Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Page 5
FORMANNSPISTILL
Hjúkrun aldraöra
I heilbrigðisáætlun til ársins 2010, sem sam-
þykkt var samhljóða á Alþingi 20. maí 2001,
er eitt af sjö forgangsverkefnum málefni eldri
borgara. Fjögur meginmarkmið eru sett fram í
tengslum við málefni þeirra. Hið fyrsta er að
„bið eftir vistun á hjúkrunarheimili fyrir fólk,
sem er í mjög brýnni þörf, verði ekki lengri en
90 dagar" (bls. 7). Þess er getið að á því ári,
sem miðað er við í áætluninni, þ.e. árið 1997,
var meðalbiðtími eftir hjúkrunarrými í Reykjavík
267 dagar. Annað meginmarkmið heilbrigðis-
áætlunarinnar varðandi þennan málaflokk er að
„yfir 75% fólks 80 ára og eldra sé við svo góða
heilsu að það geti með viðeigandi stuðningi búið
heima“ (bls. 7). A viðmiðunarárinu 1997 bjuggu
28,1% fólks 80 ára og eldra á stofnunum.
Undanfarna mánuði hefur mikið verið fjallað
um aðbúnað aldraðra, einkum á öldrunarstofn-
unum. Segja má að morgunvakt ríkisútvarpsins
hafi riðið á vaðið með umfjöllun sem byggð var
á rannsókn tveggja heimspekinga varðandi sjálfs-
forræði íbúa á hjúkrunarheimilum. Umfjöllunin
hefur síðan tekið á sig ýmsar myndir, allt frá
málefnalegri umræðu á Alþingi og í fjölmiðlum
yfir í æsifréttamennsku á síðum dagblaðs eins.
Fjallað hefur verið um búsetuskilyrði á hjúkrun-
arheimilum, fjárhagslegt sjálfsforræði aldraðra,
öryggi, hjúkrunarþjónustu, mistök eða óheppileg
atvik í þjónustunni, rekstarframlög til hjúkrunar-
heimila og fleira.
Eg tel að þó að hjúkrunarfræðingar eigi helst
að beita sér í öllum þessum þáttum öldrunar-
þjónustunnar eigi þeir að leggja megináherslu
á hjúkrunarmönnun á öldrunarstofnunum og
að hinum öldruðu séu sköpuð mannsæmandi
búsetuskilyrði.
I ágúst 2001 gaf Landlæknisembættið út lítið
rit undir heitinu Hjúkrunarmönnun á öldrunar-
stofnunum: Abendingar Landlæknisembættisins.
Elsa B. Friöfinnsdóttir
Þó ritið láti lítið yfir sér er þar að finna
mikilvægar upplýsingar. Þar er m.a. bent á
að niðurstöður RAI-mats árið 1998 sýndu
Elsa B. Friöfinnsdóttir . . .
að meirihluti heimilismanna a öldrunar-
stofnunum þurfti aðstoð eins eða tveggja
starfsmanna við athafnir daglegs lífs, 79% við að klæðast,
83% við persónulegt hreinlæti og 67% til að fara á salerni.
Góð hjúkrunarmönnun er þessu fólki nauðsynleg. I riti
Landlæknisembættisins eru sett fram mönnunarlíkön fyrir
sólarhringsþjónustu á misstórum hjúkrunarheimilum/-deild-
um. I öllum tilfellum er lagt til að hjúkrunarfræðingur sé
á vakt að nóttu. Eg nefni þetta sérstaklega í ljósi þeirra
breytinga sem átt hafa sér stað hér á landi varðandi mönnun
á öldrunarstofnunum þar sem æ algengara virðist vera að
hjúkrunarfræðingur sé einungis á bakvakt, jafnvel heima, á
næturnar. A bls. 14 í umræddu riti segir: „Engir tveir ein-
staklingar hafa sömu þarfir og sömu vandamál og eins getur
ástand og líðan breyst frá einni stund til annarrar. I þessu
tilliti þarf hjúkrunarfræðingur ávallt að vera til taks til að
meta slíkar breytingar og taka afstöðu til þess hvernig best
sé að bregðast við þeim.“ Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á
gæðum hjúkrunarþjónustunnar og eiga ekki að skipuleggja
eða samþykkja að heilu vaktirnar séu skipulagðar án þess að
þær standi hjúkrunarfræðingur.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur upplýst í ræðu á
Alþingi að nær þúsund aldraðir einstaklingar deili nú herbergi
með öðrum á dvalar- og hjúkrunarheimilum landsins. Er þá
ekki átt við þá sem deila herbergi með maka eða sambýlis-
manni/-konu. I máli ráðherra kom einnig fram að nú eru um
3100 einstaklingar í dvalar- eða hjúkrunarrýmum hér á Iandi.
Nær þriðjungur þeirra þarf sem sagt að sætta sig við að deila
herbergi með öðrum, líklega oftast ókunnugum einstaklingi.
Þetta er algjörlega óviðunandi ástand og mikilvægt að gera
gangskör að því að tryggja öllum íbúum öldrunarstofnana rétt
á búsetu í einbýli. Við hjúkrunarfræðingar eigum að vera í
fararbroddi í þessari vinnu. Við þekkjum hvað best aðstæður
aldraðra, hvað þarf að bæta og hverjar þarfirnar eru. Við
eigum að beita okkur fyrir því að markmið heilbrigðisáætlunar
til ársins 2010 nái fram að ganga. Sú kynslóð, sem nú býr á
öldrunarstofnunum landsins, er kynslóðin sem lagði grunninn
að því velferðarsamfélagi sem við búum við í dag og á ekki
annað en það besta skilið.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 81. árg. 2005