Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 7
Tímarit
hjúkrunarfræðinga
í 80 ár
Tíminn er fljótur aö líöa. Mér finnst ekki svo
langtsíðan ég hóf störf sem ritstjóri tímaritsins
hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræöinga í
formannstíö Ástu Möller, en þaö eru nú
orðin sjö ár og tveir formenn setiö til viö-
bótar, þær Herdís Sveinsdóttr og nú Elsa B.
Friðfinnsdóttir.
A þessum tíma hefur tímaritið breyst þó nokkuð
í efnisvali og útliti eins og gengur en tilgangurinn
með því að ráða blaðamann og þjóðfélagsfræðing
sem ritstjóra var að nýta þá þekkingu og reynslu
til útgáfunnar. Víst er að tímarit sem þetta þarf
að vera í eilífri endurskoðun til að verða við þeim
kröfum sem gerðar eru til þess. Nú hefur í fyrsta
sinn verið gerð lesendakönnun en niðurstöður
hennar verða birtar í fyrsta tölublaði næsta árs
sem kemur út í byrjun mars.
Sumir eru á þeirrar skoðun að dagar tímarits sem
þessa, sem gefið er út 5 sinnum á ári, séu taldir
þar sem unnt er að koma upplýsingum á framfæri
á netinu á mun styttri tíma. Flestar tækninýjungar
hafa haft í för með sér spádóma um að eldri miðlar
væru þar með í dauðateigjunum. Þannig var því
spáð að menn hættu að lesa bækur þegar þeir
fóru að geta horft á kvikmyndir svo dæmi sé nefnt
en bækur hafa svo sannarlega haldið velli. Það er
auðvitað alltaf innihaldið sem skiptir meginmáli
og sérstaða bókar eða í þessu tilfelli tímarits.
Sérstaða Tímarits hjúkrunarfræðinga á að mínu
viti að felast í kjarna starfsins, miðla þekkingu
og reynslu hjúkrunarfræðinga. Kjarni hjúkrunar
er að mati Florence Nightingale „nærvera sem
er á æðra stigi en venjuleg mannleg nærvera,
hún felur í sér heilaga vitneskju um það sem
skapar, viðheldur og skipuleggur alheiminn og
meðvitund þeirra sem hjúkra um innra samspil
þeirra við þennan æðri mátt.“ Nightingale leit
á andlegt atgervi sem hluta af mannlegu eðli og
dýpsta og máttugasta úrræði til lækninga.
Hún taldi hjúkrunarmeðferð byggjast á þeirri list
að aðstoða sjúklingana til að þroskast andlega.
RITSTJÓRASPJALL
Valgeröur Katrín Jónsdóttir
Nightingale benti enn fremur á að umhyggja fyrir sálinni getur
aldrei verið aðgreind frá líkamanum. Hjúkrun í sinni bestu
mynd byggist því á innri hvöt þeirra sem hjúkra, andlegri
ástundun og þjónustu við mannkynið.
Ef tímarit hjúkrunarfræðinga byggir á þroska sem þessum á það
að mínu viti líf fyrir höndum og getur „hjúkrað" samfélaginu,
bent á mikilvæg gildi, heildræna nálgun hvort sem er innan
heilbrigðiskerfisins eða á víðari grundvelli. Þannig getur það
verið í fararbroddi í tæknivæddri veröld og bent á önnur gildi
en þau sem aðrir miðlar eru uppteknir af. Til að unnt sé að
skapa slíkt tímarit þurfa allir að vinna saman að sameiginlegri
sýn og sama marki.
Valgeröur Katrín
Jónsdóttir
Gleðileg jól!
BEDCO & M4THIESEN EHF
Bæjarhraun 10 - Hafnafjörður
Sími 565 1000 - bedco@bedco.is
Timarit hjukrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005