Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 25
•
VIÐTAL
„Vorum þaulsætnar á alþingi"
Trjáræktir i Önundarfiröi.
hjúkrunarmenntun okkar. Hjúkrunarkvennaskóli
Islands, sem var stofnaður 1931, varð aldrei
gamall, hann var síungur og fylgdist með þróun
erlendis. Flutningur hjúkrunarfræðinnar yfir í
námsbraut í hjúkrunarfræðum við HI var liður í
þeirri þróun. hegar ég lít til baka hefur mér alltaf
fundist áhugavert og skemmtilegt það sem ég er
að fást við hverju sinni. Eg hef enn þá nóg að
gera, stunda heilsurækt, er í hópi kvenna í
KFUK sem heimsækir aldraðar félagskonur."
„María er mjög menntuð kona," segja Lilja Osk-
arsdóttir og Stefanía Sigurjónsdóttir. „Sérstaklega
þegar litið er til þeirra möguleika til framhalds-
menntunar fyrir hjúkrunarfræðinga sem voru fyr-
ir hendi á árunum um og eftir miðja síðustu öld.
Þá hóf hún af sínum alkunna áhuga og dugnaði að
leita sér framhaldsmenntunar og reynslu bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum.
1 minningunni er María litríkur persónuleiki,
skapstór, einstaklega glaðvær og stutt í hláturinn
og áttum við við hana mjög gott samstarf. Enn
þann dag í dag hefur hún brennandi áhuga á
málefnum stéttarinnar og fylgist mjög vel með
allri umræðu í tengslum við fagið. Hún ber með
sér svipmót, andblæ og dugnað sannra Vestfirð-
inga.
Góður maður, sem hitti Marfu fyrir skömmu, sagði að hún væri
elsti unglingur sem hann hefði hitt,“ segja þær Lilja og Stefanía.
Og María Gísladóttir bætir við: „Eg hef kynnst Maríu bæði í
leik og starfi. Eg mundi lýsa henni sem eldhuga, mikilli til-
finningamanneskju og tryggum vin.“
María Finnsdóttir var, eins og áður sagði, gerð að heiðursfé-
laga Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á fulltrúaþingi sem
haldið var 15. til 16. maí 2003. Við rifjum að lokum upp ljóð-
línurnar sem hún flutti við það tækifæri úr ljóðinu „Hjúkrun“
eftir Guðmund Inga Kristjánsson úr ljóðabókinni „Sólfar' en
það hljóðar svo:
Sjúkur var ég.
Brjóstið og þrautir þess
þjáðu mig eins og bogar
með örvum sínum.
Þú varst yfir mér
vakandi, hýr og hress.
Hönd þín
eins og skjöldur á augum mínum.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004
öfum til
jpgJhiúuin ii S&smurss), J-Wuir vtj Ln CíjJíi
Sijjf: ii sírnnúur aj j íjJJíj þjvnus'u.
i-Vúium iansjzJ rajsÉjiú aj iúiusn j3Jaj/J3l:u
I:ral3rj upipiJýsJrjyíjr ar ■jú nnnzj h 'jniijVúu vkltur
^ _ —j, _ 'jJ'jj'jJ.asptejJBÍ
mm
2