Fréttablaðið - 11.03.2017, Blaðsíða 44
nesja og í Gestastofu Reykjaness
jarðvangsins í Duus Safnahúsum. „Í
Duus Safnahúsum eru átta sýn ingar
salir með fjölbreyttum sýningum
um sögu, listir og náttúru.“
Gestir geta kynnst sögunni frá
því fyrir landnám og til okkar tíma,
margvíslegum atvinnuháttum,
listum og náttúru. „Sjósókn og
vinnsla sjávaraflans er t.d. kynnt á
þremur söfnum í þremur ólíkum
bæjarfélögum; í Kvikunni í Grinda
vík, Byggðasafninu í Garði og Báta
safninu í Duus Safnahúsum.“
Bókasafn Reykjanesbæjar mun
bjóða upp á Sögugöngu um Bítla
bæinn Keflavík og sýning til heiðurs
Björgvini Halldórssyni verður í
Rokksafninu í Hljómahöllinni.
„Ekki má gleyma Slökkviliðsminja
safni Íslands í Safnamiðstöðinni
í Ramma og Pokemonsýningu
sem verður í Bókasafni Sandgerðis
auk þess sem boðið er upp á tvær
ljósmyndasýningar í Vogunum.
Einnig má nefna að nú um helgina
hefst Menningarvika Grindavíkur
þar sem boðið verður upp á fjölda
viðburða og sýninga, t.d. í Guð
bergsstofu, Jarðorkusýninguna í
Kvikunni og listsýningar á Bóka
safninu, Salthúsinu o.fl. stöðum.“
Sveitarfélögin fimm á Suður
nesjum hafa unnið sameiginlega
að undirbúningi dagskrárinnar en
verkefnið er stutt af Uppbyggingar
sjóði Suðurnesja. Dagskrána í heild
má finna á safnahelgi.is.
Boðið verður
upp á fjölbreytt
úrval safna á
Suðurnesjum
um helgina.
Valgerður Guð-
mundsdóttir er
menningarfull-
trúi Reykjanes-
bæjar.
Söfn á Suðurnesjum taka höndum saman um helgina og bjóða í níunda sinn upp á
sameiginlega dagskrá undir heitinu
Safnahelgi á Suðurnesjum. Ókeypis
er inn á öll söfnin í dag og á morgun
og um leið á þá dagskrá sem er í
boði á hverjum stað nema annað sé
tekið fram.
Að sögn Valgerðar Guðmunds
dóttur, menningarfulltrúa Reykja
nesbæjar, hefur markmiðið frá
upphafi verið að kynna fyrir
landsmönnum hin fjölbreyttu söfn
og sýningar sem sveitarfélögin á
Suðurnesjum bjóða upp á. „Segja
má að þetta sé liður í menningar
ferðaþjónustu svæðisins. Því er
upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis,
t.d. höfuðborgarinnar, að renna í
bíltúr hingað suður um helgina og
upplifa þau fjölmörgu skemmtilegu
söfn og sýningar sem verða í boði.“
Dagskráin er afar fjölbreytt að
sögn Valgerðar. Boðið er upp á bæði
nýjar og eldri sýningar á söfnunum,
tónleika, fyrirlestra og margs konar
fleiri uppákomur. „Söfn, safnvísar
og sýningar nálgast á annan tuginn
og fjölbreytni safnanna er í raun
einstök á ekki stærra svæði. Það eru
alltaf nýjar sýningar í söfnunum á
hverju ári og einnig koma ný söfn
og safnvísar við sögu. Listasafnið er
t.d. með mjög áhugaverða sýningu
núna og svo má nefna að í Garð
inum eru tvö ný einkasöfn til sýnis
þar sem áhugamenn eru að safna
alls kyns gripum.“
Eitthvað fyrir alla
Meðal þeirra sýninga og viðburða
sem verða í boði um helgina nefnir
Valgerður t.d. að náttúran verði
áberandi í Þekkingarsetri Suður
Sannkölluð safnaveisla
Árleg safnaveisla verður á
Suðurnesjum um helgina
en þar má finna óvenju
mikið úrval áhugaverðra og
skemmtilegra safna.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
FRÁBÆRT
VIÐSKIPTATÆKIFÆRI
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . m a r S 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
D
-0
B
B
0
1
C
6
D
-0
A
7
4
1
C
6
D
-0
9
3
8
1
C
6
D
-0
7
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K