Fréttablaðið - 11.03.2017, Blaðsíða 6
Eftir fyrstu nóttina
Metsölulisti
Eymundsson
Ljóðabækur
1.3
. – 7.3
.2
0
171.
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk islóð 39
Samfélag Aðkeypt þjónusta, launa-
og starfsmannatengdur kostnaður
vegna dagskrár RÚV nam 2,6 millj-
örðum króna á síðasta ári. Annar
beinn kostnaður vegna dagskrár
nam 243 milljónum. Réttinda-
greiðslur vegna dagskrár námu
tæpum milljarði. Þetta kemur fram
í ársreikningi RÚV sem birtur var í
gær. Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 95 milljónum fyrir skatta sem
það mun ekki greiða skatta af
vegna uppsafnaðs taps.
RÚV hagnaðist um 1.429
milljónir króna eftir skatta í
fyrra en afkoman skýrist að
mestu af einskiptishagnaði
vegna sölu á byggingarrétti
á lóð við Efstaleiti 1 sem nam
1.535 milljónum króna. Eigin-
fjárhlutfall RÚV er nú 23,8
prósent en var 6,2 prósent
í lok árs 2015. Í tilkynn-
ingu RÚV til Kauphallar
Íslands kemur fram að
breytingar í rekstri hafi
skilað umtalsverðri hag-
ræðingu.
Tekjur af auglýsingum
námu 2,2 milljörðum en
í ársskýrslu fjölmiðlanefndarinnar
kemur fram að velta á innlendum
auglýsingamarkaði nemi um tíu
milljörðum króna. RÚV fær fjóra
milljarða ár hvert í formi útvarps-
gjalds. Það er 16.800 krónur í
ár og hækkaði um 400 krónur
á milli ára en það er lagt á alla
sem eru 16-70 ára. Í ræðu Ill-
uga Gunnarssonar, þáverandi
mennta- og menningarmála-
ráðherra, í fyrra kom fram
að engin ríkisútvörp á
Norðurlöndum væru
á auglýsingamarkaði.
Einkareknir fjöl-
miðlar hafa kallað
eftir því að RÚV dragi
sig út af auglýsinga-
markaði.
Heildarlaun sem RÚV greiddi
voru um tveir milljarðar og voru 258
heildarstöðugildi. Launatengd gjöld
voru 216 milljónir. Laun og þókn-
anir Magnúsar Geirs Þórðarsonar
útvarpsstjóra námu 17,2 milljónum
króna. Laun til æðstu stjórnenda
fyrir utan Magnús námu 119,6 millj-
ónum og stjórnarlaun námu 11,8
milljónum.
Í ársreikningnum kemur fram að
viðræður standi yfir milli RÚV og
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
um skilmálabreytingu á láni. Fyrir
liggur að RÚV mun þegar fram
líða stundir ekki geta staðið undir
greiðslum afborgana af láninu miðað
við óbreytt vaxtakjör og greiðsluskil-
mála. Samkomulag náðist um að
fresta afborgunarhluta greiðslu sem
var á gjalddaga 1. október í fyrra þar
til viðræðum lýkur.
benediktboas@365.is
Auglýsingatekjur RÚV
rúmir tveir milljarðar
Náttúra Sjálfboðaliðar á vegum
Vina Þórsmerkur munu halda áfram
í sumar við endurbætur og viðhald á
stígum í Þórsmörk. Sérstök áhersla
verður lögð á Valahnúk vestan-
verðan og Tindfjallahringinn. Einn-
ig verður unnið á svæðinu þar sem
Laugavegurinn kemur inn í Þórs-
mörk og á Fimmvörðuhálsleiðinni
upp úr Þórsmörk.
„Það er viðhald á stígum og við
erum að beina vatninu þannig að
það renni ekki eftir stígunum og
valdi jarðvegsrofi,“ útskýrir Hreinn
Óskarsson hjá Vinum Þórsmerkur,
en hann vinnur einnig hjá Skóg-
ræktinni sem haft hefur umsjá með
Þórsmörk síðan 1920. Þá er verið að
gera tröppur á hættulegustu stöðun-
um. „Það eru nokkur svæði þar sem
hefur þurft að gera alvöru tröppur
sem falla inn í landið og sjást varla,“
segir hann.
Hreinn segir að áfram verði haldið
að endurnýja stikur á öllum leiðum.
„Það verður númer hjá hverri stiku
og við tökum hnitin á hverri stiku
þannig að ef fólk lendir í vandræðum
hjá þessum stikum, hvort sem það
villist eða slasast, þá verður hægt að
láta björgunarsveitir vita númerið
á viðkomandi stiku,“ segir Hreinn.
Með þessu móti þurfi ekki að senda
út fjölmennt björgunarlið til að leita
þegar fólk lendir í vanda, heldur
nægi að senda smærri hópa.
Viðhald á svæðinu er meira og
minna unnið af sjálfboðaliðum og
er áætlað að í sumar verði hægt að
vinna 250 vinnuvikur. Þessi vinna
hefur verið í gangi í hartnær 30 ár en
aukinn kraftur var settur í hana eftir
Eyjafjallajökulsgosið, þegar ferða-
mönnum fór að fjölga verulega.
Á morgun, sunnudag, verður
háfjallakvöld í Eldborgarsal í tilefni
af 90 ára afmæli félagsins. Þar halda
tveir fremstu fjallgöngumenn okkar
tíma fyrirlestra. Gerlinde Kalten-
brunner, sem er fyrsta konan til að
ganga á 14 hæstu tinda heims án við-
bótarsúrefnis, og Peter Habeler, sem
varð ásamt félaga sínum fyrstur til
að ná á topp Everest án viðbótarsúr-
efnis. Aðgöngumiðinn kostar 1.000
krónur og rennur ágóði af honum
beint í verkefni Vina Þórsmerkur.
– jhh
Stefnt á að sjálfboðaliðar
vinni 250 vinnuvikur
BraSIlÍa Fyrrverandi forseti Brasilíu,
Lula da Silva, vill að Stefan Löfven,
forsætisráðherra Svíþjóðar, komi til
Brasilíu til að bera vitni um þátt hans
í sölunni á JAS-herflugvélum.
Frá því að Verkamannaflokkurinn
missti völdin í Brasilíu í fyrra þegar
Dilma Rousseff forseti neyddist til
að fara frá hafa Lula da Silva verið
birtar fjórar ákærur, að því er Dagens
Nyheter greinir frá. Hann er sakaður
um að hafa þegið þakíbúð að gjöf frá
byggingafyrirtæki, fengið viðgerð á
sumarbústað og að hafa skipulagt
greiðslur frá öðru byggingafyrirtæki
til hliðhollra stjórnmálamanna.
Ástæða þess að Lula da Silva er
einnig ákærður fyrir brot í sam-
bandi við útflutning Svía á JAS-her-
flugvélunum er sú að saksóknarar
fundu sem samsvarar 84 milljónum
íslenskra króna á reikningi yngsta
sonar hans sem var greiðsla frá ein-
staklingi sem dæmdur hafði verið
fyrir spillingu. Verjandi Lula da Silva
segir soninn hafa fengið féð annars
staðar frá.
Saksóknarar telja að Lula da Silva,
Dilma Rousseff og Stefan Löfven hafi
gengið frá sölu JAS-herflugvélanna
á hótelherbergi við útför Nelsons
Mandela í Suður-Afríku 2013. Löfven
var þá ekki orðinn forsætisráðherra
Svíþjóðar. Það er mat saksóknaranna
að Lula da Silva hafi nýtt sér stöðu
sína sem fyrrverandi forseti og tekið
við fé til að telja Rousseff á að kaupa
herflugvélarnar.
Verjandi da Silva, Cristiano Zanin,
segir að í tölvupósti sem saksóknarar
hafa undir höndum skrifi Löfven að
hann vilji hitta da Silva við útför
Mandela. Það sé enginn glæpur.
Fundur þeirra hafi verið á persónu-
legur en ekki viðskiptafundur.
Löfven kveðst ekki hafa setið á
hótelherbergi og fundað með for-
setunum fyrrverandi. Hann hafi ekki
fengið boð frá dómara um að koma
til Brasilíu og hann hyggst ekki fara
þangað. – ibs
Telja Svía hafa greitt mútur vegna sölu herflugvéla
Fyrrverandi forseti Brasilíu í stuði. NORDICPHOTOS/AFP
Þótt það rigndi í Stangarhálsi voru sjálfboðaliðar sáttir við vinnu.
Húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti í Reykjavík. FRéTTABlAðIð/GVA
Magnús Geir Þórðar-
son, útvarpsstjóri
Áfram verður unnið við
stikur á gönguleiðum. Það
mun auka öryggi göngu-
manna sem þar fara.
Samkvæmt ársreikningi
RÚV fyrir síðasta ár sem
kom út í gær kemur í ljós
að stofnunin borgaði
utanaðkomandi starfs-
mönnum um 2,6 millj-
arða króna í laun vegna
dagskrár. Þá er RÚV
stórtækt á auglýsinga-
markaðnum.
1 1 . m a r S 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
C
-C
1
A
0
1
C
6
C
-C
0
6
4
1
C
6
C
-B
F
2
8
1
C
6
C
-B
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K