Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1998, Page 18
Lilja Þormar
hjúkrunarfræðingur M.Sc., pólunarfræðingur RPP og nuddari
Það færist í vöxt aö hjúkrunarfræöingar læri og beiti aöferöum i
hjúkrunarmeöferö sem flokkast sem óheföbundin meöferö.
Pólun er eitt af þeim sjálfstæðu meðferöarformum sem sumir
hjúkrunarfræöingar hafa tileinkaö sér til að nota i hjúkrun. í
greininni hér á eftir er pólun skilgreind og
hugmyndafræði og aðferðafræði meöferðarinnar lýst.
í nýlegri ráðstefnuhandbók skilgreinir Bandaríska pólunar-
félagið (American Polarity Therapy Association) pólun eða
pólunarmeðferð á eftirfarandi hátt:
Pólun er yfirgripsmikið og heildrænt heilsukerfi sem
felst í vinnu með líkamann byggðri á skilningi á orkusviði
manneskjunnar og nútímaþekkingu á hegðun orku, ákveðn-
um hugmyndum um mataræði, líkamsæfingar og eflingu
sjálfsvitundar. í pólun er unnið með svokölluð orkumynstur
eða rafsegulsvið fólks sem eru tjáð huglægt, tilfinningalega
eða líkamlega. í pólun er litið á heilbrigði sem endur-
speglun af ástandi orkusviðsins og aðferðafræðin miðar
að því að ná jafnvægi á orkusviðinu í því skyni að bæta
heilsu og líðan.
Upphaf pólunar
Kenningar og aðferðir pólunar
voru þróaðar af dr. Randolph
Stone á rúmlega 60 ára tímabili.
Dr. Stone fæddist í Austurríki
árið 1890 og dó á Indlandi árið
1981. Þrettán ára gamall fluttist
hann til Bandaríkjanna þar sem
hann bjó og starfaði að mestu
leyti síðan. Dr. Stone byrjaði feril
sinn sem læknir (osteopath),
varð seinna doktor í hnykkingum
og náttúrulækningum, auk þess sem hann var lærður í
kínverskri læknisfræði og nálastungumeðferð. Hann hafði
mikinn áhuga á andlegum fræðum og kynnti sér öll helstu
hugmyndakerfi um líf og heilsu manna, bæði vestræn og
austurlensk. Leit hans leiddi til þess að hann fór m.a. til
Indlands þar sem hann lagði stund á Ayurveda-lækningar
og jóga. Grundvallarkenningar Ayurveda um alheiminn
höfðu einna mest áhrif á hugmyndir hans um heilsu og
undirrót sjúkdóma og urðu hornsteinninn í hugmyndafræði
pólunar sem hann þróaði með því að samræma vestræn
fræði og vísindi (m.a. nútíma eðlisfræði) og forn
austurlensk fræði. Hann komst að þeirri niðurstöðu að t.d.
snerting, mataræði, hreyfing, tónar, mannleg samskipti,
áföll og margvíslegir umhverfisþættir hefðu áhrif á orkusvið
manneskjunnar. Dr. Stone hefur verið lýst sem einstökum
154
manni, kærleiksríkum og gáfuðum, sem kom til dyranna
eins og hann var klæddur og kunni að búa í líkama sínum.
Grundvöllur allra tengsla í pólun er eins og hann sagði
sjálfur að „til þess að ná til himna þarf að hafa báða fætur
á jörðinni." Hann er sagður hafa náð djúpu sambandi við
það heilbrigða í hverjum manni og það var þessi heilbrigði
kjarni sem hann beindi athyglinni að.
Afstaða til heilbrigðis
í pólun er lögð megináhersla á það heilbrigða í hverjum
manni en ekki einblínt á tiltekin vandamál eða sjúkdóma.
Litið er á hug, tilfinningar og líkama sem eina heild, þ.e.
hugurinn hefur áhrif á tilfinningarnar og líkamann, tilfinn-
ingarnar hafa áhrif á hug og líkama o.s.frv. Einfalt dæmi
um þetta er líkamleg snerting. Hvernig hugur og tilfinningar
bregðast við er undir því komið hvernig snertingin er. Sam-
kvæmt hugmyndafræði pólunar býr hver manneskja yfir
innra heilbrigði eða lífskrafti sem er óumbreytanlegur, þ.e.
innsta eðli okkar eða sálarorkan sjálf er alltaf heilbrigð. Dr.
Stone skilgreindi heilbrigði sem það ástand þegar sálin
, eða sálarorkan getur tjáð sig hindrunarlaust gegnum hug,
tilfinningar og líkama einstaklingsins. Jafnvægi á milli tilfinn-
ingalegs, huglægs og líkamlegs orkustreymis er því grund-
völlur fyrir heilbrigði og vellíðan, en hindrun á því kemur
fram sem líkamlegt eða andlegt ójafnvægi eða sjúkdómur.
Þó að meginmarkmið pólunar sé að virkja heilbrigði
hvers einstaklings þá eru hindranir einnig skoðaðar og
hvaða tilgangi þær hugsanlega þjóna. Með auknu innsæi
og meðvitund um líkamlegt og andlegt ástand sem fólk
fær væntanlega við pólun er oft auðveldara fyrir það að
takast á við hindranir og finna leiðir til sjálfshjálpar.
Hugmyndafræði
Pólunarfræðin skiptast í tvo þætti þ.e. annars vegar hug-
myndafræði eða lífsspeki pólunar og hins vegar aðferða-
fræði sem byggir á því fyrrnefnda. Meginlögmálin í pól-
unarfræðum varpa Ijósi á hvað dr. Stone átti við með
orðinu sál:
1. Innan hvaða kerfis sem er - hvort sem við tölum um
frumeindina eða sólkerfið, alheiminn eða manneskjuna
- er uppspretta orku. Þessi uppspretta eða kjarni ork-
unnar í manneskjunni er það sem dr. Stone kallar sál.
dr. Randolph Stone
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 74. árg. 1998