Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 98

Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 98
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Magnúsdóttir Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu síðastliðinn miðvikudag. Útförin fer fram föstudaginn 17. mars kl. 13.00 frá Seltjarnarneskirkju. Eva María Gunnarsdóttir Pétur M. Hanna Þórbjörg Harðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jóhannes Tryggvason Dengsi, Aðallandi 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 4. mars. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. mars klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á 1908 – Framtíðarsjóð Víkings (kt. 700269-0789, reikn.nr. 0133-15-381908). Margrét Kristinsdóttir Sveinbjörn Jóhannesson Linda Mjöll Gunnarsdóttir Ína Rós Jóhannesdóttir Davíð Kristjón Jónsson Karólína Jóhannesdóttir Stefan Weber Kristín Dagmar Jóhannesd. Magnús Árni Skúlason Hlynur Smári, Einir Ingi, Jóhannes Logi, Sóldögg Móna, Karítas Kristbjörg, Baldur, Margrét Lóa og Anton Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýju, vegna andláts og útfarar Þórhildar S. Þorgrímsdóttur Bóndhól. Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir fagmennsku í starfi, frábæra umönnun, þolinmæði, virðingu og hlýju. Fyrir hönd aðstandenda, Kristbjörn Jónsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, Linda Dröfn Pétursdóttir sjúkraliði, Skógarflöt 24, Akranesi, sem lést af slysförum 21. febrúar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 14. mars klukkan 13.00. Þröstur Vilhjálmsson Vilhjálmur Þrastarson Birgitta Dröfn Þrastardóttir Marvin Þrastarson Birgir Viktor Kristinsson og Aron Benedikt Birgittuson Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta Lögfræðiþjónusta Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Vinir hennar og ættingjar kalla hana Níní en þjóðin þekkir hana sem Þuríði Pálsdóttur söngkonu. Nú er hún orðin níræð. Þur- íður býr á hjúkrunarheimilinu Sól- túni, þar situr hún teinrétt og glæsileg, heldur sínum persónuleika og heilsar með rödd söngdívunnar. „Ég hef nú ekki getað sungið lengi en það gerir ekkert til, röddin mín hefur bara gott af því að hvíla sig,“ segir hún. Kveðst hafa lent í ýmsum hremmingum í sambandi við heilsuna, eitt af því hafi verið að detta niður 18 tröppur vegna jafnvægisleysis sem staf- aði af æxli í höfði. Hún lætur vel af vistinni í Sóltúni og starfsfólkið þar fær 10+ í einkunn hjá henni. Í herberginu gefur að líta falleg málverk eftir hana, enda kveðst hún hafa farið í Handíðaskólann sextán ára. „Ég vildi ekki fara í menntaskóla, það voru listir sem heilluðu mig og ég var dálítið lunkin að teikna.“ Fallegt útsýni er út í garð. „Það er gaman að fylgjast með fuglunum en ég get ekki haft opinn glugga því þá koma kettirnir inn,“ segir hún. Það rifjar upp kynni hennar og Guðrúnar Á. Símonar söngkonu sem var frægur kattavinur. Saman tóku þær Kattadúettinn á eftir- minnilegan hátt og báðar auðguðu líf Íslendinga með söng sínum. Eftirlætishlutverk Þuríðar eru nokkur. „Það sem ég held að ég hafi sungið best var í Il Trovatore í hljómsveitarútsetn- ingu. Gilda í Rigoletto er eitt af mínum uppáhaldshlutverkum og mér þótti afskaplega gaman að syngja Rosínu í Rakaranum í Sevilla. Ég söng líka í Miðl- inum eftir Menotti í Iðnó árið 1952. Þá var Guðmunda Elíasdóttir í hlutverki svikamiðilsins en ég dóttur hennar sem svaraði að handan og hló meðal annars eins og tveggja ára barn.“ Þuríður fæddist og ólst upp í Reykja- vík. Hún er dóttir Páls Ísólfssonar, tón- skálds og dómorganista, og Kristínar Norðmann. „Ég átti afskaplega góða for- eldra og verð eilíflega þakklát fyrir það. Pabbi var ljúfur og skemmtilegur og mamma ákveðin og dugleg. En ég fékk ekkert af þessum góðu hlutum í arf. Erfði bara taugaveiklunina frá pabba!“ Hún viðurkennir nú samt að hafa hlotið tón- listargáfu úr báðum áttum. Jórunn Viðar tónskáld sé til dæmis dóttir Katrínar móðursystur hennar og þær hafi unnið mikið saman. Þuríður var yngst og eina stelpan í hópi þriggja alsystkina. „Bræður mínir, Einar og Jón, dóu báðir úr krabbameini með stuttu millibili þegar þeir voru um sjötugt. Það er í ættinni. Ég var bara 17 ára þegar mamma dó, það var erfitt. En ég var þá að byrja að hitta manninn sem ég svo giftist, hann hét Örn Guðmunds- son, laglegur maður og flinkur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur.“ Hún bendir á innrammaðar myndir af honum og öllum þeirra afkomendum, meðal ann- ars börnum þeirra, Kristínu, Guðmundi Páli og Laufeyju sem hún hrósar fyrir að vera vinnufús og vel verki farin og telur þau hafa það frá föður sínum. „En ég var ágæt matreiðslukona og þótti gaman að elda, sem orsakar það að mér þykir eng- inn matur góður nema ég hafi búið hann til sjálf. Ef ég fæ soðinn fisk get ég ekki borðað hann því hann er ekki soðinn eins og ég hefði gert!“ gun@frettabladid.is Röddin mín hefur bara gott af því að hvíla sig Þuríður Pálsdóttir óperusöngkona fagnar níræðisafmæli í dag með bros á vör. Hún hefur sett sterkan svip á tónlistarsögu Íslendinga með söng, kennslu og kórastarfi. „Ég vildi ekki fara í menntaskóla, það voru listir sem heilluðu mig,“ segir Þuríður. FrÉttablaðið/anton brink En ég var ágæt mat- reiðslukona og þótti gaman að elda, sem orsakar það að mér þykir enginn matur góður nema ég hafi búið hann til sjálf. 1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r38 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð tímamót 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 C -D A 5 0 1 C 6 C -D 9 1 4 1 C 6 C -D 7 D 8 1 C 6 C -D 6 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.