Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 39
FJOLSKYLDUHJUKRUN Erum við föst í viðjum vanans? Aö gera góöa hjúkrun fjölskyldumiðaðri A fyrrgreindu námskeiði var fjallað um nokkur meginatriði sem geta hjálpað til að gera góða hjúkrun fjölskyldumiðaðri. Þessi meginatriði eruí í reynd einföld en eru talin geta gert gæfumuninn um árangur hjúkrunarinnar. Aö fylgjast með og athuga Mikilvægi þess að athuga (observera) í hjúkrun hefur að okkar mati farið halloka undanfarin ár í greiningu og meðferð. Þetta þrennt ætti þó að fara saman. Með athugun notum við skilningarvit okkar til að safna upplýsingum, þannig tengjum við saman það sem við höfuð séð, heyrt, snert eða fundið lykt af. Greining og meðferð ætti alltaf að vera byggð á upplýsingasöfnun sem fæst meðal annars með athugunum, mælingum og spurningum. Mikil áhersla hefur verið lögð á mælanleg gildi og gögn og einnig höfum við bætt okkur í að spyrja, en það sem við höfum vanrækt er að æfa okkur í að horfa, hlusta og sýna líðan fólks raunverulegan áhuga. Oft höfum við þennan áhuga en sýnum hann ekki í raun. Ástæðan getur verið sú að það er sárt að horfa, hlusta á þjáningar og vanlíðan annarra. Það hefur áhrif á líðan okkar sjálfra. Einnig getum við verið hrædd við að hefja samræður um viðkvæm efni sem við höfum áhyggjur af að geta ekki leyst (Wright og Leahey, 2005). Líklega höfum við of miklar áhyggjur af því að skjólstæðingarnir ætlist til að við höfum lausn á vanlíðan þeirra þegar oftast er bara ætlast til að við veitum nærveru ogj hluttekningu. Við þurfum að sýna viðfangsefnum og vandamálum allra jafna virðingu þrátt fyrir að skjölstæðingar séu að okkar mati með misalvarleg vandamál. Þetta er þjálfunaratriði sem við þurfum að vita vel af. Að vanda fyrstu kynni Hér er átt við almenna kurteisi. Hvernig við kynnum okkur fyrir ættingjum og öðrum sem eru á staðnum. Llvaða kynningu notar þú? Segir þú til dæmis: „Eg er Sigga hjúkka - hæ,“ eða „Ég heiti Sigríður og er hjúkrunarfræðingur og ég ætla að hjúkra þér í kvöld." Mikilvægt er að mynda augnsamband í þessari kynningu og heilsaj með handabandi (Wright og Leahey, 2005). Að gefa færi á sér Hjúkrunarfræðingar vinna oftast í mikilli nálægð við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Nota þarf þær stundir til að gefa fólki tækifæri til að tjá sig. Tökum dæmi þegar skipt er á sári eða annast er um skjólstæðing viðj aðrar aðstæður, þá er hægt að spyrja spurninga sem bjóða upp á að hann tjái sig um líðan sína eða áhyggjur. Það gætu verið jáhyggjur af heimilinu, fjármálunum eða framtíðinni. Markmiðj þessarra samtala er ekki að leysa öll vandamál skjólstæðinga okkar heldur eru þau hugsuð til að bæta líðan og sýna skilning (Wright og Leahey, 2005). Stuðningur, sem fólginn er í að hiusta og sýna hluttekningu, er oft vanmetinn. Að hafa tilbúnar spurningar Gott er að hafa tilbúnar ákveðnar spurningar sem við getum notað til að koma af stað samræðum. Þannig getum við t.d. gefið foreldrum tækifæri til að greina frá líðan sinni (Wright og Leahey, 2005). Tilbúnar spurningar gætu t.d. verið: „Hvernigj hefur þú sofið síðan barnið þitt lagðist inn, nærðu að hvílast?" eða „Hvernig gengur að sinna systur hennar eða bróður heima?“ „Hvernig get ég helst hjálpað þér?“ „Hvað veldur þér mestum áhyggjum í dag?“ „Á hvern í fjölskyldunni heldur þú að þessi veikindi hafi mest áhif á núna?“ Einnig er hægt að spyrja á hverju skjólstæðingurinn eigi von út af spítaladvölinni, til dæmis varðandi heimsóknir eða samskipti við starfsfólk. Til að koma þessu inn í vinnuskipulag hjá okkur gæti verið gott að setja sér það markmið að spyrja a.m.k. einn sjúkling eða ættingja hans þessara spurninga á hverri vakt. Í samtölum við skjólstæðinga, hvort sem það eru sjúklingar eða aðstandendur þeirra, þurfum við hjúkrunarfræðingar að gæta okkar á að grípa ekki fram í þegar verið er að greina frá erfiðum tilfinningum. Einnig þurfum við að þola þagnir í samtölum. Það er flestum hjúkrunarfræðingum mjög tamt að reyna að gefa fólki ráð. Það hefur sýnt sig að ef ráð eru gefin of fljótt eða án þess að undirbúa jarðveginn nægilega fyrir breytingar þá koma þau ekki að gagni (Wright og Leahey, 2005). Aö gera sér grein fyrir mismunandi skynjun og skilningi fólks Það getur verið mjög misjafnt hvernig fólk skilur og skynjar það sem sagt er og gert er fyrir það. Hvernig hafa aðstandendur skilið þær upplýsingum sem þeir hafa fengið um orsök vandans eða væntanlega framvindu, er skilningur þeirra misjafn? Við þurfum að vera meðvituð um þennan mismun. Eingöngu með því að spyrja og hlusta á fólk komumst við að því hvernig það skynjar það sem fram fer (Wright og Leahey, 2005). Það getur verið misskilningur í gangi á milli skjólstæðinga og starfsfólks eða milli einhverra í fjölskyldunni og þann misskilning má hugsanlega leiðrétta með því að athuga hvað býr að baki. Einnig geta áherslur fólks verið mismunandi, t.d. þörf foreldra fyrir að komast aðeins frá þegar barnið þess liggur á spítala. Starfsfólk er oft upptekið af því, að foreldrar fari til skiptis frá svo barnið sé aldrei einsamalt, en foreldrar geta haft ríka þörf fyrir að skreppa frá saman, sérstaklega ef sjúkrahúsdvölin er Iöng. Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.