Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Side 6
» ■ ■ ilnrwgil I Inl'ITnrmntlTffl
Hjúkrunarfræðingar á Landspítala fagna útkomu
nýs Tímarits hjúkrunarfræðinga og óska þess, að það
megi efla faglega þróun hjúkrunar og auka samstöðu
meðal hjúkrunarfræðinga.
Við óskum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á eftirtaldar deildir:
Handlækningadeild 3 (11 - G)
Lausar verða tvær stöður frá áramótum og tvær frá fyrsta mars.
Handlækningadeild 3 er brjóstholsaðgerðadeild, sem er í örri þróun m.a. vegna fjölgunar
hjartaaðgerða hér á landi. Byrjað var með einstaklingshæfa hjúkrun um miðjan september s.l.
Haldin hafa verið námskeið fyrir nýtt starfsfólk í hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga með góðum
árangri og mun það verða endurtekið í mars. Á námskeiðinu fer fram markviss aðlögun með leiðsögn
reyndra hjúkrunarfræðinga. Jafnframt eru fyrirlestrar einn eftirmiðdag í viku, í 6 vikur.
Nánari upplýsingar veita Lilja Þorsteinsdóttir, í sima 601340, og Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601000/602266.
Skurðdeild
Sérlærður hjúkrunarfræðingur óskast,
einnig eru almennir hjúkrunarfræðingar velkomnir í aðlögun á deildina.
Upplýsingar veitir Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 601000/601304.
Öldrunarlækningadeild
Hjúkrunarfræðingur óskast á deild I.
Upplýsingar veitir Anna Guðmundsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 601000/601304.
Lyflækningadeild - hjartadeild
Deildin er þekkt fyrir gott skipulag og fagmannleg vinnubrögð.
Upplýsingar veita Unnur Sigtryggsdóttir, hjúkrundardeildarstjóri, í síma 601250, og Bergdís
Kristjánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601000/601304.
Barnaspítali Hringsins
Frá áramótum vantar nokkra hjúkrunarfræðinga í eitt ár vegna námsleyfa.
Ennfremur eru lausar stöður á barnadeild 3, 13 - E, handlækningadeild fyrir börn 2-16 ára,
og vökudeild, gjörgæslu nýbura.
Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í sima 601000/601033,
og deildarstjórar viðkomandi deilda.
Gjörgæsludeild Landspítalans
Hefur þú áhuga á lærdómsríku krefjandi starfi? Vegna aukinnar starfsemi vantar okkur fleiri
hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild Landspítala á næsta ári. Góð aðlögun í boði.
Upplýsingar veita Edda Alexandersdóttir, deildarstjóri og Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 601000.
Bráðamóttaka
Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir.
Upplýsingar veitir Gyða Baldursdóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601010,
og Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601000.
Allar deildir bjóða góða og markvissa aðlögun og semja um
ráðningartíma og starfshlutfall.