínum umhverfisáhrifum, eins og
hver og einn er fær um – fer allt
fyrirtækið saman í átt að settu
markmiði.“
Byrja á litlu skrefunum
Fólk er að verða meðvitaðra um
mikilvægi þess að ganga vel um
umhverfi og auðlindir, að mati
Snjólaugar. „Áherslan á um-
hverfismál og samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja er vaxandi og
því meiri þörf á því að fyrirtæki
og stofnanir sjái tækifæri sín til
að stíga skref í átt að bættum
Umhverfismálin
brenna á fólki
Andrými ráðgjöf aðstoðar fyrirtæki og stofnanir
við að framfylgja umhverfismarkmiðum og búa til umhverfisstefnu.
umhverfismálum. Oft þarf að
fara í gegnum ferla fyrirtækisins
og fá yfirsýn og enginn er betri í
að fara yfir ferlana en fólkið sem
vinnur eftir þeim!“
Fyrirtækin sem Snjólaug að-
stoðar eru komin mislangt í að
draga úr umhverfisáhrifum sín-
um, sum eru alveg á byrjunarreit
en önnur eru komin vel á veg
og þurfa aðeins handleiðslu og
fræðslu til að fylgja stefnunni
eftir. „Andrými ráðgjöf hefur til
dæmis aðstoðað fyrirtæki sem
eru að draga úr kolefnisspori
rekstursins við að framfylgja
markmiðum sem þau hafa sett
sér. Meðal annars með því að
kynna nýjar áherslur fyrir starfs-
fólki, mikilvægi þeirra og hvern-
ig nýtt vinnulag mun verða til
góðs fyrir umhverfi og samfélag.
Einnig hef ég aðstoðað vinnu-
staði við að setja sér umhverfis-
stefnu. Oft er einblínt um of á
stóru erfiðu hjallana sem ekki er
vitað hvernig á að komast yfir
en á meðan er ekki tekið eftir
þessu sem er nær og auðveldara
að byrja á. Ég ráðlegg öllum að
byrja á að taka litlu skrefin sem
auðvelda svo stóru breytingarn-
ar, setja sér bæði lítil og stór
en raunhæf markmið. Þetta er
hugarfarsbreyting, um leið og
við erum búin að fá fræðsluna og
ræða málin fáum við aðeins öðru-
vísi sjónarhorn á hlutina,“ segir
Snjólaug.
Fyrirtæki eru ólík
Þegar haft er samband við
Andrými ráðgjöf er fyrsta skrefið
að ræða saman um hver staðan
er og hvert fyrirtækið/stofnun-
in vill stefna. „Allir geta tekið
sitt næsta skref. Ég kem með þá
fræðslu sem viðeigandi er hverju
sinni og í framhaldinu eru settar
fram spurningar og umræður til
að skoða afstöðu starfsfólks-
ins. Þá kemur í ljós hvað starfs-
fólk er tilbúið til þess að gera og
hvar þeirra áherslur liggja. Það
skemmtilega er að það er engin
ein rétt leið eða hið fullkomna
næsta skref. Fyrirtæki eru ólík
og fólkið innan þeirra líka. Við
getum öll tekið okkar næsta
skref á eigin forsendum,“ segir
Snjólaug.
Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér málefnið betur og
þjónustu Andrýmis ráðgjafar er
bent á heimasíðu fyrirtækisins
www.andrymi.is.
Dr. Snjólaug Ólafsdóttir,
eigandi Andrýmis ráðgjafar.