Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2005, Qupperneq 41
Fréttamolar...
saka karla í hjúkrun og er að vinna að rannsókn
á vegum jafnréttisnefndar Háskóla íslands, ætlar
að tala við þá sem hafa verið við nám á þriggja ára
tímabili, þá sem féllu frá námi eftir innritun, þá
sem skráðu sig í nám og mættu aldrei og þá sem
enn eru við nám og kanna hvaða árangri ímynd-
arátakið skilaði meðal þessara karla.
Þórður bendir á að í Afríkuríkinu Benín séu um
98% hjúkrunarfræðinga karlar. „Þar er það mikil
virðingarstaða að vera hjúkrunarfræðingur, lítið
um að konur sæki sér framhaidsmenntun en karl-
arnir fara flestir í hjúkrunarfræði því hjúkrunar-
fræðingur er eitthvað það flottasta sem nokkur
maður getur orðið.“
I ritgerðinni bendir Þórður á að eðlishyggja hafi
einkennt hugmyndir Vesturlandabúa um hlut-
verk kynjanna, en hún felur í sér að eiginleikar
eru skilgreindir sem eðli karla eða kvenna og
séu sameiginlegir öllum konum og öllum körl-
um á öllum tímum. Mannfræðin hafi þó leitt
í Ijós margbreytileika kynhlutverka víðs vegar
um heiminn. Þannig hafi Margaret Mead t.d.
fjallað um þrjú samfélög á svipuðu svæði á jarðar-
kringlunni þar sem hugmyndir um kynin eru
mjög mismunandi. Meðal Tchabuli-fólks voru
konurnar ágengar og sjálfstæðar en karlarnir sátu
úti í horni og stunduðu listsköpun. Hjá Arapesh-
fólki voru bæði karlar og konur í hlutverki nær-
gætins uppalanda, en bæði kynin sýndu mikla
hörku gagnvart öllum meðal Munugumor-fólks.
Og hjá Agta-fólkinu á Filippseyjum er nær algert
jafnræði milli kynjanna, þar stunda bæði konur
og karlar veiðar, safna plöntum, veiða fisk og
stunda vöruskipti. Mestu hugsuðir vestrænnar
heimspeki, svo senr Aristóteles, hafi þó sett fram
hugmyndir um eðli kynjanna sem lifi greinilega
áfram.
Þórður segir algengara í öðrum löndum en Islandi
að menn fari í hjúkrun af hugsjón eða séu með
því að mótmæla hefðbundum gildum í samfé-
laginu. „Mér finnst það afskaplega undarlegt að
hjúkrun og kvenleiki skuli vera sett á sama bás
og það sem fælir marga menn frá því að fara í
hjúkrun er að þá fá þeir á sig hommastimpil,"
segir hann að lokum.
Nýtt fyrirtæki Liösinni-Solarplexus
1. nóvember sl. stofnuöu Liösinni ehf. og Solarplexus ehf. nýtt fyrir-
tæki, Liðsinni-Solarplexus ehf. Hiö nýja fyrirtæki byggist á því starfi
sem Liðsinni ehf. og Solarplexus ehf. hafa fram aö þessu stundað en
bæöi eru þau brautryðjendur á sínu sviði. Liðsinni hefur rekstrarleyfi
frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu á sviöi heilbrigðisþjón-
ustu og Solarplexus varð fyrst fyrirtækja til að hljóta viöurkenningu
Vinnueftirlits ríkisins til að veita heildstæða þjónustu á sviði öryggis- og
heilbrigðismála á vinnustöðum.
Fyrirtækið mun áfram bjóða stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum
krafta sérvalinna hjúkrunarfræöinga en eftirspurnin eftir þeirri þjónustu
endurspeglar þá áralöngu manneklu sem veriö hefur í hjúkrun. Auk
þeirrar reglulegu þjónustu, sem fyrirtækið hefur veitt til hefðbundinna
hjúkrunarstarfa, hafa ýmis önnur sérstök verkefni komið til kasta fjöl-
hæfra hjúkrunarfræðinga fyrirtækisins, s.s. hjúkrun keppenda í þátta-
röðinni Amazing Race, bólusetningar við inflúensu í samstarfi við Lyfju
hf., bólusetningar og rannsóknarverkefni hjá Alcan og fleira og fleira.
Starfsfólk Liðsinnis-Solarplexus leggur mat á heilsu og vellíöan hvers
starfsmanns, svo sem starfsaðstöðu, samskipti, verklag og samspil vinnu
og einkalífs. Á grundvelli matsins er hægt aö bæta starfsaðstæður
hvers og eins og forsendur skapast til að ákveða í hverju stefna fyrir-
tækisins eigi að vera fólgin að þessu leyti. Umbótastarfinu er fylgt eftir
meö heimsóknum, námskeiðum og samvinnu allra sem að því standa.
Fyrirtækið leggur því mikla áherslu á náið samstarf viö aðrar fagstéttir,
svo sem lækna, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, sálfræðinga, arkitekta, innan-
hússarkitekta og hönnuði.
Með því að sameina krafta fyrirtækjanna munu þessir þjónustuþættir
efldir og stefnt á nýja markaöi. Þá er það mat eigenda fýrirtækisins aö
fram undan séu ný tækifæri í heilbrigðisþjónustu með auknu einkafram-
taki og þar mun Liðsinni-Solarplexus láta til sín taka.
Anna Sigrún Baldursdóttir er framkvæmdastjóri hins nýja félags og
Lovísa Ólafsdóttir markaðs- og fagstjóri. Eigendur eru Anna Sigrún
Baldursdóttir, Ásta Möller, Lovísa Ólafsdóttir og VSÓ-ráðgjöf. Allir starfs-
menn Solarplexus og Liðsinnis munu starfa áfram hjá nýja félaginu.
Ný heimasíða Liðsinnis-Solarplexuser www.lsp.isog aðsetur í Borgartúni
20, Reykjavík.