Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 64
Helgarblað 22.–25. janúar 201644 Sport bjuggu þau, sem áður sagði, í Vest- mannaeyjum og líkaði vel. Eft- ir fyrsta árið bauðst henni að fara til Ungverjalands eða Þýskalands og spila. „En, mér finnst fólkið þar ekki nógu hlýlegt. Það er frekar kaldlynt,“ segir hún. „Hér er fólk með fallegra hjartalag. Mér finnst það að minnsta kosti.“ Þau hjón- in ákváðu að halda sínu striki og urðu áfram í Vestmannaeyjum. „Við vissum það bæði að ef ég stæði mig ekki vel hérna yrði ég að fara heim og ég vildi það alls ekki. Ég ákvað að ég yrði að bæta mig ár frá ári og ég held að mér hafi tek- ist það.“ Eftir tvö vel heppnuð ár þar vildu þau breyta til og fóru þá í Garðabæinn til Stjörnunnar og voru í fjögur ár. Florentina var meðal annars valinn íþróttamað- ur Garðabæjar hjá Stjörnunni og hefur að auki verið valinn besti markmaðurinn hjá HSÍ átta ár í röð. Florentina eignaðist sitt fyrsta barn á meðan hún spilaði með Stjörnunni og í kjölfarið fluttu þau til Vestmannaeyja. „Mér fannst svo gott að vera með son minn þar svona lítinn. Ég gat verið með honum að degi til, enda var hann ekki kominn til dagmömmu, en spilað á kvöldin og þá var maður- inn minn hjá honum. Það er mjög fjölskylduvænt samfélag í Vest- mannaeyjum og gott fyrir fjöl- skyldur að vera þar. Mér finnst það líka núna í Garðabænum, það er gott að vinna, spila og búa í sama bæjarfélaginu,“ segir hún. Leyndarmálin Florentina er þekkt fyrir metnað- inn inni á vellinum, en einnig fyr- ir sérstaklega góðan undirbún- ing fyrir leikina. „Ég undirbý mig mjög mikið fyrir hvern leik og er með miklar hefðir í tengslum við það. Ég gerði það sérstaklega áður en sonur minn fæddist. Ég hef að- eins dregið úr því, enda vinn ég líka meira með handboltanum en ég gerði. En ég er alltaf með sömu rútínuna,“ segir hún. Hún tekur sér gjarnan frí frá vinnu fyrir mik- ilvæga leiki, tekur æfingu, borðar vel og íhugar. „Ég vil ekki gefa upp öll leyndar- málin mín – það skiptir kannski ekki eins miklu máli núna þegar ég er búin að ákveða að hætta. Ég læt þau samt ekki öll, því við eig- um allt að vinna í Stjörnunni í vet- ur,“ segir hún glaðhlakkaleg og bætir við: „Ég skoða andstæðinginn og liðið mitt mjög vel. Ég er stund- um með heilu veggina veggfóðr- aða af blöðum með upplýsingum og ég horfi á myndbönd. Ég fer vel yfir það fyrir leikinn, hugsa þetta taktískt, velti fyrir mér veikleikum og styrkleikum mínum og þeirra. Svo fæ ég stundum eiginmann minn til að koma og fylgjast með mér á sjálfum leiknum og veita mér stuðning. Hann er traustur ráðgjafi minn – stendur utan vall- ar og hjálpar mér að átta mig á því hvar ég get gert betur.“ Aldrei ein Auk þess að skoða andstæðinginn gaumgæfilega fer hún með bænir fyrir hvern leik. „Trúin skiptir mig miklu máli,“ segir hún. „Hún hefur fleytt mér langt og ég er alveg viss um það að ég hef Guð með mér inni á vellinum. Ég er ekkert án hans og ég er aldrei ein. Það er mér mikilvægt að vera jákvæð, glöð og góð og vera trúrækin. Ég segi liðs- félögum mínum það líka að þeir verði að trúa og halda í vonina.“ Hún segist finna vel fyrir þess- um aukna styrk. „Í fyrra spiluðum við við Fram í undanúrslitum. Ég held að það hafi verið einn erfið- asti og eftirminnilegasti leikur sem ég hef spilað. Þetta var fimmti leik- urinn og þetta var erfitt. En mér fannst eins og ég væri með fjórar hendur í markinu. Guð var með mér í þessum leik, svo sannarlega. Það var svo sætur sigur, við unn- um þær á heimavelli og ég fann svo sterkt hvað í okkur bjó,“ seg- ir hún. Liðsfélagarnir sem höfðu fylgst með henni undirbúa sig fyrir leikinn sögðust núna loksins skilja hvað hún væri að meina þegar hún talaði um trú sína. Hún benti þeim þó góðfúslega á að það væri ekki nóg að hafa trú í meðvindi, held- ur þyrfti hún líka að vera til staðar í mótvindi. Valdi Ísland Það vakti athygli þegar Florentina ákvað að taka upp íslenskt ríkis- fang og spila með íslenska lands- liðinu í handbolta. Hún hafði verið markvörður rúmenska landsliðsins og verið burðarás í liðinu. Rúmenska liðið er mjög sterkt, hefur til að mynda keppt á öllum heimsmeistaramótunum sem haldin hafa verið. Florentina sóttist mjög ákveðið eftir því að fá að spila með íslenska landsliðinu. „Ég vildi gefa til baka til Íslands, eftir allt sem það hafði gefið mér. Ég hef verið svo hamingjusöm á Ís- landi. Mér fannst það skylda mín að gefa af mér til baka,“ segir hún. Hún trúir því að íslenska og norræna hugarfarið sé frelsandi. „Ég spilaði síðast með Rúmeníu árið 2009 á heimsmeistaramótinu í Kína og mér fannst hugarfar liðsins ekki vera það sem ég sótt- ist eftir. Mér fannst það vera óþarfa stress og mér fannst eins og ég væri sett í ákveðinn kassa. Ef ég er sett í kassa get ég ekki gefið af mér og hjálpað liðinu. Hér hef ég meira frelsi og þá á ég auðveldara með að gefa af mér – þótt ég ætli mér alltaf að gera meira.