Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 40
Helgarblað 22.–25. janúar 20162 Betra líf - Kynningarblað
Margt framundan hjá
Margréti Eddu Gnarr
M
argrét Edda Gnarr er at-
vinnumaður í bikiní-fit-
ness og með þó nokkur
járn í eldinum. Margrét
ræddi við blaðamann um
það sem er framundan hjá henni, af
hverju hún byrjaði í fitness og hvern-
ig hún undirbýr sig fyrir mót.
Hvað kom til að þú byrjaðir í fit-
ness?
„Ég hafði eitthvað fylgst með fitness
hér á landi í gegnum árin en það
var ekki fyrr en byrjað var að keppa
í módel-fitness sem ég fékk fyrst
áhuga á að keppa. Mér var oft ráðlagt
að reyna fyrir mér í módelbransan-
um en alltaf fékk ég að heyra að ég
væri of stælt og of lágvaxin svo mód-
el-fitness flokkurinn var fullkominn
fyrir mig.“
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir
mót?
„Ég fer eftir æfinga- og matar-
prógrömmum frá keppnisþjálfara
mínum, Jóhanni Norðfjörð, sem
er einn færasti keppnisþjálfari á
landinu og einnig Alþjóðadómari
hjá IFBB. Ég æfi svo keppnispósur á
hverjum degi og tek slökun í Laugum
Spa allavega einu sinni í viku.“
Hvernig hagræðir þú þínu matar-
æði?
„Keppnisþjálfari minn sér um mín
matarprógrömm og fer ég eftir þeim.
Ég borða sex til sjö máltíðir á dag
á tveggja tíma fresti. Prógrömmin
innihalda yfirleitt haframjöl, Whey-
prótein, ávexti, magurt kjöt, brún
hrísgrjón, sætar kartöflur og mikið
magn af grænmeti.“
Hvað æfir þú að meðaltali oft í
viku og hvernig er æfingakerfið sem
þú notar?
„Ég lyfti sex sinnum í viku, tek auka
brennslur fimm sinnum í viku og æfi
KickFit tvisvar í viku. Lyftingaæfingar
byrja á góðri og langri upphitun.
Lyftingatækni fer eftir hvaða vöðva-
hóp ég er að æfa og er ég þá ann-
aðhvort að lyfta þungu til að stækka
eða léttu til að móta. Ég kenni KickFit
tvisvar í viku og er mikið með á æf-
ingunum en KickFit er æfingakerfi
sem ég setti saman og er blanda af
taekwondo og fitness.“
Hvað er framundan hjá þér?
„Næst á döfinni er mót sem heitir
Legends Classic og er það haldið 30.
janúar í Las Vegas. Þetta er fyrsta at-
vinnumót ársins og hlakka ég
mikið til að stíga á
svið eftir árs
pásu frá
keppnum
vegna veik-
inda sem ég
var að kljást
við. Www.
musclecontest.
com heldur
þetta mót en það
heldur öll Pro-mót í
Kaliforníu og Nevada.
Mig hefur alltaf lang-
að til að keppa á þeirra
mótum og þau eru
hrikalega flott.“
Í framhaldinu ertu að
fara að keppa á Arnold
Classic í Ohio í mars í
annað sinn sem atvinnu-
maður. Hvað ætlar þú
að gera öðruvísi fyrir það
mót?
„Að þessu sinni ætla ég
að breyta hugarfarinu og
einnig mun ég mæta örlítið
stæltari. Hugarfarið sem
ég var með árið 2014 var
„ég er rosa-
lega hepp-
in að vera
hér“ og
með því
hugar-
fari gaf
ég ekki
allt í
sviðs-
framkom-
una. Núna
ætla ég að
hugsa eins og
sigurvegari og
gefa allt í undirbúning og sviðs-
framkomu.“
Hver eru helstu markmið þín í
sportinu?
