Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Page 80
Helgarblað 22.–25. janúar 201660 Menning
Kýrgildi, fjárgildi, manngildi
U
m það bil er áhugaverður
titill á leikverki sem helst
fjallar um fjárgildi hluta
og verðlagningu lífsins,
sem jafnframt gefur í skyn
ómöguleika slíks megindlegs gildis
mats á mannlegri tilveru. Auglýs
ingaspjald sýningarinnar sýnir
þannig leikhópinn í einni bendu á
bak við stærðfræðitáknið um það
bil, þetta er semsé einhver mennsk
klessa sem hægt er að festa sirkabát
verðgildi við.
Hvað miðinn síðan kostar er
þáttur í sýningunni, sem heldur sí
fellt að áhorfandanum þeirri hug
mynd að hann hafi fjárfest í leikhús
ferðinni og að sú fjárfesting sé ekki
arðbær nema tilteknu kvantítafíu
magni af skemmtun sé náð. Hún
veltir á þann hátt upp sambandi
ánægju og fjármagns og gengur
fram af áhorfendum til að tryggja
að ánægjustuðullinn fari fram úr
væntingavísitölunni, ef svo mætti
að orði komast.
Ómanneskjuleg hagfræði
≈ [Um það bil] er klofin í nokkrar ör
sögur úr lífi persóna sem hver um sig
býr við fjárhagslegt óöryggi og ólíkar
þeirra lausnir á eigin vanda. Eftir því
sem líður á sýninguna taka sögurn
ar að tengjast saman svo heildar
myndin verður ljós. Þessi upp
bygging verksins er töluvert lunkin
og þýðing Eiríks Arnar Norðdahl á
texta Jonasar Hassen Khemiri flæðir
látlaust fram, ekki hástemmd held
ur nokkurn veginn eins og fólk talar
í raun og veru á Íslandi samtímans.
Leikmyndin, eftir Evu Signýju
Berger, minnir helst á sundlaug án
vatnsins og vekur verulega óþægi
leg hugrenningatengsl við rúðu
strikaðar stærðfræðibækur, sem
endurspeglast ekki síst í neon
skiltunum sem hanga yfir sviðinu og
minna áhorfendur á línurit, vísitölur
og fyrirtæki auk hinnar ómann
eskjulegu hagfræðijöfnu UX+R+t
sem kjarnar allt þema sýningarinnar.
Sviðsmyndin er fyrir vikið kirfilega
föst í skorðum en með vel staðsett
um dyrum á fjórum stöðum er flæði
leikhópsins tryggt þótt umhverfið
standi í stað, og kannski endurspegl
ar það á vissan hátt hverfulleika hins
mannlega þáttar andspænis rúðum
og jöfnum hinnar fótföstu haglegu
tilvistarkenningar sem vill mæla allt
í peningum.
Forðast uppgjörið
Leikarar sýningarinnar eru hver öðr
um betri í að túlka þennan hryll
ing sem er – þótt spaugilega sé fram
settur – samt sem áður hryllingur.
Guðrún S. Gísladóttir er alltaf góð og
bregst ekki væntingum hér fremur
en áður. Hún er sömuleiðis alltof góð
til að eiga að festast til fram búðar
í hlutverki sérviskulegra gamalla
kvenna, sama þótt hún geri það vel.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
flakkar eins og kameljón á milli
hlutverka, ekki síst með því að skapa
hverri og einni persónu sína eig
in rödd. Í stærsta hlutverki hennar
sem kapítalískt þenkjandi hliðarsjálf
hinnar sjálfbært þenkjandi Margrét
ar er hún hreint óaðfinnanleg.
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Dýr
fjörð, sem leikur Margréti sjálfa, er
sömuleiðis afskaplega sannfærandi í
sínu hlutverki og umbreytingin sem
á sér stað í hennar persónu verður
blátt áfram og látlaus fyrir vikið.
Þar sem sýningin er gagnrýnin á
kapítalisma veit hver einasti áhorf
andi sem er eldri en tvævetra hvert
framhaldið er á sögu Margrétar, en
það framhald fá áhorfendur aldrei.
Þess í stað fá þeir heiminn með öll
um tilheyrandi réttlætingum frá
hennar bæjardyrum séð og það er
annar nýstárlegur eiginleiki sýn
ingarinnar, hvernig hún forðast upp
gjör.
Að bylta kerfinu innan frá?
