Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Page 74

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Page 74
Helgarblað 22.–25. janúar 201654 Menning Krimmi í mýkri kantinum Konan í blokkinni er fyrsta glæpasaga Jónínu Leósdóttur K onan í blokkinni er skáld- saga eftir Jónínu Leósdóttur. Bókin kom út í bókaklúbbi Forlagsins í nóvember og í byrjun janúar kom hún í bókaverslanir. Óvenjulegt er að ný íslensk skáldverk komi í verslanir á þessum tíma, um leið og jólabóka- flóðinu lýkur. „Í byrjun hafði ég smá áhyggjur af tímasetningunni en hef þær ekki lengur,“ segir Jónína. „Bókin er bók mánaðarins í Eymundsson og fær fyrir vikið ákveðna athygli, auk þess sem fáar bækur koma út á þessum tíma.“ Hún segist ekki sakna þess að hafa ekki að þessu sinni tekið þátt í hinu árlega jólabókaflóði. „Það var óskap- lega gott að fá hlé frá upplestrum. Fyrir rúmu ári, þegar ég sendi frá mér skáldsöguna Bara ef..., þá fór ég fjörtíu og tvisvar út úr húsi til að kynna bók- ina, lesa upp og fara í viðtöl. Í nóvem- ber og desember hafði ég engan tíma til að skrifa, var alltaf með næsta upp- lestur í huga. Núna gat ég unnið eins og venjulega þó að jólabóka flóðið væri í gangi. Mér fannst það algjör lúxus.“ Áhugi á mannlegu eðli Aðalpersóna nýju bókarinnar er Edda sem vann í bókabúð en er komin á eftir laun. Önnur kona, Steinunn, sem er mun yngri, er í stóru hlutverki í bókinni, en sú vaknar upp við afar óvenjulegar aðstæður. Þetta er fyrsta glæpasaga Jónínu og hún er spurð af hverju hún hafi ákveðið að skrifa glæpasögu. „Ég hef engan sérstakan áhuga á glæpum en þeim mun meiri áhuga á mannlegu eðli. Af því að fólk er eins og það er þá leiðist það stundum út í glæpi,“ segir hún. „Ég hef einu sinni áður skrifað spennubók. Það var unglingabók sem ég gekk með í tíu ár. Mig langaði til að skrifa bók fyrir ungt fólk sem fjallaði um þunglyndi og sjálfsvígshættu. Ég uppgötvaði loks hvernig ég gæti gert það án þess að foreldrar og afar og ömmur myndu neita að kaupa bókina handa krökkunum og án þess að krakkarnir myndu henda bókinni frá sér. Þetta tókst mér með því að setja bókina í spennuform.“ Aðalpersónan í Konan í blokkinni er Edda, lífleg eldri kona. Það eru ekki margar konur á hennar aldri áber- andi í skáldsögum. Af hverju vildirðu skrifa um konu eins og hana? „Týpur sem eru nokkuð líkar Eddu hafa verið í öðrum bókum mínum en þá sem aukapersónur. Mér fannst oft leiðinlegt að sleppa höndunum af þeim og nú langaði mig til að hafa svona persónu í forgrunni. Ég hef mjög gaman af konum á besta aldri sem eru hressar og kjaft- forar, þykjast vita allt og geta allt. Kannski líkar mér svo vel við þær vegna þess að mig langar til að vera svona týpa. Ég er því miður ekkert lík þeim. Edda er orkumikil og forvitin og leysir gátur en er svolítið afskrifuð út af kennitölunni. Hún varð til í huga mínum áður en ég ákvað að gera bókina að glæpasögu. Smám saman komst ég einfaldlega að því að Eddu hentaði ákveðin spenna. Hún þolir ekki lognmollu og leiðindi, konan. Hún vill hafa fútt í hlutunum. Þetta er þó ekki svæsinn krimmi með miklu blóði og eltingaleik. Þetta er krimmi í mýkri kantinum.