Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 50
Framhaldsnám wi(í hjúkrunar DIPLOMANÁM í HJÚKRUNARFRÆÐI Námsáriö 2004-2005 verður boðið upp á þrjár námsleiðir, allar til 20 eininga á meistarastigi. Inntökuskilyrði: B.S.-próf í hjúkrunarfræði (lágmarkseinkunn 6,5) eða samsvarandi próf. Sjá nánar á vefsíðu hjúkrunar- fræðideildar www.hi.is/nam/hiukrun/ Flest námskeið í diplomanáminu eru opin þeim sem lokið hafa B.S.-prófi, þrátt fyrir að viðkomandi sé ekki skráður í það nám. Lágmarksfjöldi í hverri námsleið er 15 nemendur. Námið er hægt að stunda samhliða vinnu. Námsleiðir: 1. Diplomanám í geðhjúkrun Með þessu námi gefst hjúkrunarfræðingum á íslandi kostur á að auka klíníska færni og fræðilega þekkingu á sviði geðhjúkrunar. Tilgangurinn er einnig að efla áhuga nemenda á því að auka menntun sína enn frekar, til dæmis með meistara- og doktorsnámi. Lögð er áhersla á þekkingu og þjálfun í að meta geðheilsu og hjúkrunarþarfir einstaklinga, fjölskyldna og hóþa, beitingu einstaklingsviðtala og fjölskyldu- eða hóþmeðferðar. Heilsugæsluhjúkrunarfræðingum er sérstaklega bent á námskeiðin: Geðheilsugæsla samfélagsins I og II, og Geðheilsumat og geðhjúkrunargreining. Haust 2004 Einstaklings-, fjölskyldu- og hóþmeðferð (8e) Vor2005 Geðheilsugæsla samfélagsins I (3e) Taugalíffræði og geðlyfjafræði (3e) Haust 2005 Geðheilsugæsla samfélagsins II (3e) Geðheilsumat og geðhjúkrunargreining (3e) 2. Diplomanám í hjúkrun fullorðinna [ þessari námsleið er kennt með áherslu á hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga, aðgerðasjúklinga, bráðveikra og gjörgæslu- sjúklinga. Námið veitir hjúkrunarfræðingum tækifæri til að dýpka þekkingu, skilning og færni á hjúkrun fólks með einkenni frá hjarta og lungum, gjörgæslusjúklinga, aðgerðasjúklinga og bráðveikra einstaklinga. í náminu erfjallað um sameiginleg viðfangsefni í hjúkrun þessara sjúklingahópa, jafnframt því sem sérstaða hvers sviðs er dregin fram. Að námi loknu hafa nemendur öðlast sérhæfða þekkingu á einkennum og þörfum tiltekins sjúklingahóps og geta veitt fjölbreyttar og yfirgripsmiklar hjúkrunarmeðferðir og metið árangur þeirra. Haust 2004 Aðferðir (2e) Heilsufarsmat (2e) Vor2005 Sjúkdómamiðuð lífeðlisfræði og meðferð (4e) Haust 2005 Fjölskylduhjúkrun (3e) Haust 2005 / Vor 2006 Hjúkrun fullorðinna (6e) í þessu námskeiði verða samkenndar 4-5e fyrir nemendahópinn en sérkenndar að hámarki 2e, á sviðum hjarta- og lungna- sjúklinga, aðgerðasjúklinga, bráðveikra og gjörgæslusjúklinga. Valnámskeið (3e) Klínisk þjálfun er ekki hluti af þessu diplomanámi en athugað verður með samstarf við Landspítaia-háskólasjúkrahús um skipulega starfsþjálfun í tengslum við námið fyrir nemendur í gjörgæslu- og bráðahjúkrun. Við námslok öðlast nemendur diploma í hjúkrun hjarta-, lungna-, aðgerða-, gjörgæslu- eða bráðveikra sjúklinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.