Fréttablaðið - 11.03.2017, Blaðsíða 2
Mottudagurinn var í gær. Þá hvatti Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að láta ímyndunaraflið ráða för og skarta öllu mögulegu
tengdu karlmanninum, fatnaði, höfuðfötum, gerviskeggi og svo framvegis. Krakkarnir í Laugarnesskóla létu ekki sitt eftir liggja. Fréttablaðið/Eyþór
Veður
Sunnan 5-13, skýjað með köflum
norðanlands en dálitlar skúrir sunnan
til. Hiti 1 til 6 stig um morguninn en
víða í kringum frostmark síðdegis.
sjá síðu 44
Dublin
Páskaferð | 13. apríl | 4 nætur
Frábært verð frá: 69.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi á Camden Court með
morgunmat.
Verð án Vildarpunkta: 79.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
heilbrigðismál Heilbrigðisyfir-
völd hafa fækkað sjúkrarúmum
fyrir meðferð áfengis- og vímu-
efnasjúklinga úr 265 þegar mest
var í lok árs 1985 í 62 rúm í lok árs
2014. SÁÁ og geðdeild Landspítal-
ans hafa reynt að vega upp þessa
fækkun sjúkrarúma með dag-
deildarþjónustu, en viðbúnaður-
inn hefur engu að síður minnkað
stórum.
Kostnaður vegna vímuefna-
vandans hefur færst frá ríkinu
yfir á sveitarfélög, einstaklinga og
almannasamtök.
Þetta kemur fram í nýútgefnu
ársriti meðferðarsviðs SÁÁ 2016.
Ein af grunnniðurstöðum höfund-
arins, Þórarins Tyrfingssonar for-
stjóra Sjúkrahússins Vogs, er að ef
litið er til þess hversu margir grein-
ast áfengis- og vímuefnasjúkir, og
hversu alvarlegur og afdrifaríkur
sjúkdómurinn er, megi fullyrða að
sjúkdómurinn sé sá alvarlegasti
sem Íslendingar glíma við um
þessar mundir.
Þegar viðbúnaður heilbrigðis-
yfirvalda vegna sjúklingahópsins
er mældur í sjúkrarúmum, að fullu
greiddum af ríkinu, sést að þeim
hefur fækkað jafnt og þétt á rúm-
lega þriggja áratuga tímabili [heild-
arframlög til SÁÁ eru 850 milljónir
á fjárlögum]. Voru 265 árið 1984
þegar Íslendingar voru 151.000 á
aldursbilinu 15 til 64 ára en 62 árið
2015 þegar í aldurshópnum voru
217.500 manns.
Þórarinn segir að með aðgerðum
stjórnvalda hafi dregið verulega
úr meðferðarþjónustu og tiltekur
ártalið 2000 sérstaklega vegna þess
að „flest bendir til þess að umfang
og kostnaður vandans hafi á sama
tíma aukist“.
Hann telur það vafamál hvort
Íslendingar haldi sérstöðu sinni
hvað varðar áherslu á áfengis- og
vímuefnameðferð, ef litið er til
annarra þjóða og framtíðarinnar.
Áhyggjuefnið er mun minni þátt-
taka Landspítala og annarra með-
ferðarstofnana í áfengis- og vímu-
efnameðferðinni.
Þórarinn segir að SÁÁ hafi reynt
að halda úti óbreyttri þjónustu
á eigin kostnað sem nemur um
250 milljónum árlega. Það sé gert
með því að breyta ætluðum dag-
deildum af hálfu heilbrigðisráðu-
neytisins á Vík og Staðarfelli í inn-
lögn á sjúkrastofnun. Þannig hefur
sjúkrarúmum á Vogi verið fjölgað
úr 42 í 60.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Þórarinn að í fækkun sjúkrarúma
sem eru að fullu greidd af heil-
brigðisyfirvöldum, úr 265 í rúm-
lega 60, megi sjá eina birtingar-
mynd þeirrar gríðarlegu færslu
sem orðið hefur á umönnun frá
ríkinu til sveitarfélaga – og nefnir
fatlaða og aldraða.
