Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 43

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 43
Fréttamolar... Námsstyrkir í boöi Umsóknarfrestur til 15. apríl 2004. Norræn geðhjúkrunarráðstefna í Þrándheimi Dagana 2.-4. september 2004 veröur 7. norræna geðhjúkrunarráöstefnan haldin í Þrándheimi í Noregi. Yfirskrift ráðstefnunnar aö þessu sinni er: Rann- sóknir, fagþróun og verkefnavinna við geðhjúkrun; framfarir eða blekking? Auglýstur er til umsóknar styrkur úr Minningarsjóði Hans Adolfs Hjartarsonar fyrir áriö 2004. Tilgangur sjóösins samkvæmt skipulagsskrá er aö styrkja hjúkrunarfræðinga til frekara náms og eins til ferðalaga í sambandi viö félagsmál. Stjórn sjóðsins hefur ákveðiö að veita styrkinn til framhaldsnáms í hjúkrun. Umsóknir sendist stjórn Minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar, skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga, Suöurlandsbraut 22, 108 Reykjavík fyrir 15. apríl 2004, með sem fullkomnustu upplýsingum um hvernig umsækjandinn hyggst nota styrkinn. Auglýstur er til umsóknar styrkur úr Minningarsjóði Kristínar Thoroddsen fýrir áriö 2004. Tilgangur sjóösins er aö veita verölaun hjúkrunarfræöingum sem skara fram úr í námi og sýnt hafa sérstaka hæfileika til hjúkrunarstarfa. Sjóðurinn veitir einnig styrki til framhaldsnáms í hjúkrun. Umsóknir sendist stjórn Minningarsjóös Kristínar Thor- oddsen, skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suöurlandsbraut 22, 108 Reykjavík fyrir 15. apríl 2004, meö sem fullkomnustu upplýsingum um hvernig umsækjandinn hyggst nota styrkinn. Auglýstur er til umsóknar styrkur úr Rannsókna- og vísindasjóði hjúkrunarfræðinga áriö 2004. Tilgangur sjóösins er aö styrkja hjúkrunarfræðinga til rannsókna- og vísindastarfa í hjúkrunarfræöum hér á landi. Styrk- veiting miöast viö stuöning á öllum stigum rannsókna. Ekki er veitt úr sjóönum i tengslum viö nám. Umsóknir sendist stjórn Rannsókna- og vísindasjóöi hjúkrunarfræðinga, skrifstofu Félags islenskra hjúkr- unarfræðinga, Suöurlandsbraut 22, 108 Reykjavík fyrir 15. apríl 2004, meö sem fullkomnustu upplýsingum um hvernig umsækjandinn hyggst nota styrkinn. Sjónum verður beint aö rannsóknarumhverfinu, hvernig og hvers vegna þaö varö til. Eru þetta framfarir, blekking eöa „nýju fötin keisarans" og höfum við yfirleitt sameiginlega sýn á rannsóknir og fagþróun í geðhjúkrun? Norrænu geðhjúkrunarsamtökin, PSSN, voru formlega stofnuö 1994 og eru samvinnustofnun Norðurlandanna nema Finnlands. Markmið félags- ins er aö miðla upplýsingum um geöhjúkrun og geöheilbrigöismál milli landanna, koma á tengslum milli geöhjúkrunarfræðinga og halda norræna geðhjúkrunarráðstefnu þriöja hvert ár. Stjórn félagsins er skipuð einum félaga úr fagdeild geðhjúkrunarfræöinga hvers lands, fulltrúi íslands er Guöbjörg Sveinsdóttir. Stjórnin hittist aö minnsta kosti einu sinni á ári, aðalstarf hennar er skipulagning ráöstefn- unnar og á henni gefur stjórn skýrslu um störf sín. Eg hvet alla sem starfa viö geðhjúkrun aö reyna aö komast á ráðstefnuna i Þrándheimi næsta ár, efniö ætti aö koma okkur öllum viö, samræöur um þróun geðhjúkrunar eru mikilvægar og áleitnar. Fyrir utan þaö er alltaf gott aö vikka sjóndeildarhringinn og fá tengsl við aöra í faginu, borgin er fögur og skemmtanalíf hiö besta. Meöal fýrirlesara eru Phil Barker, Trond Hatling og Uffe Juul. Fulltrúar ís- lands verða þau Bergþóra Reynisdóttir og Páll Biering. Dagskráin verður send út i febrúar 2004. Guöbjörg Sveinsdóttir, gudsve@mi.is og vin@redcross.is Áhættureiknivél Hjartaverndar Áhættureiknivél Hjartaverndar er byggö á gögnum úr Hóprannsókn Hjarta- verndar sem hefur staöiö frá 1967 eöa í meira en 35 ár. Tengill á vélina er á nýrri heimsíðu Hjartaverndar, www.hjarta.is. Viö gerð reiknivélarinnar var stuöst viö mælingar á 19381 þátttakanda, 9323 körlum og 10058 konum. Margir þessara þátttakenda hafa komið oftar en einu sinni og er samanlagður fjöldi allra heimsókna 36768! Mælinganiöurstööur þátttakenda Hóprannsókn- innar hafa leitt í Ijós hverjir eru helstu áhættuþættir kransæöasjúkdóma hjá ís- lendingum. Framlag þeirra er ómetanlegt því annars hefðum viö aöeins erlend- ar niðurstöður til aö byggja forvarnir okkar á, en hver þjóö hefur sín sérkenni. Á www.hjarta.is kemurfram aö markmiðið meö reiknivélinni er: „aö auka vit- und fólks um áhættuþætti kransæðasjúkdóma og hvernig hægt er aö hafa á- hrif á þessa áhættu meö breytingu á áhættuþáttunum.1' Á síðu reiknivélarinn- ar eru tveir dálkar undir fýrirsögnunum mæld gildi og viðmiö. Byrjaö er á aö velja kyn og aldur og er svo stutt á hnappinn sem er merktur viðmiö. Birtast þá í gluggum reiknivélarinnar meðalgildi þekktra áhættuþátta kransæðasjúk- dóma úr rannsóknum Hjartaverndar. Síöan setur notandinn inn þau gildi sem hann þekkir undir mæld gildi og styður á hnappinn reikna áhættu. Birtast þá tvær prósentutölur til samanburðar. Talan fyrir ofan mæld gildi á viö líkur not- andans á aö fá kransæðasjúkdóm en talan fyrir ofan viömið á viö líkur við- miösins. Viömiðunartöluna má túlka sem meðaláhættu einstaklings afsama kyni og aldri sem reykir ekki og er hvorki meö sykursýki né þekkjast kransæöa- sjúkdómar i ættinni. Viömiðadálkinn má líka nota á annan hátt. Hægt er aö hugsa sér aö setja einstaklingnum markmið. Hvaö gerist ef honum tekst að lækka kólesteról, blóöþrýsting og þyngd? Hvaö gerist ef hann hættir aö reykja? Meö því aö reikna út áhættuna frá nýjum viðmiöum og bera saman viö mæld gildi má sýna fram á árangur meöferöar ef markmiöin nást. Aö þessu leyti er reiknivélin öfiugt tæki til fræöslu og forvarna. Timarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.