Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 26

Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 26
Múrmansk. Ekkert spurðist til hans framar. Eftir fall Sovétríkjanna reyndi fjölskyldan að fá upplýsingar um afdrif hans – það litla sem fund- ist hefur bendir til að hann hafi verið tekinn af lífi fljótlega eftir handtök- una. Móðir hennar var þá hins vegar enn þá með sex börn á heimilinu og hafði nú nær enga leið til að sjá þeim farborða eftir fráfall fyrirvinnunnar. Til að létta á var ákveðið að María Alexandrovna skyldi fara til systur sinnar Dínu í Moskvu þar sem hún bjó til ársins 1940. Á sama tíma og hún kynntist æskuástinni sinni, en samband þeirra stóð í tvö ár. Þá breytti stríðið öllu. María, sem þá var 16 ára, var send til að vinna í verksmiðju. Hennar verkefni var að festa hausa á flugvélasprengjur – en hún vildi komast á vígstöðvarnar og taka þátt í að berjast gegn innrásar- hernum. Að vilja deyja Henni tókst að lokum að komast í herinn með því að framvísa föls- uðum skjölum sem hún þurfti til að láta líta út fyrir að henni hefði verið veitt lausn frá störfum í hergagna- verksmiðjunni – en vinna í slíkri verksmiðju útilokaði að fólk fengi inni í hernum. María Alexandrovna var loksins komin í herinn 17 ára gömul. Hún var send í skóla til að læra á sérstaka tegund talstöðvar. Hún var mjög spennt fyrir þessu verkefni. Henni var útvegaður samfestingur sem tilheyrði sérsveitum Sovétríkjanna. Hún fékk þjálfun á Mosin-Nagant-riffil og TT- 33-skammbyssu og allt stefndi í að hún fengi hún að þjóna móðurjörð- inni sem var hennar heitasta ósk. „Ég var alls ekki hrædd. Aldrei,“ segir María Alexandrovna spurð um þessa viðsjárverðu tíma. „Ég fékk þjálfun í herskóla þar sem við vorum búin undir að fara yfir víglínuna. Við vissum vel hvert við vorum að fara. Það var engin óvissa eða hræðsla, þannig séð. Ég ætlaði þrisvar að deyja fyrir föðurlandið, en mér bara tókst það ekki. En það var óskaplega mikil gleði þegar sigurinn kom,“ segir hún og vísar til þess að örlaganornirnar bjuggu svo um að hún fékk aldrei að fara í fremstu víglínu – þrátt fyrir að sækja það fast að fá tækifæri til þess og í þrígang hélt hún að ósk sín yrði uppfyllt. Hins vegar fylgdi hún með herdeild sinni í humátt á eftir hernum sem keyrði áfram víglínuna og kom á þeirri leið í fæðingarborg sína Smól- ensk, og varð vitni að hinni gífurlegu eyðileggingu sem þar var eftir átökin og hernámið. Á þeirri leið varð her- deild hennar fyrir loftárás Þjóðverja. Á þessum tíma var stórsókn Sovét- manna í fullum gangi og hún fylgdi á eftir framvarðasveitunum til Minsk. Henni fannst hlutverk sitt sem loft- skeytamanns hversdagslegt. Það dró aðeins úr vonbrigðum Maríu þegar hún sá Þjóðverjana sem höfðu verið teknir til fanga og gengu niðurlútir í fylkingum fram hjá sveitum Rauða hersins. „Við vorum ofsalega glöð þegar þjóðverjarnir höfðu verið sigraðir. En svo komu þessi vonbrigði og sára tilfinning yfir því að komast ekki almennilega í stríðið. Ég missti tvær vinkonur þar en komst sjálf af,“ segir María Alexandrovna en annar bræðra hennar, Pjotr, féll í stríðinu. Hann var 21 árs. Pjotr liggur í fjölda- gröf ásamt 6.000 hermönnum