Fréttablaðið - 11.03.2017, Blaðsíða 24
Í Fossvogskirkjugarði stendur rússneska minnismerkið Von eftir Vladimir Surovtsev. Það er til minningar um sjómenn sem
fórust í ferðum skipalesta á Norður-
Íshafinu í heimsstyrjöldinni síðari.
Þar tók Gísli Jökull Gíslason rann-
sóknarlögreglumaður fyrst eftir
Maríu Alexandrovnu á vordögum
2014, nánar tiltekið á sigurdaginn
9. maí þegar Rússar minnast ár hvert
sigursins á fasistum og lokum Föður-
landsstríðsins mikla – átaka sem
stóðu yfir samfleytt í tæp fjögur ár og
höfðu áður en yfir lauk kostað meira
en 30 milljónir manna lífið.
Það sem leiddi Jökul og Maríu Alex-
androvnu saman var ævilangur nör-
dískur áhugi hans á heimsstyrjöld-
inni. Hann á módelheri og sviðsetur
ásamt vinum sínum valdar orrustur á
heimatilbúnum vígvöllum – og tekur
að sér að halda fyrirlestra um seinni
heimsstyrjöldina. Á einum slíkum
voru fulltrúar frá sendiráði Rússlands
í áheyrandahópnum – enda taka þeir
það alvarlega hvernig fjallað er um
þennan tíma í rússneskri sögu og ekki
síst Föðurlandsstríðið. Jökull segir að
eitthvað hljóti hann að hafa gert rétt
því um árabil hefur sendiráðið boðið
honum að taka þátt í 9. maí hátíðar-
höldunum, hvar þau María Alexand-
rovna kynntust.
Flames of War
„Í sendiráðinu hafði ég sett upp
Flames of War borð sem sýndi bar-
daga í litlu þorpi í gömlum austur-
evrópskum stíl. Kona kom til mín og
spurðist fyrir, en ekki var um ákveðið
þorp að ræða. Bardaginn hins vegar
var hugsaður sem hluti af stórsókn
Rússa sumarið 1944 í gegnum Hvíta-
Rússland. Stuttu síðar sneri konan til
baka með þær upplýsingar að þetta
stæðist ekki. Svona þorp hefði ekki
verið í Hvíta-Rússlandi, það hefði
verið Rússlandsmegin nálægt Smól-
ensk,“ segir Jökull sem ályktaði strax
sem svo að skilaboðin væru frá gömlu
konunni í kirkjugarðinum sem hafði
fangað athygli hans. Ekki síst fyrir
hvað hún bar sig vel, og orðurnar sem
hún bar á kápunni sinni.
„Ég dró þá ályktun að móðir kon-
unnar hlyti að vera gamla konan
með orðurnar. Ég spurði á móti
hvort mamma hennar hefði verið
þar. Já, hún hafði verið fjarskipta-
maður í Rauða hernum, þjálfuð til
að vera send með úrvalssveitum fall-
hlífarliða aftur fyrir víglínuna til að
njósna um óvininn. Í framhaldi var
ég kynntur fyrir Maríu. Hún gekk að
borðinu og benti mér á hermenn sem
ég hafði málað og sagðist hafa verið í
Tókst ekki að
Það gleymist fljótt að María er á tíræðisaldri. Hún sér ekki hvað er merkilegt við það að fyrrverandi hermaður í Rauða hernum verji ævikvöldinu í Breiðholti. FRéttaBlaðið/anton BRink
ReyndaR hefuR mig
alltaf langað til
að Reykja og Ég pRófaði
nokkRum sinnum. en í
hveRt einasta skipti
leið mÉR svo illa að Ég
hætti við.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
svona búningi en þetta voru einmitt
þeir hermenn í samfestingum sem til-
heyrðu úrvalssveitum og voru ólíkir
herbúningum almenna fótgöngu-
liðsins. Mér fannst stórkostlegt að fá
að hitta konu sem hafði lifað þessa
tíma,“ segir Jökull sem vinnur þessa
dagana að handriti bókar þar sem
hann fléttar saman ævisögu Maríu
Alexandrovnu og stríðið á austurvíg-
stöðvunum.
