Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Qupperneq 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Qupperneq 45
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 sem við vorum að gera og tel að við höfum tekið rétta stefnu. Mennt er máttur! Hjúkrunarfræðingar þurftu meiri og fjölbreyttari menntun vegna síaukinna krafna um þekkingu bæði innan sjúkrahúsa og utan. Nú er kominn háskóli á Akureyri þar sem hjúkrunarnám er ein aðalnámsgreina. Það kom í hlut okkar Stefáns B. Sigurðssonar, sem var formaður námsbrautarstjórnar á undirbúningsárum þess skóla, að sitja í nefnd af hálfu Háskóla íslands. Formaður þeirrar nefndar var skólameistari Menntaskólans á Akureyri, þá voru tveir fulltrúar Fjórðungssjúkra- hússins þar og við Stefán. Sú nefnd vann að undirbúningi, m.a. mögulegum tengslum við námsbrautina. Alla pappíra þaðan, námsskrár, stundatöflur og annað, sem ég áleit að koma myndi að gagni, fengu þeir norðanmenn til afnota. Hvað um uppbyggingu heilsugmsiu og heilsugœslustöðva? Ertu sátt við hvernig hefur verið steðið eð þeim máium hár á iendi? Að auka heilsugæslu og koma upp heilsugæslustöðvum, ekki síst úti á landi, var jafnnauðsynlegt og að koma þar upp góðum skólum. Ég tel að mjög vel hafi til tekist með þá uppbyggingu. Menn deila um leiðir og alltaf verður að velja og hafna. Þegar lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi 1. janúar 1974 kom inn ákvæði um nýja skiptingu læknishéraða. Þá voru 55 héraðslæknar í landinu, dreifðir um allt land. Þeir unnu einir og konur þeirra, sem stóðu oft vaktina á meðan þeir voru í vitjunum úti um sveitir, hjálpuðu þeim svo við aðgerðir og móttöku á stofum. Það þarf ekki að taka fram að þær voru launalausar ef frá er talið þakklæti og virðing sveitunga þeirra. í nýju lögunum var landinu skipt í átta læknishéruð og einn héraðslæknir sat í hverju þeirra. Með tilkomu heilsugæslustöðva komu hjúkrunarfræðingar, ritarar og fleiri heilbrigðisstarfsmenn til starfa með læknum. Byggð var upp heilsuvernd: smábarna- og ungbarnavernd, mæðravernd, heilu- gæsla í skólum og heimahjúkrun. Frá mínum fyrstu árum hefi ég tekið þátt í uppbyggingu heilsugæslu og heilsugæslustöðva hér á landi. Ráðuneytinu tókst að byggja upp heilsugæslu- stöðvar út um allt land og nú má segja að heilsugæsla hér sé með því besta sem þekkist í heiminum. Heilsugæslustöðvar í landinu eru nú 81. Það er mjög gaman að taka þátt í þessu uppbyggingarstarfi. Ég vinn mikið með ráðuneytisstjóra, arkitektum og heimamönnum að teikningum fyrir heilsugæslustöðvar, ferðast um allt land og hitti heilsugæslustarfsmenn og stjórnendur stöðvanna. Um þær ferðir og þá samvinnu á ég margar ágætar minningar. Undanfarin ár hefi ég verið formaður byggingarnefndar heilsugæslustöðva í Reykjavík. Þar er mikið starf fram undan, margar heilsugæslustöðvanna í Reykjavík búa við mjög þröngan húsakost og úr því þarf að bæta svo fljótt sem unnt er. Tilheyre dveler- og tyúkrunarheimili eldreðre ekki einnig þlnu sterfssviði? Að hluta til gera þau það. Við vinnum saman að þeim málum Hrafn Pálsson, deildarstjóri, og ég. Við tökum þátt í hönnun nýrra bygginga og breytingum á þeim eldri. Ég fjalla ásamt heimamönnum og starfsmönnum í ráðuneytinu um tækjakaup og mönnun þessara heimila. Kröfur um húsrými, starfsaðstöðu, tæki og þjálfún á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldraðra eru allt aðrar en áður. Þau nýju eru miklu betur búin en þau eldri. Eldri stofnanirnar hafa orðið að fækka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.