„Fyrsta markmið var að vinna mót
á Íslandi, seinna markmið var að
vinna stórmót og gerast atvinnu-
maður, þriðja markmið var að fá
boð á Arnold Classic og næstu
markmið eru að vinna atvinnumót
og í kjölfarið fá réttindi til að keppa
á Mr. Olympia“
Hver eru þín mottó?
„Allir eiga möguleika á að láta
drauma sína rætast.“ n
Mynd richard gyuricz 2015
Mynd Eva SiMon
PhotograPhy LLc
Hilton Reykjavik Spa –
fyrsta flokks heilsurækt
H
ilton Reykjavik Spa er fyrsta
flokks heilsurækt á Hilton
Reykjavík Nordica hótelinu
og býður upp á allt það besta
sem völ er á þegar kemur
að líkams- og heilsurækt. Ragnheið-
ur Kristín Guðmundsdóttir, deildar-
stjóri Hilton Reykjavík Spa segir að
meðlimagjald innihaldi meðal annars
fjölbreytta opna tíma og aðgengi að
heilsulindinni þar sem boðið er upp
á herðanudd í heitum pottum og
handklæði við hverja komu. Í heilsu-
lindinni eru tveir heitir pottar, ilmgufa
ásamt slökunarlaug. Úti á verönd er
sauna, heitur pottur og kaldur pottur,
ásamt sólbaðsaðstöðu. Jafnframt fá
meðlimir aðgengi að fjölmörgum fær-
um einkaþjálfurum sem búa til sér-
sniðna æfingaáætlun fyrir hvern og
einn, kenna á tækin og aðstoða eftir
þörfum. Auk þess fá meðlimir 10% af-
slátt hjá snyrti- og nuddstofunni, sem
er hluti af heilsulindinni, af öllum lík-
ams- og snyrtimeðferðum.
Persónuleg og góð þjónusta
„Við leggjum áherslu á að veita
persónulega og góða þjónustu sem
fullnægir þörfum þeirra sem gera
kröfur þegar kemur að líkamsrækt
og vellíðan,“ segir Ragnheiður. „Við
hugum vel að slökun og jafnvægi
þar sem líkami og sál er það sem við
vinnum með,“ segir Ragnheiður.
námskeið fyrir 60 ára og eldri
„Við erum með fjögurra vikna nám-
skeið fyrir 60 ára og eldri sem eru
mjög vinsæl hjá okkur sem eru fyrir
bæði konur og karla þar sem lögð
er áhersla á persónulega aðstoð,
styrk, þol, jafnvægi og samhæfingu
til þess að auka lífsgæði. Fólk er á
námskeiðinu þrisvar í viku í hóptím-
um og hefur kost á að koma tvisvar í
viku í líkamsræktarsalinn undir leið-
sögn en við erum með næringar- og
styrktarþjálfara til taks fyrir meðlimi.
Á þessum tíma er opið í heilsulindina
fyrir þá sem sækja námskeiðið,“ segir
Ragnheiður. Næsta námskeið hefst
29. febrúar.
100 daga lífsstílsáskorun
„Við fórum af stað með 100 daga lífs-
stílsáskorun í síðustu viku og enn
er tækifæri til að hoppa á vagninn.
Þar er markmiðið að bæta lífsstíl
og huga að hreinna og næringar-
ríkara mataræði, auka hreyfingu
og efla heilsufar og vellíðan. Nám-
skeiðið er byggt upp á hóptímum,
fyrirlestrum, næringar ráðgjöf og
heilsufarsmælingum,“ segir Ragn-
heiður. „Við vorum með námskeið
fyrir jólin og var árangur þátttak-
enda framar vonum,“ bætir hún
við.
yoga Sculpt
„Við erum að fara af stað með frá-
bært yoga-námskeið sem er yoga
með lóðum í heitum sal og er þessi
þjálfun frábær fyrir þá sem vilja
liðka sig og styrkja í hægum krefj-
andi æfingum,“ segir Ragnheiður
en námskeiðið hefst í næstu viku.
Hægt er að finna nánari upplýs-
ingar á heimasíðu heilsulindarinn-
ar og facebooksíðu hennar. n