Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 21
FRÁ FÉLAGINU Heiöursfélagar 2005 Elsa B. Friöfinnsdóttir, formaður F.i.h. og heiöursfélagar 2005, Pálina, Bergljót Líndal og Sigþrúður Ingimundardóttir. enga hvatningu frá öðrum, ég hafði meira að segja aldrei komið inn á sjúkrahús! Mig langaði hins vegar að læra meira, það var einhver metnaður í mér og það voru ekki svo margir möguleikar til náms á þessum tíma.“ Hún bætir við að það kunni að vera að föðuramma hennar, Þuríður Nikulásardóttir, hafi haft einhver áhrif. „Hún var oft með sjúklinga á heimili sínu í Keflavík. Hreinlæti var í hávegum haft hjá henni og Þorgrímur Einarsson læknir treysti henni til að sjá um sjúklinga og sendi gjarnan til hennar nokkra sem voru svo á heimilinu um tíma.“ Pálínu var tekið fagnandi í HSI. Hún segir námið hafa verið erfitt „bæði líkamlega og andlega eins og margir hafa lýst áður. Við nemarnir vorum svo að segja saman allan sólarhringinn, bjuggum þétt á 3. og 4. hæðinni á heimavistinni á Landspítalanum. Ég var 19 ára og man hvað mér fannst skólasystur mínar, sem komu utan af landi, framandi og hugsaði með mér að ég myndi aldrei geta kynnst þeim. Þær voru aldar upp við allt önnur kjör en ég, Reykjavíkurstúlkan. Það tókst þó og þegar fram liðu stundir naut ég þess virkilega að nema það sem þær höfðu fram að færa. Það var ekki síður mikill skóli að kynnast þeim. Við vorum svolítið innilokaðar, ég missti samband við marga af mínum gömlu vinum, þetta var einn heimur, við unnum saman á sjúkrahúsinu, með sama fólkinu og sjúklingunum og andrúmsloftið á sjúkrahúsinu var einstakt, allir þéraðir og borin mikil virðing fyrir yfirmönnum, hjúkrunarkennara, forstöðukonu og skólastjóra. Þær fylgdust vel með okkur, bjuggu með okkur á vistinni og komu oft fyrirvaralaust inn á herbergin.“ Hún segir námið og heimavistina hafa haft mikið uppeldisgildi, þær hafi lært að meta sér eldra og reyndara fólk. I þá daga var varla nokkur hjúkrunarkona gift, þær voru allar einhleypar. I hennar „hoIli“ voru níu sem útskrifuðust, tvær hættu námi og ein bættist við, hún hafði lært barnahjúkrun Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.