Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Qupperneq 34
Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 34 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Helgarblað 22.–25. janúar 2016 Heitar varir og blaut tuska V ið tókum á móti flóttamönn- um frá Sýrlandi í vikunni. Á meðan Sigmundur Davíð og Eygló Harðardóttir kysstu þá alla og bugtuðu sig og beygðu, voru aðrir flóttamenn að fá öðruvísi kveðjur frá íslenskum stjórn- völdum. Þó er full ástæða til að óska hælisleitendunum frá Sýrlandi til hamingju með nýja landið sitt og um leið að bjóða þá velkomna. En á sama tíma og beinar út- sendingar voru frá kossaflensi Sig- mundar í Keflavík fékk albanska Dega-fjölskyldan blauta tusku í and- litið. Burt með ykkur! voru skilaboðin. Þessi albanska fjölskylda telur fimm manns; hjón sem bæði eru vel menntuð, 21 árs son þeirra og 18 ára gamla dóttur sem fékk inni í Flens- borgarskóla á miðri önn en tók loka- prófin og fékk frábærar einkunnir og síðast en ekki síst 10 ára dreng sem kann vel við sig í Lækjarskóla. Móðir- in er komin með vinnu og talar orðið fína íslensku. Er þetta ekki akkúrat það sem við ætlumst til af nýjum landnemum hér? Að þeir aðlagist okkar samfélagi og auðgi? Það er einhver ömurleg írónía í að opna faðminn fyrir einni fjölskyldu í beinni sjónvarpsútsendingu og vísa svo annarri á brott, og það sama kvöldið. Ríkisstjórnin með innanríkisráð- herra í broddi fylkingar verður að gyrða sig í brók og setja hér reglur um móttöku flóttamanna. Það er ekki boðlegt að fólk dvelji hér mánuðum saman, aðlagist samfélaginu og ali með sér von um betra líf en sé síðan kastað út á Guð og gaddinn. Norð- menn hafa 48 stunda-regluna hvað hælisleitendur áhrærir. Hvað ætlar Ólöf Nordal að gera í málinu? Klukk- an tifar. Á meðan beðið er svars við þeirri spurningu fjölgar hælisleit- endum á Íslandi, eins og komið hef- ur fram í DV. Hér með er sett fram sú krafa að Sigmundur Davíð kyssi albönsku fjöl- skylduna bless í Leifsstöð og jafnframt að RÚV sendi beint út frá þeirri ömur- legu kveðjustund. n Það virkaði ekkert Áslaug Kristjánsdóttir biður fólk um að taka tillit til aðstandenda fíkniefnaneytenda. – dv.is Áhugaverðar skoðanir Ummæli Einars Mikaels töfra- manns um listamannalaun hafa vakið athygli en hann sagði hóp rithöfunda sem fengið hafa lista- mannalaun árum saman eiga að afþakka þau þetta árið og í framtíðinni. Hann vill einnig að fólk sniðgangi þá listamenn sem þiggja listamannalaun. Þetta framlag töframannsins getur ekki talist málefnalegt innlegg í umræðu um listamannalaun. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar, sá þó ástæðu til að segja þessar hugmyndir áhuga- verðar. Er sú skoðun Vigdísar sannarlega áhugaverð. Helga bolað burt Helgi Magnússon ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Lífeyrissjóðs versl- unarmanna. Greinilegt er að Helgi fékk dygga aðstoð við þessa ákvörðun, þar sem Ólafía for- maður VR var búin að segja að hún vildi Helga ekki áfram. Refsistefnan er ekki að virka Örvar Geir Geirsson stofnar félag áhugafólks um kannabis. – dv.is Einelti er banvænt Ólafur F. Magnússon segist hafa verið við dauðans dyr. – Útvarp Saga „Arfurinn“ Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru É g velti því oft fyrir mér hvort menningararfur, þjóðrækni og þjóðernisstefna séu endi- lega góð fyrirbæri. Tilefnið er raunar þær fyrirmyndir sem „Arfurinn“ leggur fyrir okkur. Það er oft talað um þennan menningararf og mikilvægi þess að varðveita hann og þar með tunguna. Ég legg á það áherslu að íslenska og íslensk þjóð eru mér hugleikin fyrirbæri en ég velti fyrir mér þeim fyr- irmyndum sem fyrir mig voru lagðar í uppeldi mínu og á þroskaskeiði mínu á árum fyrr. Sögufölsun? Einn af öflugri stöplum þess skeiðs voru bækur sem ég var látinn læra um íslenska sögu. Þetta voru bækur eftir Jónas Jónasson frá Hriflu. Þær komu fyrst út árin 1915 til 1917. Ég las þær fimmtíu árum síðar og mér vitanlega voru þær víða í notkun fram yfir 1980. Mér er það óskiljanlegt að slíkar bækur væru notaðar í áratugi, jafn mörg ósannindi og þar var að finna. Ég minnist þess að þegar ég var í barnaskóla þá vorum við m.a. látin þylja upp kafla hennar, standandi við borðið. Maður gat endursagt kafl- ann eða lært hann utanbókar, sem í raun var einfaldara. Þar kynntumst við ýmsum hetjum sögunnar og iðu- lega voru þær hetjur okkur til lítils sóma þegar betur er að gáð. Þar er t.d. kristnitökuhetjan Þorgeir Ljós- vetningagoði sem fékk Alþingi til að samþykkja það að taka upp kristni, út á það að heimila frávik s.s. útburð barna – meðan ekki kæmist upp um menn. Þetta situr í þjóðarsál okkar og er grópað þar inn. Það er sem sé að margra mati í lagi að brjóta reglur, ef viðkomandi kemst upp með það. Ef ekki þá fær sá sér lögfræðing og þræt- ir. Við erum þar með ekki að hugsa um orð Sókratesar sem er mun virt- ari lögspekingur á heimsvísu. Hann sagði að ef maður er ósáttur við lög- in, þá ætti að fylgja lögunum eftir en knýja á um breytingar. Það ætti aldrei að brjóta lög. Enn önnur hetjan var Einar Þveræ- ingur sem beitti sér fyrir því á 11. öld að vorir landar gerðu ekki sáttmála við Noregskonung. Rökin voru þau að þó að menn teldu þáverandi Noregskon- ung góðan þá væri ekki á vísan að róa með þann næsta. Með þetta að vopni hafa skoðanabræður Þveræingsins haldið aftur af okkur með að gera al- þjóðasamninga. Einnig tryggt að við færum inn í slík samtök með það að augnamiði einu að tryggja hvað við fáum út úr því. Ekki hvað við getum lagt fram og þar með bætt heiminn. Ekki eingöngu okkar litla samfélag. Svona má halda áfram með út- úrsnúninga Íslandssögunnar hans Jónasar. Hún er barn síns tíma en það versta var að kynslóð fram af kyn- slóð var fólk stríðalið á henni, eins og hún væri rétt útgáfa Íslandssögunn- ar. Hún sagði sögu góðra íslenskra karla sem voru hetjur, konur komu varla við sögu og útlend yfirvöld voru náttúrulega bara til vansa. Í öllu falli þá velti ég því fyrir mér hvernig eigi að bera menningararfinn og söguna á borð. Og ég kalla á endurskoðun á rangfærslum og karllægum myndum þessa án efa merka en villuboðandi menningararfs. n „Hún sagði sögu góðra íslenskra karla sem voru hetjur, konur komu varla við sögu og útlend yfirvöld voru náttúrulega bara til vansa. Jónas frá Hriflu Magnús Þorkelsson skólameistari Flensborgarskóla Kjallari Fá þau koss? Fjórir af fimm fjölskyldumeðlimum Dega-fjölskyldunnar. Þeirra bíður brott- vísun. Þau lærðu íslensku til einskis. Mynd SiGurður MiKaEl JÓnSSon Leiðari Eggert Skúlason eggert@dv.is Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta TANITA FITUMÆLINGAVOGIR Nauðsynleg hjálpartæki eftir jól Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 Tengist við iPhone með Bluetooth
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.