Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 30
Orlofspunktar og úthlutanír orlofshúsa og orlofsstyrkja
Fyrirkomulag á úthlutun
í kjölfar úthlutunar orlofshúsa og orlofsstyrkja félagsins er
alltaf nokkuð um fyrirspurnir frá félagsmönnum varðandi rétt
til orlofshúsa og úthlutunarreglur. Því skal hér gerð nokkur
grein fyrir helstu þáttum. Félagsmenn ávinna sér 12 orlofs-
punkta á ári. Orlofshúsin kosta 12, 24 eða 36 punkta á viku
eftir tímabili (sjá umsóknareyðublað), orlofsstyrkurinn kostar
36 punkta. Þess misskilnings hefúr nokkuð gætt að til þess að
eiga möguleika á orlofshúsi/orlofsstyrki þurfi menn að hafa
áunnið sér eins marga punkta og það kostar. Svo er hins vegar
ekki heldur fær sá úthlutað sem á inni flesta punkta miðað við
hópinn sem sækir um dvöl á sama stað og á sama tíma. Þetta
gildir einnig um úthlutun orlofsstyrkja.
Ekki er hægt að sjá fyrir fram hverjir fá úthlutað því þar ræður
hvað marga punkta sjóðsfélagi á miðað við aðra umsækjendur.
Við stofnun orlofssjóðsins árið 1994 tók gildi punktakerfi sem
úthlutað er eftir. Hver sjóðsfélagi, sem er aðili að sjóðnum,
ávinnur sér 12 punkta á ári. Sjóðsfélagi er sá sem er starfandi,
og vinnuveitandi eða hann sjálfur, sé hann sjálfstætt starfandi,
greiði samningsbundin gjöld til sjóðsins. Eftirlaunaþegar njóta
allra réttinda eins og starfandi félagar. Yngri sjóðsfélögum og
þeim sem eiga fáa punkta skal bent á að mest aðsókn hefur
verið í orlofsdvöl í júlí, því er auðveldara að fá úthlutað
orlofsdvöl í júni og ágúst.
Fyrir hverja úthlutun eru dregnir frá punktar eins og nánar
kemur fram á umsóknareyðublaðinu. Fyrri úthlutanir koma að
sjálfsögðu til frádráttar hvort heldur hefur verið úthlutað
orlofsstyrk eða orlofshúsi.
Aríðandi er að umsóknum sé skilað inn á réttum tíma. Gildir
einu þótt félagsmenn telji sig ekki hafa fengið umsóknareyðu-
blað í hendur. Umsóknarfrestur er tilgreindur á umsóknar-
eyðublaðinu. Póststimpill gildir. Umsóknir skulu berast til
orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlands-
braut 22, 108 Reykjavík, eða með símbréfi í 540 6401. Ekki
er hægt að sækja um í tölvupósti.
Sá sem fær úthlutað orlofshúsi verður að greiða leiguna innan
þess frests sem tilgreindur er í bréfi eftir að úthlutun hefur
farið fram, annars missir hann úthlutun sína.
Leiga utan venjulegs orlofstíma:
Um eftirtaldar íbúðir gilda aðrar reglur þar sem þær eru ekki
inni í sumarúthlutun heldur falla þær undir þá reglu að hægt er
að panta þær frá 1 degi upp í 7 daga í senn, sjá töflu yfir
skráningu á pöntunum. Áunnir orlofspunktar skerðast ekki.
Ibúð í Sóltúni 9, Reykjavík.
Kvennabrekka í Mosfellsbæ.
íbúð í Furulundi 8d, Akureyri.
Vakin er athygli á því að orlofshús í eigu félagsins eru til
útieigu alla daga ársins, ekki bara um helgar að vetrinum.
Þetta eru:
Orlofshús í Birkilundi 20 og 24 í Húsafelli og Bláskógar
við Ulfljótsvatn.
Þessi hús falla jafnframt inn í hefðbundna sumarútleigu
samkvæmt þeim reglum sem um þá leigu gilda.
Eftirfarandi tafla sýnir hvenær byrjað er að skrá pantanir yfir
vetrarleigu í orlofshús félagsins og íbúðirnar allt árið.
1. janúar - hefst skráning fyrir apríl
1. febrúar - hefst skráning fyrir maí
1. mars - hefst skráning fyrir júní
1. apríl - hefst skráning fyrir júlí
1. mai - hefst skráning fyrir ágúst
1. júní - hefst skráning fyrir september
1. júlí - hefst skráning fyrir október
1. ágúst - hefst skráning fyrir nóvember
1. september - hefst skráning fyrir desember
1. október - hefst skráning fyrir janúar
1. nóvember - hefst skráning fyrir febrúar
1. desember - hefst skráning fyrir mars
Stjórn orlofssjóðs Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga
Hanna I. Birgisdóttir, formaður
Hólmfríður Traustadóttir
Sigríður K. Jóhannsdóttir
Anna Lóa Magnúsdóttir
Guðlaug Traustadóttir
Ásta Sólveig Stefánsdóttir
Sesselja Jóhannesdóttir
30
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002