Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Síða 5
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Ágœtu hjúkrunarfrœöingar
Á þessu hausti hafa stórir atburðir átt sér stað í málefnum hjúkrunarfræðinga á
íslandi. Hér kemur fyrir sjónir ykkar 1. tölublað nýs fagtímarits hjúkrunarfræðinga
sem bæði félög hjúkrunarfræðinga standa að. Næsta tölublað verður hins vegar
gefið út af nýju félagi hjúkrunarfræðinga, þar sem hjúkrunarfræðingar samþykktu
nú á dögunum í allsherjaratkvæðagreiðslu að leggja niður Félag háskólamenntaðra
hjúkrunafræðinga og Hjúkrunarfélag íslands til að stofna nýtt félag hjúkrunarfræð-
inga 15. janúar nk.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mjög góð og meira en 95% þeirra er greiddu
atkvæði svöruðu spurningunni um sameiningu játandi. Þessi niðurstaða sýnir
ótvírætt vilja hjúkrunarfræðinga til að starfa saman í einu félagi.
Nú horfa hjúkrunarfræðingar á íslandi fram til nýrra tíma þar sem áhersla verður
lögð á að byggja upp sterkt fag- og stéttarfélag allra hjúkrunarfræðinga. Samstaða
hjúkrunarfræðinga hefur mikla þýðingu fyrir hjúkrun og hjúkrunarfræðinga. Við
stofnun nýs félags opnast ótvírætt margir möguleikar til að vinna að framgangi
hjúkrunar og mótun heilbrigðisþjónustu í landinu.
Við óskum hjúkrunarfræðingum til hamingju með hið nýja Tímarit hjúkrunar-
fræðinga og óskum tímaritinu og nýju félagi hjúkrunarfræðinga velfarnaðar í
framtíðinni.
Vilborg Ingólfsdóttir, Ásta Möller,
formaður Hjúkrunarfélags íslands formaður Félags háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga
Fyrir greinahöfunda
Stefna
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út
fjórum sinnum á ári, í mars, júní
september og desember.
Það er fyrst og fremst vettvangur fræði-
legrar umræðu um hjúkrun. Jafnframt er
því ætlað að endurspegla fjölbreyttan
starfsvettvang hjúkrunarfræðinga. í tíma-
ritinu eru birtar greinar um hjúkrunar-
störf, nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl
við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar
upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunar-
fræðinga.
Tímarit hjúkrunarfræðinga er ekki vett-
vangur fyrir félags- og sérhagsmunamál
hjúkrunarfræðinga.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og
rekstur blaðsins sé í samræmi við rit-
stjórnarstefnu þess.
Ritnefnd ber ábyrgð á faglegu efni
blaðsins, að það sé í samræmi við rit-.'-
stjórnarstefnu þess.
Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í
að tímaritið sé vandað hvað varðar
málfar, útlit og efni. Áhersla er lögð á að
faglegar greinar standist vísindalegar
kröfur. Þess vegna setur ritnefnd reglur
um það hvernig höfundum ber að skila
efni til blaðsins.
Leiðbeiningar
Greinahöfundar eru vinsamlegast beðnir
um að skila greinum til Tímarits
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík. Skilafrestur rannsóknar-
greina er minnst tveimur mánuðum fyrir
fyrsta þess mánaðar sem næsta tölublað
kemur út í. Skilafrestur annars konar efnis
er samkvæmt umtali hverju sinni.
Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta eða
hafna greinum og jafnframt leita
umsagnar annarra aðila.
Ritnefnd áskilur sér rétt til að setja
greinar upp og aðlaga að útliti blaðsins.
Greinum skal skilað í þríriti hverju sinni.
Endanlegri gerð skal skila á tölvudisklingi.
Hafið 3 sm spássíu vinstra megin og 2 sm
hægra megin á sfðu, tvöfalt línubil, 12
þunjcta letur. Vandið málfar og íslenskið
erlend orð ef það er unnt. Sé um sjald-
gæfa þýðingu orða að ræða skal setja
erlenda orðið aftan við það fslenska í
sviga. Skammstafanir skulu útskýrðar í
fyrsta skipti sem þær koma fram. Myndir
og teikningar skulu vera nægilega skýrar
til að hægt sé að prenta beint eftir þeim.
Heimildalisti takmarkast af tilvísunum í
viðkomandi grein.
Uppsetning greinanna skal vera
samkvæmt reglum ameríska sálfræðinga-
félagsins. Upplýsingar um þær er að flnna
í bókinni Publication manual of the
American Psychological Association og í
íslenskri þýðingu í bókinni Gagnfrœða-
kver handa háskólanemum, eftir Friðrik
H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson.
Um rannsókna- og fræðigreinar gildir
eftirfarandi: Á fyrstu stðu skal koma fram
nafn höfunda(r), starfsheiti og upplýsingar
um náms- og starfsferil. Á annarri sfðu
skal vera titill greinar og stuttur útdráttur
úr efninu. Á eftirfarandi síðum fylgir
greinin uppsett samkvæmt ofangreindum
reglum. Athugið vel að heimildalistar og
tilvísanir séu rétt og vísið skýrt í myndir
og töflur í texta.