Rauða hersins nærri Sosnovskiy. Hinn bróð- ir hennar, Danííl, særðist svo alvar- lega að hann var leystur frá skyldum sínum sem hermaður. Hún bætir því jafnframt við að hún beri engan kala til Þjóðverja í dag, Ég ætlaði þrisvar að deyja fyrir föður- landið, en mÉr bara tókst það ekki. en það var óskaplega mikil gleði þegar sigurinn kom. ↣ ↣ Það er ekki bara matur og næringin sem hann inniheldur sem fær einstakling til að glóa, heldur er það líka það sem einstaklingurinn gerir til að fá andlega og sálarlega næringu eða fyllingu. Þegar Gló fór af stað fyrst snérist það vissulega um að framreiða góðan og hollan mat en forsendurnar voru ástríða og kærleikur. Nú árið 2017 eru komin um 10 ár frá því að Gló steig sín fyrstu skref á heilsufæðismarkaðnum og í ár setur Gló fókusinn á að fá fólk til að efla sig. Innra með okkur öllum býr eitthvað sem við öll verðum að finna á lífsleiðinni og rækta. Og það er okkar eigið gló. Skilaboðin hafa loksins skýrst Fyrstu teiknin um að eitthvað væri að fara að gerast voru að finna í strætóskýlum á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið. En að baki þessum skilaboðum liggur mikil og ígrunduð vinna. Hvernig er viðlíka skilaboðum komið á framfæri svo megi skilja þau og meðtaka? Auglýsingastofan Hvíta húsið á veg og vanda af þeirri auglýsingaherferð sem Gló er að fara af stað með. Það er engu líkara en allt hafi fallið Fókusinn er á gló á rétta staði sem hefur leitt til herferðar sem er sönn. Tilgangur hennar er af einlægni að fá fólk til að leita inn á við og finna það sem gefur lífi þeirra gildi, lætur hjörtu þeirra tikka eða vekur með þeim ómælda gleði. Tímamót og hugrekki Gló stóð á tímamótum bæði vegna stækkunar og fyrirhugaðar útrásar til Kaupmannahafnar þar sem staður mun opna fljótlega. Auglýsingastofan Hvíta húsið vann samkeppni meðal auglýsingastofa og herferðin Skapaðu þitt eigið gló er fulltrúi þess tóns sem Gló stendur fyrir. Það er óneitanlega ákveðið hugrekki fyrir matsölustað að tala af einlægni og hreinskilni og draga úr talanda auglýsingalands. En það er Gló: starfsfólkið sem vinnur þar, vörurnar sem eru valdar inn til sölu, gæði matarins, námskeiðin sem fyrirtækið stendur fyrir, allt þetta er gert af einlægni. Glóandi drottning Ekki er nóg að finna hugmynd heldur þarf hún að vera framkvæmanleg. Leit hófst að einstaklingum sem Veitingastaðurinn Gló afhjúpar sig Gógó Starr er sönn drottning sem glóir vildu taka þetta verkefni að sér og það var ekki verra að allir þeir bjuggu yfir sama hugrekki og glói og herferðin snérist um. Gógó Starr er dragdrottningin sem býr innra með Sigurði Heimi Guðjónssyni sem er yfirleitt kallaður Siggi. Hann flutti til Reykjavíkur að norðan eftir að hafa unnið í dragkeppni Íslands árið 2015. Hann er einn af stofnendum framkomu- hópsins Drag-súgur. Hópurinn hefur stækkað verulega frá stofnun og eru nú rúmlega 20 listamenn að koma reglulega fram. Hann hefur fundið sitt innra gló og er að rækta það. Þetta er fyrir alla þá sem rækta það sem þau elska í lífinu. Gefðu lífinu lit og finndu þitt gló. Kíktu á glo.is. Skapandi samstarf Ástríða og kraftur hefur einkennt alla vinnu við herferðina. Tónlist er í höndum