Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Síða 35
Umræða 35Helgarblað 22.–25. janúar 2016 Myndin Beðið eftir vagninum Það getur verið kyrrðarstund að bíða eftir strætó. Þormar Vignir gunnarsson Ólafur F. magnússon segist hafa verið við dauðans dyr. – Útvarp Saga Ég get þetta ekki lengur ugla stefanía er ósátt við ummæli yfirlæknis Barnaspítala Hringsins um intersex fólk. – DV Ég get tekist á við lífið stefán Karl stefánsson segir ADHD-lyfin hafa breytt lífi hans. – DV Það er ekki að funkera Bjarki sigurðsson gagnrýndi landsliðsþjálfarateymið. – HM stofan A usturríkismenn tilkynntu í gær að þeir ætluðu að minnka fjölda þeirra flótta- manna, sem þeir ætla að taka við á þessu ári mjög mikið. Hver þjóðin á fætur annarri lokar annaðhvort landamærum sín- um eða ætlar að takmarka fjölda flóttamanna, nema hvort tveggja sé. Forseti Þýskalands, Austur-Þjóð- verjinn Joachim Gauck, sem er son- ur fórnarlambs Gúlag-fangabúð- anna í Sovétríkjunum, og það sem Stasi kallaði óforbetranlegan „antí- kommúnista“, sendi Austur-Þjóð- verjanum Angelu Merkel skýr skila- boð í gær. Þetta er ekki síður merkilegt af því að embætti forseta Þýskaland er ekki ósvipað stöðu íslenska forset- ans, sem öllu jafna skiptir sér ekki af hápólitískum málum. Í ræðu sinni í Davos benti þýski forsetinn á hætt- una á því að gjá skapaðist milli kjós- enda og margra þingmanna borg- aralegu flokkanna SPD og CDU, sem „representera“ millistéttina, því al- menningur hefði miklar áhyggjur af þeim miklum þjóðflutningum sem væru í gangi til Evrópu. Á sama tíma skammaði hann þó einnig ríki Aust- ur-Evrópu, sem hann sagði að ættu að líta til sögu sinnar sem kúgaðra þjóða undir kommúnisma og hefðu þar af leiðandi ákveðnum skyld- um að gegna að taka við ákveðnum hluta flóttamanna. Angel Merkel er að tapa þingmeirihluta sínum þegar kemur að þessu viðkvæma máli og þá mun hlakka í mörgum óvinum hennar innan Þýskalands og ESB. Íslendingar sem halda því fram að Þjóðverjar stjórni einu og öllu innan ESB sjá núna að svo er bara alls ekki, heldur ræður meirihluti ríkja sam- bandsins ferðinni, þegar stærstu mál eiga í hlut. Allt virðist stefna í sömu átt og ég hef bent á í u.þ.b. eitt ár að Vestur- lönd muni gera útlendingalöggjöf sína strangari og taka aðeins við þeim flóttamönnum sem virkilega eru í bráðri lífshættu. Í stað þessa munu ríkin einbeita sér enn frekar að því að bæta aðbúnað flóttamanna í nágrannalöndum stríðshrjáðu ríkj- anna, sem velflest eru múslimaríki, og er að finna í Norður-Afríku, fyrir botni Miðjarðarhafsins eða á Arabíu- skaganum. Landamæravarsla á ytri landamærum ESB verður styrkt til muna bæði hvað mannskap varðar og líklega settar upp landamæra- girðingar. Þetta er einmitt sama af- staða og við ættum að taka í þessum málaflokki í stað þess að opna lög- gjöfina enn meira. Það er ekki leng- ur annað hægt en að horfast í augu við að stríðsástandið tengist trúar- brögðum flóttafólksins og að lýð- ræðisvandinn í löndum múslima tengist einnig trúarbrögðunum, þar- lendri menningu, gildum og siðum. Það er því tómt mál að tala um að ís- lam komi þessu máli bara alls ekki við, sérstaklega þegar augljóst mál er að stríðið snýst að stórum hluta um innbyrðis átök shíta og súnníta í mörgum þessara landa og þeirra sem vilja íslömsk lýðræðisríki í stað einræðisríkja eða hrein og klár sjar- ía-klerkaríki. Það er hálf ömurlegt að stór hluti Vest- urlandabúa skuli halda því fram, að öll þessi átök séu runnin und- an rifjun Banda- ríkjamanna og bandamanna þeirra í Evrópu, en séu ekki trúar- bragðastríð eða borgarastríð, þar sem barist er um hluti eins og lýðræði eða sjaría- klerkastjórn wahabista eða enn verri útgáfu þess sama í formi ISIS-ríkis. Vissulega er þó hárrétt að af- skipti Vesturlanda hafi auðvitað oft á tíðum gert illt verra. Þessa sömu reynslu höfum við úr nær öllum heimshlutum, þótt á örfáum stöð- um hafi slík afskipti hjálpað, t.d. í Evrópu og Asíu 1939–1945 og í Kóreu stríðinu 1950–1953. Annars staðar hafa afskipti Vesturlanda einungis gert illt verra. Engu að síður er horft til Vesturlanda þegar mál komast í óefni og saklausir borgarar verða fyrir barðinu á stríðsherrum eins og alltaf verður á endanum. Þá er oft úr vöndu að ráða, hvort Vesturlönd eigi að hjálpa til, hverjum og hvern- ig það skuli gera. Kostirnir eru oft á tíðum einungis mjög slæmir, hvað sem menn ákveða að gera. Þetta er vandamálið í Sýrlandi, þar sem annars vegar er við völd hræðilegur einræðisherra og hins vegar einhver skelfilegustu og ómannúðlegustu hryðjuverkasamtök sem heimurinn hefur alið af sér auk fjölda annarra stríðsherra. Lausnin er auðvitað að reyna að koma á friði en einföld lausn á því vandamáli blasir síður en svo við, ekki síst af því að stærstu valdaríki heims geta ekki komið sér saman um lausn. Nú er þó ljóst að eitthvað „drastískt“ verður að gera, þar sem lausnin felst klárlega ekki í að ESB taki við nær öllum íbúum Norður-Afríku, Mið-Austurlanda og Arabíuskagans. n Austurþýska prestsdóttirin og orrustan við ríki ESB guðbjörn guðbjörnsson skrifar Af Eyjunni Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki Umsóknir sendist á magnushelgi@dv.is → Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir → Ófeimin/n að tala við fólk í gegnum síma → Reynsla af svipuðum störfum er kostur Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.