Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 30
Helgarblað 22.–25. janúar 201630 Fréttir Erlent
Nose & Blows blautklútarnir hjálpa til við að hreinsa lítil og
viðkvæm nefgöng á mildan hátt. Þeir vernda húðina gegn roða,
ertingu og þurrki sem myndast þegar oft þarf að snýta og innihalda
rakagefandi B5 vítamín og náttúrulegt mentól & eucalyptus til þess
að auðvelda öndun. Enginn rauður nebbi lengur!
Er litli nEbbinn díbblaður?
Fæst í apótEkum um land allt
Yngstu milljarðamæringarnir
n Stofnuðu samfélagsmiðla og blóðrannsóknarfyrirtæki n Flestir erfa auðæfi foreldra
Julio Mario Santo Domingo III
Aldur: 29 ára
Eignir umfram skuldir:
2,2 milljarðar dollara
Julio er plötusnúður í New York. Hann
er einn erfingja nafna síns og afa, sem
átti bjórrisann Anheuser-Busch InBev.
Faðir hans lést árið 2009 svo afi hans
ánafnaði sonarsyni sínum einum sjötta
auðæfa sinna. Julio býr í 500 milljóna
króna íbúð í borginni og ver tíma sínum í
að koma plötusnúðahópi DJ Sheik 'n' Beik
á framfæri, en hópurinn spilar raftónlist.
Þess má geta að Julio erfði eftir föður
sinn stærsta ópíumpípusafn í heimi, 50
þúsund bækur, ýmis plaköt, ljósmyndir
og annað sem tengist athugunum hans á
áhrifum hugbreytandi efna á fólk og sam-
félög. Harvard University hýsir munina.
Mark Zuckerberg
Aldur: 30 ára
Eignir umfram skuldir:
33,4 milljarðar dollara
Zuckerberg þarf vart að kynna. Hann
hefur fyrir löngu tekið samfélagsmiðilinn
Facebook í nýjar hæðir, jafnvel þó að yngsta
kynslóðin hafi sumpart fært sig annað.
Hlutabréf í Facebook hækkuðu árið 2014 um
heil 58%, aðallega vegna aukinna auglýs-
ingatekna fyrir snjallsíma. Um 1,4 milljarður
manna notar Facebook og Instagram hefur
300 milljónir notenda. Þá hefur WhatsApp,
sem Facebook keypti 2014, 700 milljónir
notenda. Zuckerberg er konungur samfé-
lagsmiðlanna og er vellauðugur. Hann hefur
verið duglegur að gefa til góðra málefna.
Dustin
Moskovic
Aldur: 30 ára
Eignir umfram skuldir:
7,9 milljarðar dollara
Moskovic var þriðji starfsmaðurinn sem
Facebook réði á sínum tíma og hjálpaði
Zuckerberg við að koma samfélagsmiðl-
inum á koppinn. Hann yfirgaf fyrirtækið
2008 til þess að stofna hugbúnaðarfyr-
irtækið Asana. Hann er giftur Cari Tuna,
fyrrverandi blaðamanni hjá Wall Street
Journal og saman hafa þau varið tíma
sínum í að koma á góðgerðarsjóðnum
Good Ventures á laggirnar, sem hefur
meðal annars stutt baráttuna gegn
malaríu og stuðlað að jafnrétti í hjóna-
böndum. Hann hefur vakið athygli fyrir
látlaust fas og íburðarlausan lífsstíl.
Evan Spiegel
Aldur: 24 ára
Eignir umfram skuldir:
1,5 milljarðar dollara
Spiegel er framkvæmdastjóri mynda-
og örmyndbandaforritsins Snapchat.
Hann stofnaði fyrirtækið ásamt Bobby
Murphy árið 2011. Fyrirtækið, sem metið
var á 10 milljarða Bandaríkjadala, um
1.300 milljarða íslenskra króna, árið 2014
hafði tvöfaldast að verðgildi ári síðar.
Félagarnir, sem kynntust í Stanford
University, bjuggu fyrst til forritið Picaboo.
Það gekk ekki sem skyldi. Þeir gáfust ekki
upp og bjuggu til nýtt forrit byggt á sömu
hugmynd, Snapchat. Það er í dag notað af
100 milljónum manna um heim allan.
Bobby Murphy
Aldur: 25 ára
Eignir umfram skuldir:
1,5 milljarðar dollara
Murphy er hinn stofnandi Snapchat. Hann
og Evan Spiegel eiga hvor um sig um 15
prósent í fyrirtækinu en Facebook er á
meðal þeirra sem reynt hafa að festa
kaup á Snapchat. Murphy þykir jarðbund-
inn og gott mótvægi við hvatvísan félaga
sinn, Spiegel. Árið 2014 tókst þeim að
semja við þriðja manninn, Reggie Brown,
sem krafðist hlutdeildar í eignum Spiegels
og Murphys, en hann stofnaði með þeim
Picaboo á sínum tíma.
T
íu ára íslamskur drengur
var yfirheyrður af lögreglu
í Bretlandi eftir að hafa
fipast á stafsetningu í
kennslustund. Mistökin sem
drengurinn gerði voru að skrifa
að hann byggi í „terrorist house“
en ekki „terraced house“ eins og
hann hafði ætlað að skrifa. Hann
skrifaði sem sagt að hann byggi í
„hryðjuverkamannahúsi“ en ekki
í raðhúsi.
Villuna örlagaríku gerði
drengurinn í enskutíma í
Accrington í Lancaskíri. Daginn
eftir bönkuðu lögregluþjónar upp á
heima hjá drengnum og foreldrum
hans. Þeir yfirheyrðu pilt og
leituðu í heimilisfartölvunni. BBC
hefur eftir foreldrum drengsins að
hann hafi tekið heimsóknina mjög
nærri sér og væri í áfalli. Þau kalla
eftir afsökunarbeiðni lögreglunnar
og skólayfirvalda.
Þá er haft eftir frænku
drengsins, sem er heldur ekki
nefnd á nafn í því skyni að vernda
drenginn: „Maður getur ímyndað
sér að svona nokkuð geti átt sér
stað þegar þrítugur karlmaður á
í hlut – en ekki lítið barn. Okkur
býður við því sem gerðist.“
Fram kemur að drengurinn
hafi einangrast eftir atvikið. Hann
upplifði mikla vanlíðan; lék sér
ekki við önnur börn og hvorki
nærðist almennilega né svaf.
„Hann faldi sig bara undir teppi,“
segir frænkan. „Kennarinn hefði
átt að láta sig stafsetningu hans
varða, en ekki þetta.“ Fram kemur
að hann sé smeykur við að nota
Ótti við hryðjuverk bitnaði á tíu ára barni
Tíu ára yfirheyrður vegna stafsetningarvillu