Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Qupperneq 2

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Qupperneq 2
Hjartamagnýl, Töflur: B01AC06 L/0 Virk innihaldsefni: Asetýlsalisýlsýra 75 mg og magnesíum oxíð 10,5 mg. Ábendingar: Segavarnandi lyf: Fyrirbyggjandi gegn blóðtappamyndun. Fyrirbyggjandi hjá sjúklingum með hjartaöng og hjartadrep. Minnka líkur á heilablóðfalli og tímabundnum blóðþurrðareinkennum frá heila (transient ischemic attacks). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærðir handa fullorðnum: 75-150 mg daglega. Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi gegn salisýlötum og virkt magasár. Blæðinga- sjúkdómar. Astmi. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Líkur benda til að tengsl geti verið milli Reyes syndrome og asetýlsalisýl- sýrugjafar hjá börnum með veirusjúkdóm. Lyfið er ekki ætlað börnum. Milliverkanir: Lyfið eykur virkni díkúmaróls og annarra blóðþynningar- lyfja. Lyfið dregur úr virkni próbenesíðs. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið fer yfir fylgju.Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum og er því ekki mælt með notkun á meðgöngu. Hjartamagnýl skal alls ekki nota síðustu 3 mánuði meðgöngunnar nema læknir hafi ráðlagt það. Ekki skal nota Hjartamagnýl síðustu 5 dagana fyrir væntan- lega fæðingu. Lyfið berst í brjóstamjólk en verkun á barnið er ekki talin líkleg. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Ofnæmi. Astmi. Einkenni frá meltingarvegi, jafnvel sárá magaslímhúð. Ofskömmtun: Einkenni ofskömmtunar eru suð fyrir eyrum, heyrnardeyfð, höfuðverkur, svimi, órói og hraður andardráttur eins og af öðrum asetýlsalisýlsýru- lyfjum. Lyfhrif: Asetýlsalisýlsýra hefur verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi áhrif. Verkanir lyfsins byggjast að talsverðu leyti á minnkaðri myndun ákveðinna prostaglandína. Asetýlsalisýlsýra blokkar einnig myndun efnisins tromboxan í blóðflögum, veldur þannig minnkaðri samloðun þeirra og lengir blæðingartíma. Lyfjahvörf: Lyfið frásogast frá maga og smágörnum og nær blóðþéttni hámarki eftir 40-60 mínútur. Asetýlsalisýlsýra klofnar hratt í salisýlsýru og er helmingunartími í blóði um 30 mínútur. Við venjulega skammta er próteinbinding salisýlsýru 80% og helmingunartími í blóði 2-4 klst. Ef dagsskammtar eru stærri en 3 g, lengist helmingunartíminn verulega. Salisýlsýra og umbrotsefni hennar skiljast að mestu út um nýru. Pakkningar: Hjartamagnýl 75 mg, 50 töflur. (23.12.03) actavis hagur i heilsu

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.