Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 25
Fréttamolar... með fé, ef til vill verður verðmætamatið lélegt þegar fólk hefur lítið fyrir að afla fjárins. Mín reynsla er sú að það var reynt að hjálpa öllum en uppeldisáhrif heimilanna eru mjög sterk“. Ný bók um fötlunarfræði Höfundar:Johnson, K., og R. Traustadóttir (ritstj.) (2005). Deinstitutional- zation and People with Intelleetual Disabilities: In and Out of Institu- tions. London: Jessica Kingsley. Öldungar og minjar Pálína er formaður öldungadeildar F.í.h. og segir það hafa veitt sér mikla ánægju. „Þegar maður eldist fer maður að meta samverustundir með félögunum mildu betur en áður,“ segir hún og bætir við að mörg „hoIl“ noti fundina til að hittast og rifja upp gamlar minningar. Fundir eru haldnir þrisvar á ári og svo er farið í ferðalag á sumrin. „Félagið styrkir okkur, greiðir niður ferðirnar svo flestir geta farið. Hjúkrunarfræðingar, sem eru 60 ára og eldri, geta gengið í öldungadeildina. Deildin hét fyrst Hlíf, síðan deild lífeyrisþega og svo kom Ingibjörg R. Magnúsdóttir með hugmynd að heitinu öldungadeild og við höfum notað það síðan.“ Pálína hefur einnig átt frumkvæði að stofnun minjanefndar. „Já, ég var hjá danskri vinkonu minni, Lisu Weile, og hún sagði mér frá að það væri verið að opna minjasafn í Kolding. Eg fékk svo dagskrána og ætlaði að reyna að fara en komst ekki. Mig langaði í kjölfarið til að berjast fyrir því að við reyndum að halda í fróðleik fyrri tíma áður en við hefðum misst hann úr höndunum. Við fengum því tvær styrk til að fara út og skoða safnið í Kolding og svo byrjaði boltinn að rúlla. Við höfum ráðið starfsmann, Bergdísi H. Kristjánsdóttur, til að safna og skrá muni sem tengjast hjúkrun í samvinnu við Þjóðminjasafnið." Eitthvað sem hún vill segja við hjúkrunarfræðinga í lokin? „Já, mig langar að bæta við að það er eitthvað sem sameinar hjúkrunarfræðinga hvar í heimi sem þeir eru, sama frá hvaða landi þeir koma, þetta er sameiginlegt starf og það tala allir sama tungumálið. Og það skiptir líka miklu máli hvernig talað er við sjúklingana, það er ekki nóg að skera upp og setja á umbúðir, það þarf að ræða við sjúklinginn eins og hann þarf og þannig er hægt að koma mörgu góðu til leiðar því það er tekið mark á því sem hjúkrunarfræðingurinn segir.“ Bókin er aö stórum hluta byggö á lífssögum fólks með þroskahömlun og dregur fram reynslu þeirra af stofnanalífi, lokun stofnana og búsetu í samfélaginu. Fræðimenn og fatlaö fólk frá sjö löndum skrifa í bókina. Hún gefur því alþjóðlega sýn á stöðu mála. Ritstjórar eru Kelley Johnson dósent við School of Social Science and Planning, RMIT Univerisy, Melbourne í Ástralíu, og Rannveig Traustadóttir, prófessor við félagsvísindadeild Háskóla íslands. Nánari upplýsingar um bókina má finna á heimasíðu Vefseturs í fötlunarfræðum: http://www.fotlunarfraedi.hi.is/. D.inv-.ilutuHt.iii/.itKm *i.i 1‘impíi* v ' , v 11« i'ikt 11 i.tlT7i>4 Watt*> tli jn.1 ( H.T t < líniditt* Jfíh Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræöi færö peningagjöf Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði tók við höfðinglegri gjöf frá Ingibjörgu R. Magnúsdóttur 1. nóvember sl. þegar dagur hjúkrunarfræöideildar Háskóla íslands var haldinn hátíðlegur með málþingi í Norræna húsinu. Ingibjörg færði stofnuninni 500.000 kr. ávísun með orðunum: „Megi þessi stofnun vaxa og blómgast og vinna að mörgum góöum verkefnum landi og þjóö til blessunar." Á 80 ára hátíðarfundi Tíma- rits hjúkrunarfræöinga bætti Ingibjörg um betur og færði Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði aðrar 500.000 kr. Ingibjörgu eru færöar bestu þakkir fyrir. Kvennabrekka seld Gengið hefur verið frá sölu Kvennabrekku, bæði sumarhúss og lóöar. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga ákvað síöast liðið vor aö auglýsa lóðina og sumarhúsiö til sölu. Var sú ákvörðun tekin að vel athuguðu máli því allt eins kom til greina aö byggja nýtt hús á umræddri lóö. Samkvæmt deiliskipulagi Mosfellsbæjar eru hins vegar verulegar hömlur settar á stærð og gerð nýs húss á lóðinni. Hitt var einnig Ijóst að gott verö fengist fýrir þessa eftirsóttu lóö. Þaö er von stjórnar F.í.h. að söluandvirði Kvennabrekku muni nýtast hjúkrunarfræðingum vel. Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.