Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 24
Vilmundur Jónsson fv. landlæknir segir á einum stað í skrifum sínum um hjúkrunarkonur, en hann var öflugur stuðningsmaður stéttarinnar: „Það er aðdáunarvert hve vel þær hafa séð hag sínum borgið.“ Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að byggja á góðum efnahagslegum grunni. „Það var mikill ávinningur fyrir hinar ungu konur, sem komu úr Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, að koma til okkar og fá þá aðstöðu sem við höfðum búið okkur með blóði, svita og tárum," segir hún og rifjar upp húsakaup félagsins í Þingholtsstræti og svo á Suðurlandsbraut en þá var lagður skattur á alla félagsmenn til að unnt væri að kaupa húsnæðið. Pálína var formaður í forföllum Sigþrúðar þegar tekið var við húsnæðinu á Suðurlandsbrautinni. „Ingibjörg Gunnarsdóttir og maður hennar unnu hér baki brotnu við að koma húsnæðinu í lag, við héldum veglega veislu og buðum fyrrverandi forseta, frú Vigdísi Finnbogadóttur, hún var búin að gefa marga muni úr búi móður sinnar og Sigríðarstofa varð til.“ Mikilvægi heilsugæsluhjúkrunar Mestan hluta starfsævi sinnar vann Pálína við heilsugæsluhjúkrun. Hvernig fannst henni að koma aftur að vinna eftir námið í Danmörku? 22 „Ég var ung og óþolinmóð og vildi breyta ýmsu og helst átti það að gerast strax, einkum þó breytingar í heilsugæslunni. Ég er örgeðja og eins og ungu fólki er tamt, allt átti að gerast með miklum hraða. Vinkonu minni einni leist ekki á hvernig ég lét og bremsaði mig svolítið af, gerði mér grein fyrir að allt þarf sinn tíma og sagði mér að taka þessu Hún segir heilsugæsluhjúkrun veigamikið starf. „I Danmörku voru heilsugæsluhjúkrunarkonur mjög virtar í sínu starfi, þær unnu mjög sjálfstætt, það eru engir heilsugæslulæknar í Danmörku og mjög vel hlúð að hjúkrunarfræðingunum. Þær eru ekki ráðnar til starfa nema hafa gengið í gegnum framhaldsnám. Hér hafa læknar og barnahjúkrunarfræðingar borið mikla ábyrgð. Heilbrigðisstarfsmenn koma inn á öll heimili á jákvæðan hátt og möguleiki er til að sjá fjölskylduna í réttu ljósi. Það eru margir sem búa við mikla eymd og volæði og sumir vildu ekki fá okkur inn til sín, tengdu okkur gjarnan við Barnaverndina." Timarit hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005 Elsa Friöfinnsdóttur, formaður félags- ins, sagöi m.a. um forsendur fyrir vali félagsins á Pálínu sem heiðursfélaga: „Pálína hefur veriö mjög virk í félags- störfum fyrir hjúkrunarfræðinga. Hún hefur setiö í fjölda nefnda og ráöa fyrir hjúkrunarfræðinga, var varaformaöur Hjúkrunarfélags íslands frá 1983 og formaður frá 1986-1988. Pálína hafði forystu í uppbyggingu trúnaöar- mannakerfis hjúkrunarfélagsins og var formaður trúnaðarráös. Hún var afar virk í norrænu samstarfi. Pálína er nú formaður öldungadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún er einnig formaður minjanefnar félagsins og hefur undanfariö haft forystu um að koma upp hjúkrunarsafni." Hún segir marga hafa búið í mjög lélegu húsnæði, braggahverfin voru t.d. við lýði þegar hún fór að starfa upp úr 1960. Skömmu síðar voru byggðar blokkir til að rýma braggana og fólk var mjög ánægt með að fá húsnæði þar. „Þetta voru góðar íbúðir og það breytti fólki að flytja í þær því það fyrirvarð sig fyrir húsnæðið sem það hafði búið í. Þegar ég byrjaði að vinna í ungbarnaeftirlitinu vann ég í Vesturbænum og það voru ekki allt glæsilegar íbúðir, fólk bjó oft í kjöllurum eða á háaloftum. „Þetta var oft ungt fólk sem hafði lítið á milli handanna og kunni oft lítið að fara með peninga. Einni ungri stúlku man ég eftir sem var með tvö börn og sagðist ekki eiga fyrir mat handa þeim. Þegar ég horfði í kringum mig sá ég tvo soðna sviðakjamma í umbúðum frá verslun, ræddi þá svolítið um hvernig best væri að haga innkaupum, síðan hafði ég milligöngu um að Félagsmálastofnun athugaði hvað væri hægt að gera fyrir þessa fjölskyldu. Þegar ég fór svo að starfa í Breiðholtinu við ungbarnaeftirlit voru flestir í góðum íbúðum og inni var gott loft. Þar bjó fólk sem hafði ekki mikil fjárráð en það var eymdin í sálarlífinu sem var öllu verri. Við unnum í góðu sambandi við Félagsþjónustuna í Reykjavík sem þá hét félagsmálastofnun. Ég man að þegar ég var að alast upp var heilmikið af fátæku fólki en það var ríkt í andanum, las bókmenntir, hlustaði á tónlist og menntaði börnin sín þrátt fyrir fátækt. En nú eru margir fátækir í anda og efni og börn, serrl alast upp við slíka fátækt, hafa ekki tækifæri til að meta menningu eða listir.“ Hún rifjar upp samræður við eina móðurina sem kvartaði yfir lélegum fjárhag. Þegar þær settust niður og reiknuðu út bætur hennar voru þær mjög nálægt því að vera sama upphæð og Pálína fékk fyrir fulla vinnu. „Þetta var oft spurning um að kunna að fara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.