Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1998, Blaðsíða 51
ST.JÓSEFSSPlTALI SÍ'íÚ
HAFNARFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
Stjórnunarstaða
Staða hjúkrunardeildarstjóra á
lyflækningadeild spítalans er laus til umsóknar
frá 1. ágúst 1998 eða eftir nánara
samkomulagi.
Á deildinni fer fram fjölbreytt og áhugaverð
starfsemi með áherslu á meltingarsjúkdóma.
Deildin sinnir bráðaþjónustu fyrir Hafnarfjörð
og nágrenni. Þróun í hjúkrun er góð hvað
varðar fræðslu til sjúklinga og skráningu
hjúkrunar.
Áhugavert og skapandi starf í boði.
Æskilegt er að umsækjandi hafi framhaldsnám
og / eða reynslu í stjórnun.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skal skila til
Gunnhildar Sigurðardóttur, hjúkrunarforstjóra,
fyrir 15. júní 1998 og gefur hún nánari
upplýsingar í síma 555 0000.
Handlækningadeild
Laus er 80% staða staða hjúkrunarfræðings
við handlækningadeild spítalans frá
1. september 1998. Við bjóðum upp á
fjölbreytta starfsemi á sviði skurðlækninga,
góða vinnuaðstöðu og notalegan vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur
Dórothea Sigurjónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri
í síma 555 0000.
Speglunardeild
Dagvinna
Laus er 60% staða hjúkrunarfræðings við
meltingarsjúkdómadeild spítalans (göngudeild)
frá 1. september 1998, eða eftir nánari
samkomulagi. í boði er áhugavert starf á deild
sem er í stöðugri þróun hvað varðar hjúkrun,
rannsóknir og vísindavinnu. Gerðar eru
rannsóknir á sviði speglunar,
lífeðlis- og lífefnafræði.
Umsóknum skal skila fyrir 15. júni n.k.
Upplýsingar veita deildarstjórar Kristín og
Ingigerður í síma 555 3888.
Heilbrigðisstofnunin Seyðisfirði
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við
Heilbrigðisstofnunina Seyðisfirði, á sjúkradeild.
Sjúkradeildin er í nýlegu húsnæði þar sem öll
aðstaða til hjúkrunar og umönnunar er mjög
góð. Hluti deildarinnar er afmarkaður, þar
sem vistaðir eru minnisskertir sjúklingar.
Aðalviðfangsefnin eru á sviði öldrunarhjúkr-
unar, en einnig er fengist við margskonar
medisínsk vandamál, bæði bráð og langvarandi.
Næturvaktir hjúkrunarfræðinga eru
bakvaktir, heima.
Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefjandi
starfi, hafðu þá samband við
Þóru, hjúkrunarforstjóra, á sjúkradeild,
í síma 472 1460.
Fallegt og heimilislegt
hjúkrunarheimili í Mjóddinni
Heimilislegt, fallegt hjúkrunarheimili
býður hjúkrunarfræðinga hjartanlega
velkomna til að skoða og starfa.
Óskað er eftir hjúkrunarfræðingum sem hafa
áhuga á skipulagningu hjúkrunar og
líknarmeðferð ásamt lipurð og virðingu í
mannlegum skamskiptum.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær er bæði fýrir
eldri og yngri einstaklinga sem þurfa
sólarhringsumönnun og stuðning við að lifa
farsælu lífi þrátt fyrir fötlun og sjúkdóma.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær gefur starfsfólki
möguleika á að vinna í fallegu umhverfi við
gefandi starf, við að móta nýja starfsemi.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
Skógarbæjar, Rannveig Guðnadóttir,
sími 510 2100.
'&eikugœslusloSin, 19ík
Hjúkrunarfræðingur óskast til
sumarafleysinga á Heilsugæslustöðina
Vík Mýrdal.
Upplýsingar gefur Helga Þorbergsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 487 1180 og 487 1178.
'ísal
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyrí
Hjúkrunarfræðingar
Ljósmæður
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri vantar
Ijósmæður og hjúkrunarfræðinga til
sumarafleysinga og í fastar stöður.
Starfstími og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra.
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi
stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri hjúkrunar,
sími 463 0273.
Droplaugarstaðir
Hjúkrunarfræðingar óskast til
sumarafleysinga og í fastar stöður.
Um er að ræða morgunvaktir / kvöldvaktir
og einnig næturvaktir.
Upplýsingar gefur forstöðumaður,
Ingibjörg Bernhöft, í síma 552 5811.
Þau leyna á $ér fcjúfr
frá
'nmarmmm
o
er
• Heimilislegt útlit
• Rafknúinn lyftibúnaður er falinn í fótum rúmsins
• Rafknúin stilling á 3 af 4 hlutum rúmbotns
• Hljóðlátir rafmótorar
• Neyðarlækkun
• Einfaldur stýribúnaður fyrir hækkun/lækkun rúms
og rúmbotns
• Rafmótorar eru hafðir í „húsum" og vandaður
frágangur samskeyta auðveldar þrif
• Sérlega stöðugt hvort heldur sem það stendur á
fótum eða er á hjólum
• Fellanlegar hliðargrindur
• Rúmið er hægt að hækka í ákjósanlega vinnuhæð.
• Einnig er hægt að lækka það vel niður sem
auðveldar notandanum að komast framúr
A. KARLSSON HF.
Brautarholti 28
105 Reykjavík
P.0. B0X 167
Sími 560 0900
Fax 560 0901
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 74. árg. 1998
187