Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 13
 GREIN Skóli Félags íslenskra hjúkrunarkvenna það er nú náttúrulega mikið afþví að hennslan hefur verið í molum en mikil vinna heimtuð af þeim (Fíh B/2 1, bréffónu Guðmundsdóttur dags. 15.2.1931). Jóna hafði einnig á orði að „dönsku mömmurnar“ teldu íslenska hjúkrunarnema sjálfráða og þvera og fullyrti að þau skapgerðareinkenni gengju undir samheitinu „Islendingseðlið" hjá stéttar- systrum þeirra Sigríðar í Danmörku. Gagnrýni á hjúkrunarnám félagsins Brottfall hjúkrunarnema úr námi var forystu Fé- lags íslenskra hjúkrunarkvenna nokkurt áhyggju- efni. Félagið hafði skuldbundið sig til að útvega sjúkrahúsum nema en þá skyldu var erfitt að uppfylla þegar margir nemar hurfu frá námi. Stjórnarkonum var hins vegar legið á hálsi fyrir að gera of litlar kröfur til hjúkrunarnema. Christophine Bjarnhéðinsson átaldi þær til að mynda fyrir að stöðva ekki heilsulausa og óhæfa nema sem væru ekki færir um að stunda hjúkr- un (Margrét Guðmundsdóttir, handrit). En framvinda náms hjúkrunarnema hvildi í raun á handleiðslu hjúkrunarkvenna og lækna sem þeir störfuðu hjá á námstímanum. Stjórn félagsins hafði ekki bein áhrif á námsmat eða hæfnisdóma enda höfðu stjórnarkonur sjaldnast forsendur til að úrskurða um einstaka nema. Forystukonur félagsins glímdu einnig við gagn- rýnisraddir sem töldu fullmiklar kröfur gerðar til hjúkrunarnámsins. Spjótin stóðu úr öllum áttum á stjórn félagsins vegna hjúkrunarnámsins. Sigríð- ur Eiríksdóttir stóð í miðri orrahríðinni. Flún bar hitann og þungann af skipulagi námsins og eng- inn hafði betri yfirsýn en formaðurinn. I árslok 1930 gengur hún fram fyrir skjöldu og leggur mat á hjúkrunarnámið á Islandi í tímariti félagsins. Sigríður fullyrðir að námið hafi ekki verið „eins á- kjósanlegt og skyldi" en vill með greininni leggja sín lóð á vogarskálar umbóta. Hún hendir á að umsagnir forstöðukvenna erlendu sjúkrahúsanna, sem tekið hafi við hjúkrunarnemum félagsins, séu oftast „mjög lélegar". Þær staðhæfi: að nemamir, að nokkrum undanskildum, kunni bók- staflega ekhert í hjútkrun þegar þær koma frá Islandi. Auk þess stendur málið (danska, norska) þeim flestum svo fyrir þrifum, aðfyrstu mánuðina er ekki þorandi að trúa þeim fyrir einfaldasta starfi upp á eigin spýtur, af óttafyrir því, að þær hafi ekki skilið það, sem sagt hef- ir verið við þær (Sigríður Eiríhdóttir, 1930). Sigríður fullyrti að hjúkrunarnemar væru misnotaðir á sjúkra- húsum landsins enda væru þeir bæði „ódýrari og mun hent- ugri“ vinnukraftur en starfsstúlkur og lærðar hjúkrunarkonur. Kennslan væri í molum vegna þess hve fáliðuð sjúkrahúsin væru. Nemar væru að jafnaði við vinnu 12 tíma á dag. A þeim tíma væru þeir svo ofhlaðnir störfum að ekki gæfist færi á að Ieiðbeina þeim að ráði og hjúkrunarkonurnar hefðu þar að auki sjaldnast stund til að sinna kennslunni sökum vinnu- álags. Sigríður taldi brýnt að draga úr vinnuálagi á sjúkrahús- unum með því að fjölga starfsfólki og skapa þannig aukið svig- rúm fyrir kennslu og nám innan þeirra. Gagnrýni Sigríðar verður að meta í ljósi þess að hún og aðrir forystumenn félagsins voru að þrýsta á yfirvöld heilbrigðis- mála að setja á fót hjúkrunarskóla í tengslum við væntanlegan landsspítala. Ekki verður þó dregin fjöður yfir þá vankanta sem voru á því námi í hjúkrun sem félagið skipulagði. Hjúkr- unarnemar voru vissulega misnotað vinnuafl á sjúkrahúsum landsins en sú var einnig raunin í Danmörku og víðar (Win- gender, 1999). Skortur á þjálfun á almennum sjúkrahúsum stóð hjúkrunarnáminu fyrir þrifum á íslandi. Sjúkrahúsin á Akureyri, Isafirði og í Vestmannaeyjum, þar sem nemarnir fengu starfsþjálfun, voru lítil og á þeim fjölgaði berklasjúkl- ingum stöðugt. Hjúkrunarnemar á Islandi fengu því töluverða þjálfun í umönnun berklasjúklinga en höfðu iðulega takmark- aða reynslu af almennum sjúkradeiidum. Bókleg kennsla í hjúkrunarfræði var auk þess lítil og sat iðulega á hakanum vegna vinnuálags á undirmönnuðum sjúkrastofnunum. En pottur var víða brotinn í bóknámi hjúkrunarskóla á þriðja ára- tugnum bæði í Noregi og Danmörku. Félag íslenskra hjúkrunarkvenna var í fararbroddi í baráttunni fyrir því að koma á fót þriggja ára hjúkrunarnámi hér á landi og stuðlaði öðrum fremur að því að fullmenntuðum hjúkrun- arkonum fjölgaði verulega á þriðja áratugnum. An þeirra hefði orðið illmögulegt að hefja rekstur Landspítalans í árslok 1930 en starfsemi hans gjörbreytti öllum aðstæðum til hjúkrunar- náms á Islandi. Margrét Guðmundsdóttir er sagnfræðingur og vinnur mí við það að rita sögu hjúkrunar á Islandi 1898 til 2000. Heimildaskrá Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Skjalasafn (Fíh): B/1 2, bréfaskipti 1927-1929. B/1 3, bréfaskipti 1927-1929. E/13 umsóknir um hjúkrunarnám B/2 1, bréfaskipti 1929-1932; Margrét Guömundsdóttir. Saga hjúkrunará islandi. Handrit. Margrét Jóhannesdóttir (1950). Minningarorö. Jóhanna Knudsen, fyrrv. yfirhjúkrunar- kona. HjúkrunarkvennablaðiO 26:3, bls. 2-4. Sigriður Eiriksdóttir, 1930). Ábyrgö íslenskra hjúkrunarkvenna og lækna gagnvart hjúkr- unarnáminu. Timarit Féiags islenskra hjúkrunarkvenna 6:3 nóvember, bls. 1-3. Wingender, Nete Balslev (1995). Fem svaneri flok. Sygeplejerskers Samarbejde i Norden. Árhus. Wingender, Nete Balslev (1999). Firkleveret og ildsjœlene. Dansk Sygeplejeráds historie 1899-1999. Bind I. Árhus. Þjóðháttadeild Þjóöminjasafns islands (ÞÞ). 8772, 8778, 9310 Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 80. árg. 2004 1 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.