“ Íslenska landsliðið hefur allt til að bera til að vera mjög sterkt og í því eru öflugir leikmenn sem geta náð langt að hennar mati. Sama má segja um Stjörnuna. „Við erum með sterkt lið, liðið er fullt af leik- mönnum sem berjast. Ég vona að okkur takist að klára þetta ár með góðum árangri, ég held að við get- um það ef við leggjum allt í sölurn- ar. Ég myndi vilja klára árið vel og mun gera allt sem ég get til þess að láta það verða að veruleika,“ segir hún. „Við verðum að halda okkur heilbrigðum og vera í topp- formi áfram. Stjarnan hefur stað- ið sig mjög vel síðustu tvö ár og ég treysti því að við komumst í und- anúrslitin í ár. Maður veit aldrei en ég veit að við getum það.“ Kveðjustund Það er komið að því að kveðja handboltann og Ísland. Í júní spil- ar Florentina líklega síðustu leik- ina sína og fer svo til Rúmeníu aftur. „Ég ætla að hætta. Maður- inn minn á foreldra í Rúmeníu og pabbi minn er þar líka. Þau vilja að við komum aftur heim og Costinel hefur elt mig og fylgt mér svo lengi að það er komið að því að ég fari með honum. Ég held að þetta sé góður tími til þess og ég er sátt við þessa ákvörðun. Ég finn það vel að mig langar til þess að breyta til. Ég held að það sé líka réttur tími fyrir okkur að fara gagnvart syni okkar. Hann er fimm ára og ætti að byrja í skóla eftir tvö ár í Rúmeníu. Við höfum þá ráðrúm til þess að sjá hvernig okkur gengur að aðlagast aftur áður en hann byrjar í skóla. Það væri erfiðara ef hann væri eldri og gæti truflað námsfram- vindu hans,“ segir hún og segist hafa velt þessu mikið fyrir sér. Hún telur líklegt að hún komi sjálf til með að starfa sem kennari í Rúm- eníu. „Ég er menntaður íþrótta- kennari og vinn á leikskóla í Garða- bæ sem kennari. Mér finnst það svo skemmtilegt, ég vinn á góðum vinnustað og næ góðri tengingu við börn. Ég er góð í handbolta, en mér finnst ég ná sérstaklega vel til barnanna sem kennarinn þeirra. Starfið hentar mér vel og hvatvís- inni minni,“ segir hún. Is it true? Það er ekki hlaupið að því að hætta í handboltanum, eftir allan þenn- an tíma. „Stundum trúi ég því varla að ég sé að hætta – eins og Jó- hanna Guðrún söng í Eurovision: „Is it true – is it over?“ Ég held að ég verði alltaf tengd handbolt- anum og íþróttum. Ég er íþrótta- maður í eðli mínu, ég verð að geta hlaupið, lyft og hreyft mig. Annars – úff ég veit ekki hvað myndi ger- ast annars,“ segir hún. En hún seg- ist vita að það verði mjög erfitt að kveðja, erfiðara sjálfsagt en hægt er að ímynda sér. Hér á Íslandi verða áfram bróðir hennar og syst- ir sem komu á eftir henni og hafa búið sér heimili hér. „Við höfum haft gott stuðningsnet hérna með þeim. Við systkinin erum mjög náin,“ segir hún. „Þau eru mjög ánægð og ég hef sagt þeim að ef þau verði hérna mikið lengur komi þau aldrei aftur til Rúmeníu. Ég skil það vel,“ segir hún og hlær. „Ég skil eftir hluta af mér.“ Takk „Þótt ég sé enn að spila og auðvitað ekki farin langar mig svo að segja aftur: Takk. Takk ÍBV, takk Stjarn- an og takk Ísland fyrir að vera mér svona góð og miklir vinir mínir. Ég er stolt af því að ÍBV hafi valið mig og svo Stjarnan. Mér finnst Ísland vera heimilið mitt. Ég gerði það að heimili mínu með ykkar hjálp,“ segir hún og hleypur af stað, enda var mikilvægur leikur um kvöldið. Það var viðeigandi að það var leik- ur Stjörnunnar við ÍBV í Eyjum, þar sem Stjörnukonur unnu fræk- inn sigur á ÍBV og komust áfram í átta liða úrslit í Coca-Cola bikarn- um. n Metnaðarfull Þótt Florentina vilji ekki gefa upp öll leyndar- málin sín, er ljóst að hún er afar metnaðarfull og vinnur heimavinnuna sína fyrir leiki. Mynd ÞorMAr VIgnIr gunnArsson „Ég mun hágráta þegar ég fer frá Íslandi „Ég segi liðsfélög- um mínum það líka að þeir verði að trúa og halda í vonina Ekki missa af næsta tölublaði Reykjavíkur vikublaðs þar sem rætt verður við Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi um þorramat.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.