„Þarna er ein tilfærslan til við-
bótar alveg sláandi, nú er þessu
fólki vísað á sveitarfélögin og það
er ekkert að ástæðulausu sem vex
svona kostnaður Reykjavíkurborg-
ar vegna þessa vanda í félagsþjón-
ustu og ýmsum búsetuúrræðum
sem þeir halda upp, svo dæmi sé
tekið,“ segir Þórarinn.
Aðspurður hvað liggi hér að baki
segir Þórarinn að málið sé hápóli-
tískt, og spurningum um úrræði sé
oftast mætt með fullkomnu tóm-
læti.
svavar@frettabladid.is
Tómlæti yfirvalda sést
í fækkun sjúkrarúma
Heilbrigðisyfirvöld
greiddu að fullu 265
sjúkrarúm fyrir áfengis-
og vímuefnasjúklinga
þegar best lét. Árið 2015
voru þau 62. Byrðinni
hefur verið ýtt til sveit-
arfélaga, einstaklinga og
almannasamtaka. Um-
fang vandans og kostn-
aður hefur snaraukist á
sama tíma.
Nú er þessu fólki
vísað á sveitar-
félögin og það er ekkert að
ástæðulausu sem vex svona
kostnaður Reykjavíkur-
borgar vegna þessa vanda í
félagsþjónustu og ýmsum
búsetuúrræðum sem þeir
halda uppi.
Þórarinn Tyrfingsson,
forstjóri Sjúkrahússins Vogs
Börnin mættu með mottur
Dómsmál Máli Husseins Aldoudi,
Karims Askari og Stofnunar múslima
á Íslandi gegn Salmann Tamimi, 365
miðlum, Kristínu Þorsteinsdóttur og
Nadine Guðrúnu Yaghi var vísað frá í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Stefnendur kröfðust þess að ýmis
ummæli sem birtust í frétt á Vísi
í fyrra með fyrirsögninni „Þarf að
bregðast við tengslum við hryðju-
verkasamtök“ yrðu dæmd dauð og
ómerk.
Þá kröfðust Hussein Aldoudi og
Karim Askari tveggja milljóna króna
í miskabætur, auk dráttarvaxta.
Í dómnum segir að málatilbúnaði
stefnenda sé svo áfátt að hann full-
nægi ekki skýrleikakröfum.
Þess ber að geta að 365 miðlar er
útgefandi Fréttablaðsins. Kristín Þor-
steinsdóttir er ritstjóri blaðsins og
Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á
fréttastofu 365 miðla. – þea
Ummæli í frétt
Vísis ekki dæmd
Viðskipti Nokkrar breytingar verða
á stjórn VÍS, en framboðsfrestur
rann út klukkan fjögur í gær.
Þau Gestur Breiðfjörð Gestsson,
Helga Hlín Hákonardóttir, Herdís
Dröfn Fjeldsted, Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir og Valdimar Svavars-
son. Sjálfkjörið er í stjórnina á aðal-
fundi á miðvikudaginn.
Úr stjórn ganga Jostein Sorvoll og
Reynir Finndal Grétarsson. – jhh
Breytingar á
stjórn VÍS
slys Erlendur ferðamaður lést þegar
hann var að snorkla í Silfru í gær.
Maðurinn var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar frá Þing-
völlum á Landspítalann. Hann var
úrskurðaður látinn skömmu eftir
komuna þangað.
Maðurinn mun, að sögn vitna,
hafa kallað eftir aðstoð vegna
andþyngsla og misst meðvitund
skömmu eftir að leiðsögumaður
kom honum til hjálpar. Rannsókn
málsins er í höndum lögreglunnar á
Suðurlandi sem segir að frekari upp-
lýsingar verði ekki gefnar fyrr en að
lokinni krufningu.
– jhh
Ferðamaður lést
við snorkl
Áin Silfra á þingvöllum.
Fréttablaðið/PjEtur
1 1 . m a r s 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
C
-9
A
2
0
1
C
6
C
-9
8
E
4
1
C
6
C
-9
7
A
8
1
C
6
C
-9
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K