Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 56
Þetta snýst ekki eingöngu um tæknilega umönnun. Umönnun er að mörgu leyti einföld tækniatriði og þannig vilja sumir sjúklingar hafa það. „Kipptu þessu í lag og þá er ég farinn. Það þýðir ekkert að reyna að umbreyta almennum fastmótuðum samskiptum í eitthvað mikilvægt. Þau eru reyndar mikilvæg að því leyti að þau eru samskipti þess sem annast meðferðina og sjúklingsins. Mér finnst þau samskipti verða að vera í báðar áttir. I öllum samskiptum þarf fólk að sýna athygli. Það var góð spurning hjá Söruh hvernig hægt sé að sýna athygli í samskiptum ef maður nær ekki að tæma sjálfan sig. Við búum við skipulag sem veitir fólki heilsugæslu og gerum ráð fyrir að starfsfólk heilsugæslunnar þurfi stöðugt að taka við öllu því eitri, vonbrigðum og reiði sem sjúklingarnir finna til vegna alls þess hræðilega sem gerist hjá þeim án þess að geta losað sig við það. Mér virðist því að innan fullvaxta heilbrigðiskerfis verði menn að spyrja sjálfa sig þeirrar spurningar hvernig tryggja megi að starfsfólkið, þeir sem við treystum á að veiti heilsugæsluna, nái að þrauka sem einstaklingar. Við búum í mjög tæknivæddum heimi og ef við lítum á lækna og hjúkrunarfræðinga sem verkfæri sem hægt er að beita sí og æ og dæla í allri reynslu sjúklinganna án þess að starfsfólkið nái að tæma sig þá held ég að það byggist á grundvallarmisskilningi á mannlegu eðli. Það er að mínu mati ómannlegt að gera ráð fyrir því að það sé hægt. Jón: Ég geri mér æ betur grein fyrir í þessum umræðum að heilbrigðiskerfið verður stöðugt flóknara og að við erum í raun að bregðast við því. Ég held þó að við verðum að hafa frumkvæði. Við sjáum stórt sjúkrahús og hugsum: „Hvernig get ég tekið upp heildræna meðferð við sjúkrahúsið okkar, “ en auðvitað verðum við að vinna hvert á sínu áhrifasvæði: „Hvað er til ráða? Ég fer aftur á vaktina þar sem allt er að verða vitlaust og reyni að finna rými til samskipta. “ Það getur kviknað á perunni og ég held að við berum alla ábyrgð, sama hvert er litið. Hvert okkar verður að axla ábyrgð, við getum ekki lagt alla ábyrgð á þá sem stjórna. Desmond: Það krefst ígrundunar að fjalla um hið heildræna í menningarlegu samhengi. Ég g held að andlega hliðin sé mjög menningarlegt lyrirbæri. Sigurður: Eitt af vandamálunum er að félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið ræðast ekki við. Ef við getum aukið samvinnuhugsun okkar, þann andlega þátt, þá miðar okkur áleiðis. Guðrún: Ég held að eftir allar þessar umræður ættum við að fara að hugsa um að færa heildræna meðferð inn í samfélagið allt, ekki bara heilsugæslukerfið. Það þyrfti kannski að einbeita sér betur að því að fella heildræna meðferð að samfélaginu áður en farið er að tala um að fella hana að heilbrigðiskerfinu. Chris: Þessi ráðstefna er tileinkuð þyí að koma á heildrænni meðferð með íhugulli starfsemi. Það er bersýnilega grundvallaratriði að við skiljum verkhætti okkar og kerfi svo hægt sé að koma því um kring. NUDDNAMSKFIf) Eftir áramót veröur áframhald á nuddnámskeiöum meö svipuöu sniöi og veriö hefur. Svæöanudd og vöðvanudd í svæðanuddi er farið inná öll kerfi líkamans gegnum iljar, rist og ökkla. Kennsla er 18 kennslustundir. Haldið verður eitt námskeiö þar sem kynnt verður hugmyndafræði og saga svæðanudds. Eftir námskeiðið á fólk að geta nuddað heilnudd sjálfstætt. Kennt verður á fjórum kvöldum frá kl. 17.30-20.30 17. - 18. og 24. - 25. janúar Verö 17.000 í líkamsnuddi er kennt aö nudda bak, háls og höfuð. Kennsla er 18 kennslustundir. Haldin verða þrjú námskeið, sem hvert verður kennt á fjórum kvöldum frá kl. 17.30-20.30. 31.janúar - l.febrúar og 7. - 8. febrúar 21. -22. og 28.febrúar. - 1. mars 7. - 8. og 14. - 15. mars Verð 17.000 Hámarksfjöldi nemenda á hvert námskeið er takmarkaður við 8 manns til að hægt sé að leiðbeina hverjum og einum sem best. Hafið samband og fáið nánari upplýsingar í síma 8220727. Gunnar L. Friðriksson, nuddari F.LH.N. Ath. Víða taka verkalýðsfélög þátt í kostnaði við námskeið. www.gufubad.netl Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.