Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Síða 22
22 Fréttir Helgarblað 22.–25. janúar 2016 PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET... ÚTSALA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Revestimiento Ace Negro 33,3x100 cm Ace Blanco 33,3x100 cm Pavimento Crystal Floor White 33,3x33,3 cm Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm Verðdæmi: Harðparket eikarplanki 8mm kr. 1990.- m2 Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3990.- m2 Teppi og dúkar 25-70% afsláttur WC innb. kassi/skál/seta kr. 39.700 Þúsundir fermetra af flísum með 20%-70% afslætti ir Þór Jónasson og Carsten Staffelde, sem síðar um kvöldið veittu Óla lífs- hættulega áverka. Til ryskinga kom fyrir utan veitingastaðinn en klæði voru borin á vopnin og allt virtist vera fallið í ljúfa löð. Óli stóð með vini sínum í nokkurri fjarlægð frá skipinu og áhöfnin var komin um borð þegar Reynir og Carsten snúa aftur í land til þess að jafna um Ólaf. „Ekkert sem Óli gerði áður réttlætir árásina sem hann varð fyrir. Hann var farinn og á leiðinni heim þegar þeir snúa til baka og ráð- ast á hann,“ segir Guðbjörg ómyrk í máli. Árásin var hrottaleg en hluti hennar náðist á öryggismyndavél sem var staðsett í nágrenninu. „Hann er rotaður á þessum tímapunkti“ Byrjun slagsmálanna náðust ekki á mynd en þegar upptakan hefst má sjá Óla reyna að verjast ofureflinu. Carsten veitir honum þá þungt högg með þeim afleiðingum að Óli fell- ur aftur fyrir sig og skellur með höf- uðið í götuna án þess að bera fyr- ir sig hendur eða reyna að draga úr fallinu á annan hátt. „Hann er rotað- ur á þessum tímapunkti, hann liggur hreyfingarlaus með hendurnar út frá líkamanum,“ segir Guðbjörg. Í mynd- bandsupptökunni sést hvernig Reyn- ir krýpur yfir hreyfingarlausan lík- ama Óla og veitir honum tvö högg í andlitið með krepptum hnefa. Aðr- ir áhafnarmeðlimir koma þá aðvíf- andi og árásarmennirnir ganga með þeim til skips. Á leiðinni sjást þeir slá saman öxlum og klappa hvor öðrum á bakið. Höfuðkúpubrot og mar á heila Áverkar Óla voru gríðarlega alvar- legir og í raun og veru er kraftaverk að hann hafi lifað. Hann höfuðkúpu- brotnaði, fékk mar á heila í neðanverðu heilahveli með bólgu og aukinn bjúg og blæðingar hægra megin í heila. Að sögn Guðbjargar er um að ræða svipuð meiðsli og kappaksturskappinn Michael Schumacher varð fyrir eftir skíðaslys fyrir rúmum tveimur árum. Schumacher lifði slysið af en fregn- ir herma að hann sé bundinn við hjólastól, sé mállaus og hafi takmark- að minni. „Fyrir tilviljun voru tveir læknar staddir í Grundarfirði þessa nótt. Óli var fluttur á heilsugæsluna í Grundarfirði og þar gátu læknarn- ir hlúð að honum og undirbúið hann fyrir aðgerð,“ segir Guðbjörg og er auðsýnilega þakklát fyrir það þrek- virki sem unnið var. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang og flutti Óla á Landspítalann þar sem hann var strax tekinn í að- gerð. Þrýstingur inni í höfuðkúpu Óla var lífshættulegur. Af þeim sökum varð að fjarlæga höfuðkúpubein til þess að draga úr þrýstingi á heilann. „Aðgerðin sem hann undirgekkst er kölluð Schumacher-aðgerðin. Hún er víst umdeild en öllu máli skiptir hversu fljótlega eftir áverkana hún er framkvæmd. Óli var heppinn hversu fljótt hann komst undir hnífinn,“ seg- ir Guðbjörg. Eðlilegt líf útilokað Fjölskyldu Óla var tilkynnt um at- burðinn snemma um morguninn og eldri bróðir hans var fyrstur upp á spítala. „Það héldu í raun allir að hann myndi ekki hafa þetta af, að komið væri að kveðjustund,“ segir Guðbjörg. Hún segir að fjölskylda Óla hafa verið í áfalli vegna árásarinn- ar og sárin muni eflaust aldrei gróa. Aðgerðin heppnaðist vonum framar og Óli tórði á einhvern undraverðan hátt. Enginn gat hins vegar sagt til um hvert fram- haldið yrði. Við út- skrift af gjörgæslu eft- ir þrettán daga dvöl var Óli lamaður á vinstri hlið en gat fylgt fyrirmælum og svarað einföld- um já- og nei-spurningum. Sérfræðingar telja