Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1998, Qupperneq 20
Mynd 1. Flokkun fæðu eftir eðlisþáttum (elementum).
eöa heilsueflandi fæðu og sælkerafæðu, sem betra er að
borða ekki að staðaldri þar sem hún er óþarflega hitaein-
ingarík. Áhersla er lögð á hreina fæðu, helst lífrænt
ræktaða og án aukaefna. Hver og einn verður að finna
hvað hentar sér best. Það sem er einum hollt er ekki nauð-
synlega hollt öðrum. Fæðuráðgjöfin er því mjög einstakl-
ingshæfð (mynd 1).
Líkamsæfingakerfið í pólun, svo kallað pólunarjóga,
felst í tiltölulega einföldum en áhrifaríkum æfingum sem
miða að því að auka orkustreymi líkamans. Mælt er með
að gera daglegar æfingar og hægt er að sérsníða æfingar
eftir þörf (mynd 2).
Einföld æfing og gagnleg:
• örvar orkuflæði almennt í líkamanum.
• góð vöðvateygja.
• opnar mjaðmasvæðið þar sem er mikið af ómeðvituðum
tilfinningum og hjálpar til við losun þeirra.
• slakar á mjaðmasvæði og grindarbotni - mjög gagnleg
æfing á meðgöngu.
• losar um loft í þörmum.
• minnkar þrýsting á spjaldhrygg.
• góð forvörn við bakvandamálum.
• örvar einbeitingu og athygli.
• róandi.
• lengir hásin (mikilvæg viðbragðssvæði við hásin).
• bætir starfsemi ristils.
Mynd 2. Að sitja á hækjum sér - þrjár mismunandi stöður.
ákveðinn fjölda kennslustunda á ákveðnu tímabili. Viður-
Staðlar og menntun kenning frá fagfélaginu er eina tryggingin sem skjólstæð-
Dr. Stone starfaði sem læknir í Chicago og notaði pólun\ ingur hefur fyrir því að meðferðaraðili hafi lokið tilskildum
við margs konar erfið sjúkdómstilfelli með mjög góðum
árangri. Það var algengt að læknar í Chicago sendu sjúkl-
inga sem þeir voru ráðþrota með til hans og undantekning
var ef hann náði ekki árangri. Hann byrjaði að kenna pólun
árið 1960 og hélt því áfram þar til hann var 84 ára gamall
árið 1974. Nemendur dr. Stone héldu áfram kennslu og
rannsóknum á pólun. Árið 1984 komu nokkrir vel þekktir
pólunarfræðingar saman með það fyrir augum að stofna
fagfélag. Bandaríska pólunarfélagið eða „The American
Þolarity Therapy Association" - AÞTA var stofnað. Árið
1989 voru fyrstu staðlar birtir þar sem svið pólunar var
skilgreint og grunnur lagður að menntunarkröfum. Á sama
tíma lagði AÞTA einnig fram mjög vel mótaðar siðareglur.
Félagar AÞTA eru í ýmsum löndum og er félagið að því
leyti alþjóðlegt. AÞTA viðurkennir skv. stöðlum tvenns
konar stig í pólun: Grunnnám í pólun, svokallað AÞÞ stig,
sem er minnst 155 kennslustundir, oftast teknar á 6 mán-
uðum og svo RÞÞ fullnaðarnám sem er í heild minnst 615
kennslustundir. Til þess að halda við viðurkenningu frá
ARTA þurfa þólunarfræðingar að stunda símenntun í
undirbúningi til að stunda meðferðina þar sem engin lög-
gilding er á þessu sviði.
Hér á landi hefur grunnnám í pólun sem leiðir til AÞÞ
viðurkenningar hjá AÞTA farið fram og hafa m.a. tíu
hjúkrunarfræðingar lokið þeim áfanga.
Að lokum, pólun gefur heildræna hugmynd um það
hvernig manneskjan er samsett. Þekkingu á pólunarfræð-
um er hægt að nýta til að dýpka hvaða vinnu sem er á
hefðbundnu og óhefðbundnu sviði heilsueflingar eða
lækninga. Áhugi á pólun meðal fagfólks úr hinum ýmsu
geirum heilbrigðisþjónustunnar hefur sífellt farið vaxandi
enda telja margir að pólunarlíkanið verði hornsteinn orku-
lækninga framtíðarinnar.
Lesefni:
APTA. (1996). Standards for Practice. Bandaríkin: American Polarity
Therapy Association.
Siegel, A. (1987). Polarity Therapy: The Power That Heals. England:
PRISM PRESS.
Stone, R. (1986). Polarity Therapy (1. bindi). Bandaríkin: CRCS
Publications.
Stone, R. (1985). Health Building. Bandaríkin: CRCS Publications.
156
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 74. árg. 1998