Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 51
PALLBORÐSUMRÆÐUR Heildræn meöferö Siguröur Guömundsson Guðrún Agnarsdóttir Erna Haraldsdóttir Jón Eyjólfur Jónsson Christopher Johns HaukurIngiJónasson lifa gæðalífi sem yrði enn betra með heildrænni meðferð sem sinnti öllum hinum margvíslegu þörfum hvers einstaklings þegar hann veikist. Eg held því að skynsamlegt heilbrigðiskerfi feli líka í sér heildræna meðferð. Þú spyrð líka hvort heildræn meðferð sé framkvæmanleg. Ég held að hún ætti að vera gerleg en eins og Sigurður sagði snýst það öðru fremur um viðhorf, rökræður og afstöðu. Ekkert okkar vill hverfa frá hátæknileiðum nútímalæknisfræði vegna þess að þær leiðir gætu læknað sjúkdóminn í raun. En á meðan á ferlinu stendur höfum við þörf fyrir meira en bara þær , leiðir vegna þess að við erum meira en bara þetta eina líffæri. Ég svara því játandi, ég held að þetta sé framkvæmanlegt. Chris: Þakka þér fyrir. Hvað segir þú um þetta, Haukur Ingi? Haukur Ingi: Þar sem ég sit hér skynja ég sjálfan mig sem margvíða heild. Ég er ekki aðeins efnafræðilegt fyrirbrigði eða prótínaklasi heldur upplifi ég mig líka sem eitthvað annað og meira. Ég er t.d. eins og vél eða gangverk og ef þarf að lækn mig í þeirri vídd þarf að skera mig upp. Eigi ■ , að lækna efnafræðilegt ójafnvægi í mér þarf ég að taka lyf. En víddirnar eru fleiri. Ég lifi líka í líffræðilegu umhverfi. Ég þarf að drekka vatn og anda að mér hreinu lofti og hreyfa mig. Ég lifi líka í sögulegu samhengi. Ég var t.d. í New York 1. september síðastliðinn og sú reynsla krafðist sérstakrar meðhöndlunar. Ég er líka siðfræðileg og andleg vera. Mér finnst að ég lifi í sögu sem nær langt út fyrir mitt stutta líf og ég verð einhvern veginn að finna viðmið mín í þessu stóra samhengi. Og ég get haldið áfram. Ég lifi líka í fjárhagslegri vídd og ég held að hin fjárhagslega hlið hafi nú orðið mikil áhrif á skilning okkar á heilbrigði og heilsugæslu. Með hliðsjón af öllu þessu held ég að þegar ég veikist verði ég að nálgast veikindi mín frá mismunandi sjónarhornum. Ég: kynni vel að meta að fá smávegis aðstoð frá sérfræðingum á hinum ýmsu sviðum lífsins sem ég hef nefnt hér að framan og var reyndar að koma frá endurskoðandanum mínum í morgun og ég get þurft að nýta mér hann í veikindum mínum. Þetta hjálpar okkur að skilja að heilbrigði er margslungið fyrirbæri sem er ekki aðeins bundið við eina vídd eða við starfsemi heilbrigðiskerfisins eins. Heildstæð sýn á heilbrigði skiptir því öllu máli í heilsugæslu. Er heildstæð sýn framkvæmanleg innan núverandi heilbrigðiskerfis? Ég hugsa að svarið við spurningunni falli utan minnar þekkingar. Ég held að það sé nauðsynlegt að reyna vegna þess að hvað heilsuna okkar varðar þá sést okkur yfir eitthvað sem er mjög mikilvægt. Við verðum að leita margháttaðra leiða til að vera heilbrigð, nýta okkur forvarnir og að hrinda þeim í framkvæmd bæði í einkalífi okkar og samfélaginu öllu og ekki aðeins einblína á heilbrigðiskerfið í; þeirri viðleitni. Þetta er það fyrsta sem mér dettur í hug sem svar við þessari spurningu. Chris: Þakka þér fyrir. Hverju svarar þú, Jón? Jón: Ég ber heildræna meðferð saman við það að hlusta á tónlist. I óperum eru glæsilegir einsöngvarar sem syngja aríur sínar og það má bera saman við hátæknimeðferð sem við veitum. Svo höfum við óbó og trumbur og allt hitt þar sem hvert hljóðfæri á sína sérstöku laglínu en séu þau felld Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.