útilokað að hann geti lifað eðlilegu lífi héðan af og að hann hafi í raun þegar náð þeim bata sem vænta megi. Guð- björg vill ekki heyra á það minnst. „Ég hef unnið lengi með fötluðu fólki og ég lít ekki svo á að Óli minn sé fatlaður. Hann hefur tekið mun meiri framförum en nokkur þorði að vona og ég er viss um að honum getur farið enn meira fram. Hann er góður, hress og kemur mér til að hlæja,“ segir Guðbjörg og bætir við: „En hann gerir mig stundum líka alveg brjálaða,“ og Óli tekur bakföll af hlátri við þau orð. Hún ætlar að standa með sínum manni og saman eru þeim allir vegir færir. Mundi eftir álfunum Óli hlustar hljóður á þegar Guðbjörg stiklar á stóru varðandi atburða- rásina enda hefur hann ekki margt til málanna að leggja. Hann missti nánast allt skammtíma- og langtíma- minni í kjölfar árásarinnar og hef- ur því aðeins frásagnir annarra af atburðunum við að styðjast. Hann man fyrst eftir sér í endurhæfingu á Grensási og minningarnar um fyrra líf eru sárafáar og flestar byggðar á frásögn annarra. „Ég man eftir vini mínum, sem ég lék mér við þegar ég var lítill, og álfunum,“ segir Óli og brosir. Guðbjörg útskýrir að á æsku- árum þeirra hafi meintur álfasteinn verið fjarlægður úr hverfinu vegna framkvæmda og sú minning hef- ur greinilega fest sig kirfilega í huga hans. Guðbjörg bendir á að hann hafi nýlega munað eftir íþróttaafrekum bróður síns á unga aldri. Minningarn- ar skjóta endrum og eins upp kollin- um þegar síst skyldi. Engin úrræði til staðar Endurhæfing Óla gekk að mörgu leyti vel en þökk sé hörku og þrautseigju fór hann að geta gengið og gat tjáð sig betur. Framfarirnar höfðu ekki fyrr látið á sér kræla en hann strauk úr endurhæfingunni. „Ég strauk til mömmu,“ segir Óli og hlær. Minn- islausum tókst honum að rata frá Grensásvegi og á heimili móður sinn- ar í Breiðholti. „Okkur þótti það með ólíkindum en það hefur verið grafið í undirmeðvitund hans,“ segir Guð- björg og brosir til Óla. Þau hlæja bæði. Óli útskrifaðist af Grenásdeild Landspítalans í byrjun árs 2015, tæp- um sex mánuðum eftir árásina, og Guðbjörg segir endurhæfinguna hafa verið alltof stutta. „Það virðist hafa verið nóg að koma honum á lapp- ir en síðan eru engin úrræði til stað- ar. Hann er ekki nógu heilaskaðaður til þess að fá áframhaldandi endur- hæfingu en er með of mikinn skaða til þess að önnur úrræði séu talin gagn- ast honum. Óli er því á einhverju gráu svæði í kerfinu og fær enga hjálp,“ segir Guðbjörg og leggur áherslu á orð sín. Sem dæmi nefnir hún að þegar Óli hafi verið útskrifaður hafi þau fengið viðtal hjá „Atvinnu með stuðningi“ sem er úrræði á vegum Vinnumálastofnunar. „Ég hafði haft samskipti við þau í mínu fyrra starfi og sagði því þessum tiltekna starfs- manni, sem ræddi við okkur, að öllu fögru yrði lofað en svo myndum við aldrei heyra í þeim aftur,“ segir Guð- björg. Sú varð raunin en að hennar sögn hefur ekki heyrst orð frá Vinnu- málastofnun síðan. Eitt úrræði sem er til staðar er svo- kallað Mitii-forrit (Move it to improve it) sem talið er frábært verkfæri til þess að auka hreyfigetu og vitræna færni fólks með heilaskaða. Um er að ræða daglegar æfingar sem lagað- ar eru að hverjum og einum og eru æfingarnar framkvæmdar í gegnum tölvu með vefmyndavél, ekki ósvipuð Fastur í landi Eftir árásina fékk Óli sér húðflúr á annað handarbakið. Akkerið er tilvísun í að hann er fastur í landi um ókomna tíð. Gleðigjafi Þrátt fyrir áföll og erfiðleika síðustu ára er Óli afar lífsglaður og alltaf er stutt í hláturinn þegar hann er annars vegar. Myndir ÞorMar ViGnir Gunnarsson Framhald  „Ég man eftir vini mínum, sem ég lék mér við þegar ég var lítill, og álfunum. Michael schumacher Kappakstur- kempan kunna fékk svipaða áverka og Óli þegar hann lenti í skíðaslysi í Frakklandi fyrir tæpum tveimur árum. Fregnir herma að hann sé bundinn við hjólastól, sé mállaus og hafi takmarkað minni. Mynd rEutErs
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.