Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 68
Helgarblað 22.–25. janúar 201648 Skrýtið Sakamál
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Lengri og breiðari
parketpLankar
Banaráð í BaðherBerginu
Þ
ess eru mýmörg dæmi að
menn hafi fyrirkomið eig
inkonum sínum í baðher
berginu. George Joseph
Smith er einn sá alræmd
asti þeirra manna, en hann var tví
kvænismaður og fékk dauðadóm
fyrir morð á þremur konum. Málið
var kennt við brúðir og baðkör en
Smith sagði skilið við jarðlífið með
lykkju um hálsinn árið 1915.
Nú víkur sögunni til ársins 1992.
Maður er nefndur Peter Ellis, og var
þegar þarna var komið sögu rúm
lega þrítugur byggingarverktaki.
Um nokkurra ára skeið hafði Ellis
færst of mikið í fang, þó ekki hvað
vinnu áhrærði heldur einkalífið.
Hann hafði lifað tvöföldu lífi; einu
með eiginkonu sinni Lisu, og öðru
með hjákonunni, Mary Francis.
Ellis fannst sem tími væri kom
inn til að skapa Mary meira rými og
þá á kostnað Ann.
Blámi í baðherberginu
Peter og Lisa bjuggu í Cardiff (ekki
að það skipti nokkru máli) á suður
strönd Wales. Allt virtist í stakasta
lagi í fyrirtæki Peters og Lisa hafði
enga ástæðu til að ætla annað en
að allt væri í lukkunnar velstandi
hjá þeim hjónum.
Eitt októberkvöld, 1992, rölti
Lisa, einu sinni sem oftar, upp á
efri hæð heimilis hjónanna og lét
renna í bað. Hún var rétt komin
ofan í baðkarið þegar Peter kallaði
til hennar af neðri hæðinni: „Ertu
komin oní?“
Lisa svaraði að bragði: „Já,“ en
varla hafði hún sleppt þessu eina
orði þegar mikill blámi umlukti hana
og keðjan í tappanum bráðnaði.
Stöðurafmagni kennt um
Með miklum harmkvælum tókst
Lisu að klöngrast upp úr baðkar
inu og öskraði að hún hefði fengið
rafstuð. Eins og góðum eiginmanni
sæmir var Peter á augabragði kom
inn upp til konu sinnar, ekkert
nema blíðmælgin og umhyggjan.
Hann var þó með skýringar á
reiðum höndum, kannski ekki
trúverðugar en skýringar engu
að síður; stöðurafmagn í líkama
Lisu hafði hvort tveggja valdið
blámanum og brætt málmkeðjuna
í tappanum.
Lisa var í áfalli og tók orð Peters
góð og gild, en hann var ekki allur
þar sem hann var séður.
Hann hafði komið fyrir
straumrofa og leitt rafleiðslur úr
eldhúsi sem hann var að standsetja
á efri hæðinni og tengt þær við yfir
fallsrörið á baðkarinu. Hann hafði
síðan hleypt straumi á þegar Lisa
var komin ofan í baðkarið.
Gestur í morgunsárið
Hvort Peter hugði á aðra tilraun
er ekki vitað, en ef sú var raun
in fékk hann ekki tækifæri til þess.
Daginn eftir knúði Mary Francis
dyra. Eftir fjögurra ára samband
var hún búin að fá sig fullsadda af
lítt trú verðugum afsökunum, var
orðin tortryggin og reiðubúin til að
láta sverfa til stáls hvað samband
hennar og Peters áhrærði.
Þennan morgun hittust Lisa og
Mary í fyrsta skipti og upplýsti hjá
konan eiginkonuna um fjögurra
ára framhjáhald Peters og spurði
hvort satt væri að Lisa hefði farið
fram á skilnað.
Lisa kom af fjöllum, en eftir að
hafa skipst á sögum við Mary fór
hún að sjá atburði kvöldsins áður í
nýju og ískyggilegu ljósi – og hafði
samband við lögreglu.
Svimandi há líftrygging
Lögreglan uppgötvaði ídrátt sem
fáir rafvirkjar hefðu sagt fagmann
legan og til að bæta gráu ofan á
svart kom í ljós að Peter hafði líf
tryggt Lisu fyrir 600.000 sterlings
pund og ekki séð ástæðu til að upp
lýsa hana um það.
Peter fékk 15 ára dóm fyrir
morðtilraunina og þrjú ár að
auki fyrir ellefu ákæruatriði sem
vörðuðu þjófnað, falsanir og svik.
Hann hafði ekki aðeins bruggað
eiginkonu sinni banaráð heldur
einnig haft, með svikum og prett
um, 25.000 pund af vinnuveitanda
hjákonunnar. n
n Litlu munaði að Lisa færi yfir móðuna miklu í baðkari n Ellis ætlaði koma henni fyrir kattarnef „Hún var rétt komin
ofan í baðkarið
þegar Peter kallaði til
hennar af neðri hæðinni:
„Ertu komin oní?“
Peter Ellis
Var ekki við eina
fjölina felldur og
vildi losna við
eiginkonu sína.
Í
maí 2010 virtist leikarinn Daniel
Wozniak vera með allt á hreinu.
Hann hafði landað aðalhlut
verki í leikriti sem setja átti á
svið í heimabæ hans í Kaliforníu
og fyrirhugað var brúðkaup hans
og unnustunnar, Rachel Buffet.
Það kom því öllum á óvart, meira
að segja Rachel, þegar Wozniak
var handtekinn fyrir morðið á upp
gjafahermanninum Samuel Kerr og
vinkonu hans, Julie Kibuishi. Fljót
lega kom í ljós djöfullegt eðli leikar
ans en tilgangur morðanna var að
tæma bankareikninga Kerr til þess
að fjármagna brúðkaup Wozniak.
Wozniak skaut fyrst Samuel Kerr
til bana á háalofti leikhúss sem
hann hafði aðgengi að. Hann hlut
aði líkið því næst niður og dreifði
líkamspörtunum um nærliggjandi
útivistarsvæði til þess að ekki væri
hægt að bera kennsl á líkið. Því
næst sendi hann skilaboð til vin
konu Kerr, Julie Kibuishi, úr síma
fórnarlambsins og narraði hana til
þess að aðstoða sig á heimili Kerr.
Þar myrti Wozniak hana með köldu
blóði og gekk frá vettvangi glæpsins
eins og um nauðgun væri að ræða.
Eftir morðin tókst Wozniak að ná
peningum út af af bankareikn
ingi Kerr. Upp komst um ráða
bruggið og leikarinn var handtek
inn nokkrum dögum síðar. Daniel
Wozniak var dæmdur til dauða fyr
ir morðin og bíður fullnustu dóms
ins í San Quentinfangelsinu í Kali
forníuríki. n
ritstjorn@dv.is
Daniel myrti til að fjár-
magna eigið brúðkaup
Djöfullegt ráðabrugg varð tveimur að aldurtila
Daniel Wozniak Viðurkenndi glæpinn
með orðunum: „Ég er geðveikur og ég gerði
þetta“ (e. I'm crazy and I did it“).