Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 41
HRINGBORÐSUMRÆÐUR Mistök í heilbrigöisþjónustunni Katrín Pálsdóttir: „Mér finnst furöulegt aö ekki skyldi vera byrjaö á þvi aö byggja upp hjúkrunarheimili, þaö er búiö aö segja þaö í 2 eöa 3 ár aö inni á sjúkrahúsunum eru yfir 100 manns sem eiga ekki heima þar. En þaö er ekkert gert i þvi." Lovísa: Ég tek undir það. Ég held að það hafi meiri áhrif á gæði þjónustunnar en fólk sá fyrir í upp- hafi. Við erum núna byrjuð að súpa seyðið af því að það er algjör einokun á þessum vettvangi, bæði gagnvart faglegri þróun starfsfólksins, þ.e. starfs- mannastefnu, og gæðum gagnvart sjúklingunum. Katrín: I þessu umhverfi er fólk svolítið hrætt, það mun ekki fara að tilkynna um mistök eða nærmistök sem hafa orðið á sinni deild, fólk fer að passa sig. Jórunn: Það má bara ekki gerast. Það þarf að taka á þessu. Katrín: Fólk er óöruggt. Eins og staðan er núna ber starfsmaðurinn ekki mikið traust til stjórn- enda, það hafa orðið svo miklar breytingar á stutt- um tíma og það er langt frá því að þeim sé lokið. Svava: Fjöldi erlendra starfsmanna í heilbrigðis- þjónustunni eykur einnig líkur á mistökum. Það sem þyrfti að gera varðandi erlenda starfsmenn í heilbrigðisþjónustunni er að taka ákvörðun um hversu margir mega vera miðað við þá sem tala íslensku því það er einnig aukaálag á starfsfólk að sinna þeim. Það þarf að ákveða þetta hlutfall. Lovísa: Þetta endurspeglar svolítið gæðahugsun á sjúkrahúsinu að það skuli vera hægt að hafa fólk í ræstingu og sem starfar við það að færa sjúklingum mat sem ekki talar orð í málinu. Elsa: Þetta getur átt sök á hluta af mistökum því það er hægt að færa fólki t.d. dísætan djús sem er með sykur- sýki eða eitthvað álíka. Það þarf ekki að vera flókin læknis- fræðileg meðferð sem hefur áhrif á heilsu sjúklingsins. Svava: Þetta eykur mjög mikið álag á alla starfsmenn. Valgerður: Tími okkar er á þrotum. Mig langar að Ieggja loka- spurningu fyrir ykkur allar. Hvað sjáið þið í fljótu bragði að gæti aukið gæði þjónustunnar og komið í veg fyrir mistök í framtíðinni? Lovísa Baldursdóttir: „Ég held þaö þurfi aö hrista þetta kerfi algjörlega upp frá grunni. Ég held t.d. aö Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gæti komiö að þvi máli og talað fyrir hönd sjúklinga og sinna félagsmanna um að það yrði gerður algjör uppskurður á sjúkrahús- inu." Þorbjörg: Mér finnst það sem Danir og Bandaríkjamenn eru að vinna í, þ.e. að koma á lögum um skráningu, athyglivert. Meg- ináherslan í því er að ekki sé leitað að blórabögglum heldur reynt að draga úr mistökum í samvinnu við starfsmenn, sjúkl- inga og aðstandendur. Ég held að það sé tímabært að við skoð- um eitthvað svipað, hvort Iög þarf til veit ég ekki. I Bandaríkj- unum verður öllum sjúkrahúsum gert að skrá öll óhöpp frá ár- inu 2006. Danir eru að tala um eitthvað svipað. Ég held, ef við náum því að ræða þetta á þeim nótum, að það sé nauðsynlegt að skoða öll mistök og að við vöndum okkur við það, ekki til að negla einhvern heldur til að læra af og til þess að draga úr mis- tökum, þá verði skráning þeirra betri. Við þurfum að nálgast málið faglega og af innsæi. Lovísa: Það þarf nýja hugsun í sambandi við gæði og réttindi sjúk- linga og starfsmanna. Ég veit ekki hvort það hefði nokkuð upp á sig að setja ný lög í sambandi við þetta núna, þau yrðu bara þver- brotin eins og lög um réttindi sjúklinga. Ég held það þurfi að hrista þetta kerfi algjörlega upp frá grunni. Ég held t.d. að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gæti komið að því máli og talað fyrir hönd sjúklinga og sinna félagsmanna um að það verði gerður al- gjör uppskurður á sjúkrahúsinu. Við getum litið til Bandaríkjanna og skoðað það sem Danir eru að gera, þeir hafa tekið sig saman, Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.