Morgunblaðið - 31.12.2016, Side 23

Morgunblaðið - 31.12.2016, Side 23
að nú eru ungir Kúbverjar hvattir til að fjölga sér meira. Algengt er að hvert par eigi aðeins eitt barn en til þess að samfélagið sé sjálfbært þarf fleira fólk og meiri viðkomu,“ segir stoltur faðirinn. Björn væntir mæðgnanna til Ís- lands í heimsókn með vorinu. Í milli- tíðinni ráðgerir hann að fara eina ferð sjálfur til Kúbu. Flýgur þá fyrst til Toronto í Kanada og þaðan svo áfram suður á bóginn, en hinn mögu- leikinn er að fara í gegnum Evrópu og þvert yfir Atlantshafið. Flug milli Kúbu og Bandaríkjanna er nýlega hafið, en á því hafa verið hömlur hingað til vegna viðskiptabanns Bandaríkjanna á þetta nágranna- land sitt og hefur það varað í ára- tugi. Lítillega var slakað á þessum þvingunum á viðskiptum fyrr á þessu ári viðvíkjandi sambandi við innflutning á rommi og vindlum – auk þess sem bandarískt sendiráð var opnað í landinu. Ólíklegt er hins vegar að nýr forseti heimveldisins, Donald Trump, slaki mikið á klónni. Frekar er búist við skrefum í hina áttina miðað við ummæli hans að undanförnu. Ný kynslóð „Kúba stendur á tímamótum. Stjórnmálin þróast og með nýjum kynslóðum þar koma fram breyt- ingar. En í grunninn eru Kúbverjar nægjusamir, glaðir og lífið er ljúft undir suðrænni sól. Mér finnst fínt að fara til Kúbu og fá D-vítamín í kroppinn – og á margan hátt er þetta yndislega land orðið mitt ann- að heimili,“ segir Björn Halldórsson að síðustu. glaðir Handverk Jose Castelar Cairo á mörg met í því að vefja lengstu vindla í heimi. Sá lengsti var 90 metrar og er heimsmet samkvæmt Guinness. Drykkur Þjóninn blandar á Floridita, sem er er einn af gömlu börunum í Havana, þekktastur fyrir Diaquirí drykkina. Umferð Blæjubílar á Byltingartorginu. Vinsælt er meðal ferðamanna að koma þarna við og leigja sér blæjubíla í lystireisu um borgina. Kúba Eitt af listaverkunum sem finna má í í Havanaborg. FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.