Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 37
Fréttamolar... reynslu til að meta hvað ástandið er alvarlegt og taka það oft sem traust og heiður að láta setja sig í vandasöm og ábyrgðarmikil verk eins og að vera einar á næturvakt eða taka marga sjúklinga. En þetta er mjög alvarlegt mál, ekki bara fyrir sjúkl- ingana heldur líka fyrir starfsfólkið. Svava: Það vantar þennan punkt svolítið inn í umræðuna. Að sjá hlutina út frá sjónarmiðum starfsmannsins. Ekki bara þjónusta við sjúklinga heldur Iíðan starfsmanna. Það eru heilmiklar kröfur sem er hægt að gera varðandi aðbúnað og umhverfi. Því miður fer Landspítalinn ekki alltaf eftir því. Það er ekki einu sinni öryggisnefnd á Landspítalanum sem virkar eins og hún á að gera samkvæmt lögum. Lovísa: Mig langar að segja ykkur eitt dæmi um það hversu alvarlegt þetta er. Það hefur verið mikið um yfirlagnir á sumum deildum og rúm hafa jafnvel verið fyrir neyðarútgöngum og brunatækjum. Við fengum heimsókn frá Vinnu- eftirlitinu á síðasta ári inn á tvær deildir á lyf- lækningasviði og áður en þeir komu fóru vakt- mennirnir inn á deildirnar og báðu deildarstjór- ana að koma hlutunum í lag á göngunum. Eg veit að einn deildarstjórinn neitaði því. Það má því spyrja, hvaðan fengu vaktmenn fyrirmæli um að koma hlutunum í sæmilegt lag áður en Vinnueftirlitið kæmi? Katrín: Hvað er verið að fela? Upphaf nýrra tíma Bláa lónið - heilbrigðisþjónusta 7. janúar sl. losuöu Eðvarö Júlíusson, stjórnarformaður Bláa lónsins hf., og Jón Kristjánsson, heilbrigöisráöherra, fyrstu hraunhelluna til marks um aö framkvæmdir við nýja og glæsilega meöferöarstöö fyrir psoriasissjúklinga væru hafnar. Uppbyggingin er sam- vinnuverkefni Bláa lónsins hf. og ís- lenskra stjórnvalda. Um tímamótaverk- efni á íslandi er aö ræða bæöi fyrir heilsutengda feröaþjónustu og þjón- ustu við íslenska húösjúklinga. Bláa lónið hf. hefur rekiö meðferðarstöö fyrir psoriasissjúklinga í Svartsengi frá árinu 1994. Meðferðin hefur hlotiö viðurkenningu íslenskra heilbrigðis- yfirvalda og greiöir Tryggingastofnun ríkisins hlut íslenskra sjúklinga. Frá árinu 1997 hafa heilbrigðisyfirvöld einnig greitt fyrir hlut fslenskra sjúk- linga á Hótel Noröurljósum í Svartsengi til aö auövelda sjúklingum af landsbyggðinni að stunda meðferöina. meöal innlendra meðferöargesta heldur dregur þaö nú aö sér sjúklinga frá Færeyjum og Dan- mörku og greiða viðkomandi heilbrigðisyfirvöld fyrir með- ferö þarlendra sjúklinga. Vin- sældir meðferöarinnar hafa aukist mikiö á undanförnum árum. Fjöldi meðferöartíma jókst úr 2000 áriö 1994 i 6585 árið 2003. Auk þess að njóta vinsælda meðal innlendra meöferöargesta dregur Bláa lóniö nú að sér með- ferðargesti frá ólíkum heimshornum. Gestir koma frá 18 þjóðlöndum, bæði grannlöndum í Norður-Evrópu sem og fjarlægum löndum eins og Tælandi. Meöferöarstööin verður tekin í notkun voriö 2005. www.bluelagoon.is Blaa lóniö nýtur ekki eingöngu vinsælda Lovísa: Gangalagnir. Það er margt í því. Elsa: Maður heyrir og sér í blöðum að sjúklingar skrifa og segja að allir séu á hlaupum og hvernig sé hægt að auka álagið á þetta fólk. Ég velti fyrir mér hvort við séum komin í þá stöðu að sjúkling- ar bíði með að láta vita af einhverju vandmáli, verkjum eða einhverju, vegna þess að þeir telja að starfsfólkið hljóti að hafa einhverju enn mikilvæg- ara að sinna. Þannig að það liggi inni á spítalan- um og híði með að kalla eftir aðstoð vegna þess að það sér að það eru allir á hlaupum, a.m.k. eldra fólkið sem ekki kvartar eins, ég hef það grunað um að bíða eins lengi og það þolir stundum. Þorbjörg: Það er ekki óalgengt að fólk bíði og haldi að næsti sjúklingur sé veikari og þurfi meira á þjónustunni að halda. Ég var að lesa á- Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um samdrátt í þjónustu LSH Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfrœðinga (Fih] lýsir þungum áhyggjum af samdrœtti í þjónustu og fyrirhuguðum uppsögnum starfsfólks á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Rannsóknir hafa sýnt að fagleg þekking og fjöldi sér- hœfðra heilbrigðisstarfsmanna hefur bein áhrifá gœði heilbrigðisþjónustu. Lengi hefur skort hjúkrunarfœðinga til starfa á LSH. Fœkkun þeirra nú mun þvi án efa rýra gœði þeirrar hjúkrunarþjónustu sem veitt er á sjúkrahúsinu, og þar með er öryggi sjúklinga stefnt í hœttu. Lokun bráöamóttöku og einstakra deilda leiðir til þess aö sjúklingar fá síður þjónustu sérhæföra hjúkrunarfræðinga. Hætta er á aö sérfræðiþekking sem byggst hefur upp á löngum tíma glatist. Stjórn Fíh hvetur stjórnvöld til aö endurskoða fjárveitingar til Landspítala háskólasjúkrahúss og bíöa meö sparnaðarkröfur þar til nefnd sem nú vinnur að skilgreiningu á hlutverki sjúkrahússins hefur lokið störfum. Samþykkt á fundi stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 26. janúar 2004. Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.