Fréttablaðið - 11.03.2017, Blaðsíða 87
Þessi markaður fer ört stækk-andi með tilkomu aukins ferðamannafjölda, enda er
maður að jafnaði að heimsækja
nýja tilvonandi viðskiptavini í
hverri viku,“ segir Guðrún Berg-
mann en hún og Jón Berg Torfa-
son eru sölu- og þjónustufulltrúar
á fyrirtækjasviði Olís/Rekstrar-
lands.
„Við þjónustum veitingahús,
stærri og minni hótel og gisti-
heimili um allt land,“ segir Jón
Berg og bætir við að Olís/Rekstrar-
land sé með öflugt dreifikerfi um
allt land. „Viðskiptavinir okkar
þurfa því ekki að liggja sjálfir með
stóran lager þar sem við erum með
útibú og þjónustu í öllum helstu
þéttbýliskjörnum landsins sem
sjá viðskiptavinum fyrir ýmsum
rekstrarvörum auk ráðgjafar og
fjölþættrar þjónustu.“
Þjónusta, gæði og gott verð
Guðrún segir viðskipavini Olís/
Rekstrarlands helst kunna að meta
þekkingu en ekki síst þjónustu-
lund starfsfólksins. „Fólk gerir
miklar kröfur um góða þjónustu
og vill fá vörur afhentar fljótt og
vel. Við höfum kappkostað að
bjóða upp á bestu þjónustu sem
völ er á en leggjum einnig áherslu á
gæði og gott verð,“ segir hún.
Umboð fyrir Nilfisk og Gram
Í dag er Olís umboðsaðili fyrir Nil-
fisk og Gram atvinnutæki. Nilfisk
þekkja líklega flestir en Gram er
einn fremsti kæli- og frystitækja-
framleiðandi í heimi að sögn Jóns
Bergs. „Jón Berg þekkir mjög vel
til,“ segir Guðrún. „Ég hef staðgóða
þekkingu á markaðnum og veit
flest sem vita þarf um gólfþvotta-
vagna, moppukerfi, hótelvagna,
ryksugur, gólfþvottavélar og annan
búnað fyrir hótel og veitingastaði,“
segir Jón Berg glaðlega.
Gæðavörur frá heimsþekktum
birgjum
Olís/Rekstrarland er með góða
samninga við heimsþekkta birgja.
„Belgíska fyrirtækið Ascolia er
hótelvagnabirginn okkar en það er
með hágæða vagna og lausnir fyrir
þvottahús. Frá Vegware fáum við
mikið af einnota vörum sem fram-
leiddar eru úr lífrænum hráefnum
sem eru orðnar mjög vinsælar um
allan heim og svo er Vermop okkar
stærsti birgir í hótel- og gólfþvotta-
vögnum og moppukerfum,“ lýsir
Jón Berg.
Guðrún nefnir einnig hið rót-
gróna danska fyrirtæki Abena
sem starfar í 60 löndum víðsvegar
um heiminn. „Fyrirtækið er með
lausnir fyrir hótelherbergið, til
dæmis einnota línu af snyrti-
vörum sem koma í 20 ml eða 30
ml umbúðum og auk þess alla
aukahluti sem þarf inn á hótelher-
bergið, til dæmis inniskó, sloppa,
skóhorn, einnota poka, pappír,
hreinsiefni, servíettur, kerti og
margt margt fleira,“ segir Guðrún
og bætir við að hún sérpanti mikið
fyrir sína viðskiptavini. „Það er
mikið um að stærri viðskiptavinir
láti sérpanta og merkja servéttur,
kaffimál, inniskó og fleira með sínu
eigin lógói.“
Annar stór birgir sem Olís/
Rekstrarland á viðskipti við er
bandaríska fyrirtækið Kimberly
Clark sem á að baki yfir 130 ára
sögu og starfar í 175 löndum víðs-
vegar um heiminn. „Þaðan fáum
við hágæða pappír og hreinlætis-
vörur fyrir hótel og veitingastaði.
Kimberly Clark er þekkt fyrir
fallega hönnun og einfaldleika
þegar kemur að skömmturum,
hvort sem er í stáli eða plasti, fyrir
eldhús, salerni eða herbergin,“
lýsir Guðrún og bendir einnig á að
Olís þjónusti hótel og veitingastaði
með kósangas og arinkubba.
Að lokum nefnir Jón Berg
breska efnavöruframleiðandann
Evans. „Það er rótgróið fyrirtæki
sem er heimsþekkt fyrir hágæða
hreinsiefni sem eru mikið notuð
á hótelum og veitingastöðum um
allan heim,“ segir hann og bendir
einnig á að Olís/Rekstrarland geri
þrifaplön og hreinlætisáætlanir
fyrir viðskiptavini þeim að kostn-
aðarlausu.
Áhersla á umhverfisvottun
Þau Guðrún og Jón Berg segja Olís/
Rekstrarland leggja mikla áherslu
á vistvæna og umhverfisvottaða
vöru. „Ferðamenn eru afar með-
vitaðir um umhverfismál og gera
kröfu um að hótel og veitinga-
staðir séu það líka,“ segir Jón Berg
en í kjölfarið hafa fyrirtækin sóst í
æ meiri mæli eftir umhverfisvott-
uðum vörum en þar er ekki komið
að tómum kofanum hjá Olís/
Rekstrarlandi enda eru fyrirtækin
leiðandi þegar kemur að vottun
af öllu tagi. „Við erum með vörur
sem eru vottaðar með Norræna
Svaninum, Evrópublóminu, Bláa
englinum og Bláa kransinum en
allt eru þetta þekktar vottanir,“
segir Guðrún og segir fólk vel-
komið að vera í sambandi við sig
og Jón Berg.
Nánari upplýsingar má finna á
rekstrarland.is og olis.is.
Leggjum mikla
áherslu á vistvæna
og umhverfisvottaða
vöru.
Guðrún Bergmann og Jón Berg Torfason eru sölufulltrúar hjá Olís/Rekstrarlandi. Þau leggja metnað sinn í að þjónusta
viðskiptavini sína sem allra best. MyNd/STefÁN
Olís/Rekstrarland býður upp á rekstrarvörur af öllu tagi.
Úrval rekstrarvara fyrir hótel,
gistiheimili og veitingahús
Hótel og veitingahús eru
sístækkandi viðskiptahópur
hjá Rekstrarlandi,
dótturfyrirtæki Olís.
Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 108 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is
Rekstrarland er hluti af Olís
Magnaðar Nilfisk ryksugur
Nilfisk ryksugurnar fyrir hótel og veitingahús eru hljóðlátar, léttar í meðförum og búnar fjölda
aukahluta sem auðveldar alla vinnu. Hepa loftsíurnar tryggja betri loftgæði. Með Nilfisk er
auðveldara að þrífa og þær eru svo hljóðlátar að gestirnir verða varla varir við þær.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
71
23
5
KyNNINGARBLAÐ 17 L AU G A R dAG U R 1 1 . m a R s 2 0 1 7
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
C
-E
9
2
0
1
C
6
C
-E
7
E
4
1
C
6
C
-E
6
A
8
1
C
6
C
-E
5
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K