“ Einkennileg viðhorf til eldri kvenna Í bókinni kemur fram að viðhorf til eldri kvenna sé oft nokkuð einkenni- legt, það er ekki tekið fullt mark á þeim. Hefur þú sjálf orðið vör við slík viðhorf? „Áhugi fólks á manni minnkar eftir því sem maður eldist, það held ég að margar konur finni. Þegar ég var í blaðamennsku á Nýju lífi skrifaði ég pistil um viðhorf til eldri kvenna og fékk mikil viðbrögð frá konum sem könnuðust við þetta. Í þessari bók er ýmislegt sem við mig langaði til að fjalla um og þá er gott að hafa konu eins og Eddu sem málpípu.“ Sala á bókum í matvöruverslunum fer mjög í taugarnar á Eddu sem sjálf vann í bókabúð. Fer þessi sala líka í taugarnar á þér? „Ég hef gríðarlega gaman af að fara í bókabúðir og mér finnst mikil synd þegar matvöruverslanir fleyta rjómann af bóksölunni í desember. Þessar búðir eru þar að auki ekki með allar jólabækurnar til sölu heldur velja bækur úr og það hefur áhrif á söluna. Mér er annt um bókabúðir, sem sinna bókaunnendum allan ársins hring, og vil ekki að matvöruverslanir gleypi bókasöluna fyrir jólin og skekki mark- aðinn. Á móti kemur að margir kaupa kiljur í matvöruverslunum og þjóð- vegasjoppum og ég get ekki annað en fagnað þeirri þróun.“ Önnur bók um sömu persónu Jónína er atvinnurithöfundur og er spurð að því hvernig það gangi fjár- hagslega. „Ég er vel gift og gæti þetta ekki annars,“ segir hún. „Margir halda að ritstörf séu hið mesta lúxuslíf og ekki síst á þessum árstíma þegar um- ræðan um starfslaun listamanna gýs upp. Á síðasta ári vorum við Jóhanna staddar í búð þegar hún greip tekju- blað Frjálsrar verslunar. Allt í einu sá ég að hún fór að kíma yfir einhverju í blaðinu. Þá hafði hún flett mér upp og henni fannst grátbroslegt að sjá hvað tekjurnar sem ég hafði voru í litlu samræmi við alla mína vinnu. Ég nýt þess að skrifa og vakna snemma á hverjum einasta morgni og sest við tölvuna. Jóhanna hélt að þegar hún hætti að vinna hefðum við nógan tíma fyrir göngutúra og kaffi- húsaferðir en henni finnst sú fram- tíðarsýn ekki alveg hafa ræst. Ég vil helst alltaf vera að vinna.“ Nú er þessi bók komin í búðir. Ertu farin að vinna að næstu bók? „Um leið og ein bók endar þá er ég byrjuð að velta fyrir mér þeirri næstu. Ég ætla að skrifa aðra bók um sömu persónu því það er ýmislegt sem mig langar til að gerist í hennar lífi og í leiðinni leysir hún dularfull mál. Mér finnst gaman að sýna að fólk á hennar aldri er ekki dautt úr öllum æðum.“ n „Edda er orkumikil og forvitin og leys- ir gátur en er svolítið af- skrifuð út af kennitölunni. Hún varð til í huga mínum áður en ég ákvað að gera bókina að glæpasögu. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Jónína „Ég nýt þess að skrifa og vakna snemma á hverjum einasta morgni og sest við tölvuna.“ Mynd ÞorMar Vignir gunnarsson Við látum það berast ERTU MORGUNHRESS DUGNAÐARFORKUR? Leitum að duglegu og ábyrgu fólki til að bera út blöð í þínu nágrenni milli klukkan 6 og 7 á morgnanna. Dreifing fer fram sex daga vikunnar, mánudaga til laugardaga. Ef þetta er eitthvað sem gæti átt við þig hafðu þá samband í síma 585 8330 eða 585 8300. Einnig er hægt að finna upplýsingar á www.postdreifing.is GÖNGUTÚR Á LAUNUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.