Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 42
mörg fagfélög, og ætla sér að vinna í þessum málum. Ég held líka að starfsandinn inni á þessari stofnun, það er ákveðin skoðana- kúgun, fólk þorir eldd að koma fram opinberlega og ræða um mál stofnunarinnar, ef það er gert þá fær það bágt fyrir. Það er hluti af þeirri enduruppstokkun og þeim breytingum sem þarf að vinna að þannig að allir hafi kjark til að berjast fyrir sína skjólstæðinga og geri það. Fólk gerir það ekki í dag vegna þess að það vill ekki fara á svartan lista eða fara í órólegu deildina eins og sumir tala um. Þetta er ekki eðlilegur starfsandi sem við vinnum í, þessi starfs- andi er ekki til þess fallinn að auka öryggi sjúldinga eða styrkja fólk í því að tala fyrir munn sinna skjólstæðinga. Elsa B. Friöfinnsdóttir: „Þaö er ótrúleg sú staða sem viö erum í núna að þaö er buið aö þröngva þjóðinni í að hugsa fyrst og fremst um heilbrigðisþjónustuna út frá peningalegu sjónarmiði, að fjárlög séu einu lögin sem gilda um heilbrigðisþjónustuna." um heilbrigðisþjónustuna. Það er algjörlega óþol- andi að horfa á sama tíma á öryggi sjúklinga minnka verulega og það á trúiega eftir að versna enn. Ég tala nú ekki um gæðin og við leyfum okk- ur að eyða öllum þessum fjármunum skattborgar- anna án þess að hafa neitt til að meta hversu vel við nýtum fjármagnið, hvaða gæði koma út úr því sem við erum að gera og hvort við náum einhverj- um markmiðum sem við eigum auðvitað að hafa sett okkur, en við höfum alls ekki gert það. Það má því alveg eins setja hin gleraugun upp og segja, þetta er ómögulegt kerfi því við notum alla þessa peninga markmiðalaust og gæðamatslaust í raun- inni. Ég tek því undir það, að við þurfum á vissan hátt að ná að snúa við og byrja upp á nýtt. Jórunn: Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir að hafa boðið fulltrúa Éífsvogar hér á þennan fund. Ég er sammála ykkur í einu og öllu og ég hef einmitt verið að hugsa um þegar verið er að segja upp svona mörgu starfsfólki og hjúkrunarfræðingum, nægar eru skýrslutökurnar um einn sjúkling, hvernig verður þetta þá núna, ég er mjög hrædd um það álag sem mun skapast. Það hlýtur að verða óöryggi, segjum ef eitthvað gerist og sjúkl- ingur þarf að fara í mál og pappírarnir ekki (lagi, það þarf að passa allt. Ég þakka fyrir mig og gangi ykkur vel. Svava: Já, ég held það skipti mjög miklu máli að vekja athygli á því álagi sem er á starfsmönnum, bæði á Landspítalanum og annars staðar, og gera það þá á faglegan hátt, ekki bara að kvarta og kveina heldur meta með mælitækjum það álag sem er á fólki og gera það reglulega til að finna Ieiðir til forvarna í því. Ein leið- in er að halda reglulega starfsmannafundi þar sem starfsmenn geta tjáð sig og upplýsingaflæði er betra og hafa á dagskrá í byrj- un funda starfsmannamál eða eitthvað sem hefur komið upp á deildinni og það sé alltaf á dagskránni, það sé reglubundið kerfi þar sem fólk getur hist og rætt málin. Það er alltaf verið að tala um tímaskort en það er mjög mikilvægt og sparar tíma að hafa smáfundi, fundurinn á að vera mjög stuttur, 20 mínútur eða hálftími, þar sem farið er yfir málin og hann á að vera á sama tíma og á sama vikudegi. Og gera mælanlegar viðhorfskannanir hvernig fólki líður og hvernig málin ganga. Elsa: Ég tek undir með Lovísu, ég held það þurfi gagngera upp- stokkun á hugsun bak við kerfið og þá var ég ef til vill meira að hugsa ekki bara innan spítalans heldur líka almennt. Það er ó- trúleg sú staða sem við erum í núna að það er búið að þröngva þjóðinni í að hugsa fyrst og fremst um heilbrigðisþjónustuna út frá peningalegu sjónarmiði, að fjárlög séu einu lögin sem gilda Katrín: Ég er mjög sammála þessu, að það þarf að verða mjög mikil uppstokkun á kerfinu í heild, bæði innan sjúkrahúsanna og utan. Ég hef miklar áhyggjur af því að það verði enn þrengt að hjúkr- uninni á spítalanum og ég hvet okkur til að standa vörð um það því ég held að þessar þrengingar, sem við erum í núna, eigi eftir að verða meiri, þetta sé bara byrjunin. Ég vil endilega að við skoðum þetta og hvernig stjórnskipulagið á spítalanum á að verða. Það skiptir geysilega miklu máli og við sáum á læknadögum skrif um hvað það væri mik- ill sparnaður að gera fleiri aðgerðir fyrir utan sjúkrahúsin, þar talaði danskur maður um sjúkra- hús sem var rekið af 270 læknum og það voru 70 hjúkrunarfræðingar sem unnu þar, maður getur velt fyrir sér hvernig sjúkrahús það sé. Valgerður: Þakka ykkur fyrir, það var frábært að fá ykkur hingað. Timarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 80. árg. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.