Stop, Wait, Go og hinn ungi Ísak stígur sín fyrstu opinberlegu skref sem söngvari. Hið öfluga teymi Hard & Holy voru leikstjórar og skipulögðu tökur. Þetta var snarpt og tók einungis einn tökudag. Gleðin og samheldnin var lykilatriðið sem sá til þess að þetta gekk upp. Gló hefur nú verið að stíga fastar til jarðar og er nýja útlitið og tónninn í takti við það. Boðskapurinn er að hvetja fólk til að finna sitt gló, alveg sama af hvaða tegund það er. Ef það er leiklist, myndlist, eldamennska, hlaup, söngur eða stærðfræði, þá hvetur Gló einstaklinga til að umfaðma það og rækta. Skál fyrir alla Þrátt fyrir að Gló hafa starfað í nærri 10 ár hefur þessi boðskapur verið fljótandi með í öllu starfi fyrirtækisins og nú er hann dreginn fram. Gló er þannig fyrirtæki að það tekur vel á móti öllum einstaklingum og er ekki veitingahús eða matsölustaður einhvers einsleits hóps. Á Gló er að finna margar týpur ef svo mætti segja, bæði í starfsfólki og í viðskiptavinum. Allir eru velkomnir og þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref inn um dyr Gló þurfa ekki að óttast að reykelsisilmur eða áruhreinsun taki á móti þeim. Það þarf kjark að breyta um stefnu og ætla að sinna líkama sínum betur og veita honum aðeins góða næringu. Þeir sem hafa kannski mikið sóst í skyndibita vita ekki að Skálin er t.d. skyndibiti og tekur enga stund að útbúa. Sneisafull af þeirri hollustu sem þú kýst, bæði hægt að velja grænmetis eða með kjöti. Þú ræður hvað fer í Skálina og stjórnar alfarið samsetningunni. Þeir sem eru að feta sín fyrstu skref í Skálinni ættu ekki að óttast úrvalið. Starfsfólkið á Gló er reiðubúið til leiðsagnar um vinsælar samsetningar eða hvað þau mæla með. Gerðu líkamanum gott með því að fá þér Skál. Opna fyrir hæfileika Gæðin í matnum skila sér inn í minnstu frumur og leiða til þess að fólk fer ósjálfrátt að glóa. Þegar líkaminn er kominn á góðan stað næringarlega er auðveldara að snúa sér að ræktun þess sem býr innra með fólki. Með því að finna sína ástríðu, drifkraft og hæfileika vex einstaklingurinn og glóir innan frá. Það er eitthvað sem Gló vill handa öllum. Saklaus bón en svo áræðin fyrir samfélagið sem er ef til vill ekki tilbúið til þess að meðtaka boðskapinn. Þeir sem eru tilbúnir, það eru þeir sem koma á Gló og næra musterið svo það geti hýst einstaka sköpun. Án þess að vera of andleg þá er það ætlun Gló að hvetja alla til að hugsa vel um sig og vel til sín. Það að horfa í spegil og segja eitthvað neikvætt um sig eða líkamsímynd hefur margfeldisáhrif á sjálfsálitið. Fyrsta skrefið í átt að sköpun er sjálfselska. Sjálfselska á þann hátt að einstaklingurinn elskar sjálfan sig. Þannig nærðu að glóa. Þú getur fundið þitt eigið gló á svo marga vegu. Þú þarft bara að finna það. Þetta er fyrir alla þá sem rækta það sem þau elska í lífinu. Gefðu lífinu lit og finndu þitt gló. Við erum á glo.is og höfum góða sögu að segja. glo.is/mittglo Ljósmynd/Guðmundur Þór Dansað af innlifun Ljósmynd/Guðmundur Þór H VÍ TA H Ú S IÐ / S ÍA – 17 -0 72 7 1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 C -D A 5 0 1 C 6 C -D 9 1 4 1 C 6 C -D 7 D 8 1 C 6 C -D 6 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.