Sama máli gegnir þannig um
persónu Mána í meðförum Stefáns
Halls Stefánssonar, doktorsnema í
hagfræði, sem sprottinn er af verka
lýðsstétt og vill bylta kerfinu innan
frá. Hann kennir og kennir og bíður
stöðugt eftir fastráðningu við há
skólann, og hér undirstrikar sýn
ingin nokkuð laglega að munurinn
á milli verkamannsins og stunda
kennarans er í raun útmáður. Máni
gerir hvað hann getur til að rífa sig
upp yfir eigin stétt svo hann geti
jafnað stéttakerfið við jörðu innan
frá, en getur ekki horfst í augu við að
jöfnuðurinn kemur úr hinni áttinni
og dregur hann bókstaflega til jarðar
eins og aðdráttaraflið sjálft svo hann
fær ekki umflúið eigin rætur.
Á persónu hans og persónu
Snorra Engilbertssonar, Andrej,
verður raunar skemmtilegur við
snúningur á einum stað og um
leið og sá kemst inn, sem þjóðfé
lagslegrar stöðu sinnar vegna hef
ur ætíð staðið utan kerfis, þá er
hinum varpað út, og þetta er tákn
gert fallega með einu litlu götu
máli af kaffihúsi í atriði sem annars
er eins og blaut tuska. Það er
hér sem bygging verksins er far
in að vinda upp á sig með hvað
skemmtilegustum niðurstöðum.
Krúttlegt og tryllingslegt
Oddur Júlíusson eiginlega
dóminerar stóran hluta sýningar
innar. Hann bara tekur hana yfir og
á hana eftir það. Á sama tíma eru
persónur hans rödd samviskunnar
(Ivan) og tákngervingur ofbeldis
fullrar þjónkunar við valdið (hlé
mælir). Kúnnarnir í sjoppunni eru
hrikalega fyndnir og það er eitthvað
við þessa persónu Casparus van
Houten sem er einlægt og fallegt,
þrátt fyrir að það sé kenning hans
sem er forsenda alls þessa hryllings
spils sem verkið er. Ég hef aldrei séð
leikara áður eins krúttlega fallegan
og tryllingslega óhugnanlegan á
einu augnabliki. Áhrifin verða enn
þá sterkari fyrir það að hann hefur
skömmu áður gengið meðal áhorf
enda í hléi og spjallað við þá með
mestu virktum.
Þröstur Leó Gunnarsson er
snúinn aftur í leikhúsið eftir nokkurt
hlé og mikið fannst mér gaman
að sjá hann. Sem Pétur er persóna
hans ætíð leikin eftir því hver það er
sem er í forgrunni hverju sinni, svo
persónan breytist ört milli sena en
lúrir annars í bakgrunni mestanpart
sýningar og virðist lifa þar eigin lífi
fjarri skarkala söguheimsins.
Merkilegt leikverk
Um það bil er sýning sem leitast við
að spegla áhorfendur með þátttöku
þeirra sjálfra. Hún kannski deilir
ekki beint á kerfið, því írónísk fjar
lægð verksins er ekki á kapítal
ismann sem slíkan, sem verk
ið tekur mjög alvarlega, heldur á
aðstæður persónanna sem þurfa
hver fyrir sig að fóta sig innan kap
ítalismans. Verkið lætur sem það
tali máli kapítalismans og það séu
því persónurnar sem séu firrtar
fremur en kerfið. Það væri áhuga
vert að vita hvernig fólk sem er blint
á íróníu túlkar þessa sýningu, því
hún móralíserar hvergi heldur skil
ur hún fremur eftir sig keim eða að
kenningu af kenningu um réttlæti
sem sennilegast er ýmist fullnægt
eða ekki í lok sýningar eftir því hver
það er sem horfir.
Sjálfum finnst mér niðurstaðan
tiltölulega skýr og eftir því umhugs
unarverð en ég læt öðrum eftir að
dæma fyrir sig. Um það bil er merki
legt leikverk sem ég vona að sem
flestir hafi tækifæri til að sjá og
hugsa um. n
Arngrímur Vídalín
ritstjorn@dv.is
Leikhús
≈ [Um það bil]
Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir
Leikarar: Guðrún Snæfríður Gísladóttir,
Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Oddur Júlíus-
son, Snorri Engilbertsson, Stefán Hallur
Stefánsson, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir,
Þröstur Leó Gunnarsson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Höfundur: Jonas Hassen Khemiri
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl
Sýnt í Þjóðleikhúsinu
Höfundurinn Hinn sænski Jonas Hassan
Khemiri.
„Leikarar sýningar-
innar eru hver
öðrum betri í að túlka
þennan hrylling sem er –
þótt spaugilega sé fram
settur – samt sem áður
hryllingur.
Um það bil jöfn Verkið ≈
[Um það bil] sem sýnt er í Þjóð-
leikhúsinu fjallar um fjárgildi
hluta og verðlagningu lífsins.
Mynd eddi@inTerneT.is
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
FYRIRTÆKJA
ÞJÓNUSTA
Við sækjum og sendum
endurgjaldslaust.
Sparaðu starfsfólki tíma og fjármuni.
Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki.