Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 22.–25. janúar 201614 Fréttir
Þjófnaður úr verslunum
eykst mikið milli ára
n 28,6% aukning milli 2014 og 2015 n Starfsfólki hótað ofbeldi
Á
rið 2015 bárust daglega þrjár
tilkynningar um búðar-
hnupl til lögreglu. Tölurnar
koma lögfræðingi Samtaka
verslunar og þjónustu ekki
á óvart og að hans mati er áhyggju-
efni hvernig farið er með brotin hjá
lögreglu og dómstólum. Flestum
málum er vísað frá eða þau óbætt.
Brotin eru skipulagðari en áður og
koma innlendir jafnt sem erlend-
ir aðilar við sögu. Dæmi er um að
starfsfólki, sem stendur bíræfna
þjófa að verki, sé hótað ofbeldi.
28,6% aukning milli ára
Gríðarlega aukning var á tilkynn-
ingum til lögreglu um búðarhnupl
milli áranna 2014 og 2015. Árið
2014 bárust lögreglu 841 tilkynn-
ing um hnupl en til nóvemberloka
árið 2015 höfðu lögreglu borist
1.001 tilkynning. Ekki var búið að
taka saman tölur fyrir desember
2015 en ef miðað er við að tilkynn-
ingar þann mánuðinn séu á pari við
desember 2014, þegar 81 tilkynning
barst lögreglu, þá hafa í heildina
1.081 tilvik um búðarhnupl verið
tilkynnt til lögreglu árið 2015. Það
er aukning um 28,6% milli ára .
Sex milljarða tjón á ári
„Þessar tölur koma mér ekki á
óvart,“ segir Lárus Ólafsson, lög-
fræðingur hjá Samtökum verslunar
og þjónustu. „Þetta er margþætt
vandamál. Þessi aukning brota er
áhyggjuefni en það er ekki síður
slæmt hvernig farið er með brotin
hjá lögreglu og í dómskerfinu. Þessi
mál eru ekki ofarlega á baugi þar,“
segir Lárus. Hann segir að mörg-
um málum sé einfaldlega vísað frá
en þegar mál á annað borð koma
fyrir dóm þá geri stífar formkröfur
dómstóla það að verkum að bóta-
kröfum fyrirtækja sé yfirleitt vísað
frá, jafnvel þó að fyrir liggi játning
í málunum. Verslunareigendur sitji
því uppi með tjónið, sem er áætlað
yfir 6 milljarðar króna á ári. „Versl-
anir eru hvattar til þess að kæra
en það segir sig sjálft að kerfið er
frekar máttlaust ef málunum er í
flestum tilvikum vísað frá,“ segir
Lárus.
Ítrekað sömu kennitölurnar
Að sögn Lárusar er farið að bera
á því að þjófnaðurinn sé þaul-
skipulagður og koma bæði inn-
lendir og erlendir aðilar við sögu.
„Okkar fólk er ítrekað að sjá sama
fólkið og er farið að þekkja sumar
kennitölur vel. Þessir einstaklingar
virðast ekki veigra sér við að snúa
aftur á vettvang glæpsins þrátt
fyrir að búið sé að kæra þá til lög-
reglu fyrir þjófnað í sömu verslun,“
segir Lárus. Þá segir hann aukna
hörku hafa færst í brotin og starfs-
fólk, sem stendur þjófa að verki,
fær í síauknum mæli hótanir um
líkamsmeiðingar.
Til marks um umfangið og að-
komu erlendra aðila má nefna mál
frá síðasta ári þegar upp komst
um þjófagengi frá Hvíta-Rúss-
landi. Meðlimir hópsins sóttu um
hæli hérlendis og fengu úthlutað
húsnæði á meðan mál þeirra yrði
tekið fyrir. Hælisumsóknirnar
voru eingöngu yfirvarp en raun-
verulegt markmið hópsins var að
hnupla úr búðum hérlendis og
senda vörurnar í pósti til Hvíta-
Rússlands þar sem góssið var selt
á þarlendri vefverslun. Við húsleit
lögreglu fannst þýfi að verðmæti
tveggja milljóna króna. n
„Ítrekað
sömu
kennitölurnar
Lárus M.K. Ólafsson
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Vefuppboð
Opið virka daga 10 - 18,
Laugardaga 11 - 16,
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B.
Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs
Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal
og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Erum að taka á móti verkum
á næsta listmunauppboð
Við leitum að
listavErkum
Vefuppboð nr. 208 - myndlist.
Stendur til 3. febrúar
Rjúpuungi Guðmundur Einarsson frá Miðdal
Blómavasi. Rosentahl -
Björn Wiinblad
Flora Danica – saltkar
Royal Copenhagen
Lýðveldið Ísland,
17. júní 1944
– 1969 Bavaria
Waldershof -
Þýskaland
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
3mm gúmmídúkur fínrifflaður
1.990pr.lm.
Gúmmímottur margar
gerðir og stærðir,
verðdæmi 66x99cm
2.190
25%
Útsölu afsláttur
af gúmmí-
takka- og gata-
mottum
1.643
1.492Gúmmí takkamottur
61x81cm 3.590 2.693
81x100cm 5.990 4.493
91x183cm 8.990 6.743 Gúmmí gatamottur
66x99cm 2.190 1.643
100x100cm 3.390 2.543
100x150cm 6.990 5.423
PVC motta
100x150cm 5.590 4.193