„Eftir að hafa fengið að taka nokkur
viðtöl við Maríu þá freistaðist ég til að
skrifa bók. María hélt ekki dagbækur
og best hefði verið að við hefðum
hist 20 árum fyrr, og ég samt vitað
það sem ég veit í dag. Það skiptir máli
að þekkja stóru söguna til að skilja
sögu Maríu betur því hún hefur lifað
á svo stórkostlegum umbrotatímum.
Meirihluti bókarinnar er um stóru
söguna, en svo er gaman að horfa á
sömu atburði út frá einni konu sem
upplifði þetta allt á eigin skinni,“ segir
Jökull.
Pavlova
María Alexandrovna býr í Breiðholt-
inu ásamt dóttur sinni Marínu, eigin-
manni hennar Júríj og syni þeirra
Denis. Heimili Maríu og fjölskyldu
hennar er látlaust. Þar er ekkert sem
minnir á þann tíma sem hún gegndi
herþjónustu – eða yfirhöfuð nokkuð
sem minnir á þá miklu örlagatíma
sem hún hefur lifað. En dúklagt stofu-
borðið svignar undan smákökum,
konfekti og heimabakaðri Pavlovu –
og maltöli – sem blaðamanni er boðið
ásamt tesopa.
Það gleymist fljótt að María Alex-
androvna er á tíræðisaldri – ekkert
bendir til þess í útliti hennar eða
fasi. Hún furðar sig hins vegar á veru
blaðamanns við stofuborðið hennar
– enda sér hún ekki hvað er merki-
legt við það að fyrrverandi hermaður
í Rauða her Sovétríkjanna verji ævi-
kvöldinu í Breiðholtinu.
Hún er ein átta systkina sem öll
komust á legg. Foreldrar hennar,
Alexander Ivanovich Palkovskiy og
Alexandra Semyonovna Palkovskaya,
voru frá Úkraínu og höfðu gifst 1913.
Faðir hennar barðist í rússneska
keisarahernum í fyrri heimsstyrjöld-
inni en gerðist síðar prestur. Hann
þjónaði ekki í rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunni heldur í evangelískum
lúterskum söfnuði, en nokkuð var um
slíka söfnuði mótmælenda í Rúss-
landi á þeim tíma. María Alexandr-
ovna minnist foreldra sinna með
hlýju. Segir þau hafa verið ástrík og
umhyggjusöm, þó að þau væru ströng
og fátæk.
Í útlegð
Það var ekki auðvelt hlutskipti að
vera prestur á þessum árum og Alex-
ander faðir Maríu var handtekinn
tvisvar af öryggislögreglunni fyrir að
vera með and-sovéskan áróður. Það
að vera prestur dugði til. Eftir síðari
handtökuna 1931 var hann sendur
í útlegð til Krasnovishersk við Úral-
fjöll þar sem voru stórar fangabúðir.
Fjölskyldan fylgdi honum þangað.
Forlögin stokkuðu spilin með þeim
hætti að María Alexandrovna og fjöl-
skyldan voru ekki lengi á einum stað –
þau fluttu til Andijan í Úsbekistan þar
sem hún fór í þriðja og fjórða bekk.
Andijan var enn sunnar og austar en
Krasnovihersk og var líka algengur
staður fyrir þá sem voru í útlegð.
Vegna veikinda bróður hennar flutti
fjölskyldan síðar til Múrmansk í
Norður-Rússlandi, hvar lífið var erf-
itt. Þau þurftu að fara varlega og halda
því leyndu að heimilisfaðirinn hefði
verið prestur.
Árið 1937 sótti öryggislögreglan
föður hennar á heimili þeirra í
deyja fyrir
föðurlandið
maría alexandrovna mitrofanova er 92 tveggja ára gömul, fædd
28. febrúar 1925 í borginni Smólensk í Rússlandi. Fyrir tvítugt lauk
hún þjálfun sem loftskeytamaður innan Rauða hersins – hers Sovét-
ríkjanna. Hún var send á vígstöðvarnar við Leníngrad í byrjun árs
1944 til að berjast við innrásarher Þjóðverja. Hún býr í Breiðholtinu.
↣
1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r24 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
C
-D
F
4
0
1
C
6
C
-D
E
0
4
1
C
6
C
-D
C
C
8
1
C
6
C
-D
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K