Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Page 33

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Page 33
Kotabyggð 11, Vaðla- heiði, gegnt Akureyri Húsið er 30 fm. 1 svefnherbergi, stofa og svefnloft. Húsið er 7 km frá Akureyri. Rúm fyrir 6. Sjónvarp, útvarp og kolagrill. Leiga: 10.000 kr. á viku. Umsjónaraðili: Herdís Jóns- dóttir, Vaðlafelli, 601 Akureyri. Lækjarhvammur, hús nr. 8 í Eyjólfsstaðaskógi, Vallahreppi 11 km frá Egilsstöðum. Húsið er 50 fm. 2 svefnherbergi og lokað svefnloft. Rúm fyrir 6 manns og aukadýna. Sjónvarp, útvarp og kolagrill. Leiga: 13.000 kr. á viku. Umsjónaraðili: Magnús Sigurðsson/Sigríður Ólafsdóttir, Úlfsstöðum. Bláskógar við Úlfljótsvatn Eign orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Húsið er 55 fm. 3 svefnherbergi, stofa og svefnloft með 4 dýnum. Rúm fyrir 6 manns. Sjónvarp, útvarp með geislaspilara og kolagrill. Leiga 13.000 kr. á viku yfir sumartímann. Vetrarleiga, sjá upplýsingar um vetrarleigu. Umsjónaraðili: Þjónustumiðstöðin á Úlfljótsvatni. Meðalfell í Hornafirði, risíbúð og miðhæð Meðalfell er 7 km frá Höfn. Húsið er þriggja hæða með 3 fullbúnum orlofsíbúðum. Hver íbúð er með sérinngangi. Orlofssjóðurinn hefur tekið á leigu 3ja herbergja risíbúð og 3ja herbergja íbúð á miðhæð i þessu glæsilega húsi. Miðhæð Miðhæðin er með hjónaherbergi og annað herbergi með kojum. Rúmin eru 5. Svefnsófi er í stofunni og tvær aukadýnur. 9 manns geta gist þarna. Stórar suðursvalir með borði og stólum. íbúðin er búin góðum húsgögnum, sjónvarpi, myndbandstæki, hljómflutningstækjum, uppþvottavél, þvottavél, örbylgjuofni, kolagrilli og tíkallasíma. Næst húsinu er mjög gott leiksvæði fyrir börn. Þar eru einnig bekkir og borð sem hægt er að matast við. Uppi í hlíðinni er kolagrill, borð, bekkir og vaskur, hvergi er betra að njóta kvöldsólarinnar. Hestar, kindur, gæsir og hænsni á aðliggjandi jörðum setja vinalegan svip á umhverfið, líka er mikið fuglalíf við Meðalfell. Sjá nánar: www.medalfell.is Risíbúð í risíbúðinni er hjónaherbergi og annað herbergi með tveimur rúmum. Svefnsófi er í stofunni og tvær aukadýnur. 7-8 manns geta gist þarna. Stórar vestursvalir með borði og stólum. íbúðin er búin góðum húsgögnum, sjónvarpi, myndbandstæki, hljómflutningstækjum, uppþvottavél, þvottavél, örbylgjuofni, kolagrilli og tíkallasíma. Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 78. árg. 2002 33

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.