Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 33
80 ARA AFMÆLI
Frá fyrrum ritstjórum tímarita
hjúkrunarfræöinga
Sameinað tímarit hjúkrunarfræðinga
Þorgerður Ragnarsdóttir, ritstjóri 1993-1998
Á borðinu fyrir framan mig liggur eintak af
Tímariti hjúkrunarfræðinga, 1. tbl. 1. árg.
1993. Þetta blað vekur hjá mér Ijúfsárar
minningar um liðna tíð.
pælt í útliti og umbroti og sótt um skráningu ritrýndra greina
á Medline. Það eina sem lét á sér standa voru fræðigreinar til
birtingar í blaðinu.
Árið 1993 var mér falið að ritstýra nýju sameinuðu
tímariti tveggja félaga hjúkrunarfræðinga sem
þá voru í landinu. Þá höfðu viðræður milli
Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
(F.h.h.) og Hjúkrunarfélags íslands um
stofnun nýs sameinaðs félags staðið um skeið.
Forystumönnum félaganna fannst vænlegt að
byrja á útgáfu sameiginlegs tímarits.
F}'rir gáfu félögin út tímarit með ólíku sniði.
Tímarit Fhh var fyrst og fremst fræðiblað sem
kom út einu sinni á ári í 9 ár. Hjúkrunarfélag
Islands gaf út Hjúkrun sem kom út sex sinnum á
ári og var bæði fag- og fréttarit. Það taldi árganga
sína aftur um 68 ár til ársins 1925 þegar Fjelag
íslenskra hjúkrunarkvenna gaf út sitt fyrsta
tímarit.
Það leið því nokkur tími þar til fyrir lá nægilegt efni í fyrsta
blaðið. Þegar Tímarit hjúkrunarfræðinga, 1. tbl. 1. árg. 1993,
kom loks út sýndist sitt hverjum um innihald þess og útlit.
Blaðið er mér þó kært fyrir margra hiuta sakir. Það er einstakt
í sinni röð því næsta blað taldi árgangana aftur til 1925 og
varð 1. tbl. 70. árg. 1994. Það var fyrsta afurðin á löngum
þróunarferli, næstum eins og fuglsungi nýskriðinn úr eggi sem
gefur þó fyrirheit um vöxt og viðgang í framtíðinni. Loks sýnist
mér nú að í upphafi hafi efniviðurinn verið góður, og með
árunum hefur ritið tekið út þroska og eflst bæði að innihaldi
og útliti. Eg er þakklát fyrir og stolt af að hafa fengið tækifæri
tii að eiga þar hlut að máli.
Þorgerður Ragnarsdóttir
Með aðstoð ritstjórnar, sem skipuð var fulltrúum
frá báðum félögunum, var hafist handa við það
vandasama en skemmtilega verk að móta nýtt
blað, Tímarit hjúkrunarfræðinga. Það skyldi verða
metnaðarfullt fræðiblað og marka nýja tíma. Til
að undirstrika það skyldu árgangarnir taldir
frá einum til að marka nýtt upphaf. Stefna var
mörkuð, komist að niðurstöðu um heimildakerfi,