Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 41
FJÖLSKYLDUHJÚKRUN Erum viö föst í viðjum vanans? Aö vinna meö eöa takast á viö hindranir Miklar áhyggjur og samviskubit geta aukið vanlíðan og haft áhrif á bata (Wright og Leahey, 2005). Algengt er að foreldrar veikra barna velti fyrir sér hvort eitthvað sem þeir gerðu eða gerðu ekki hafi valdið veikindum eða vanlíðan barnsins. Fólk spyr sig: „Hefði ég geta komið í veg fyrir þetta?“ „Er þetta mér að kenna?“ Margir foreldrar svo og aðrir umönnunaraðilar hafa áhyggjur af því að hafa ekki staðið sig í umönnunarhlutverkinu. Þrátt fyrir þessa líðan hafa flestir reynt að gera sitt besta miðað við aðstæður hverju sinni. Það skiptir máli að foreldra fái staðfestingu á að þeir séu ekki einir um að líða svona. Aðrir í svipaðri stöðu velta þessu líka fyrir sér. Að hjálpa fólki að sjá jákvæðar breytingar og njóta þeirra Eins og áður hefur komið fram hefur mest áhersla í hjúkrun verið á þjónustu við einstaklinginn eða þann sem er veikur. Þróunin í heilbrigðisþjónustunni hefur verið sú að fjölskyldan kemur meira að málum hins veika bæði innan og utan sjúkrahúsa. Breyttar áherslur kalla á endurskoðun viðhorfa og verklags af okkar hálfu. Það kallar á meira samstarf og samráð við aðstandendur að sköpuð verði hefð fyrir fjölskylduhjúkrun. Arna Skúladóttir er sérfræöingur i barnahjúkrun á LSH. Hún tók hjúkrunarpróf frá Hjúkrunarskóla Islands árið 1978, lauk sérnámi i barnahjúkrun frá Hl 1995, B.S. prófi frá HÍ 1997 og M.S. prófi frá Hl árið 2001. Auður Ragnarsdóttir er hjúkrunardeildarstjóri á barnasviði LSH. Hún tók hjúkrunarpróf frá Hjúkrunarskóla islands árið 1975, lauk sérnámi i gjörgæsluhjúkrun frá The London Hospital árið 1980, sérnámi i hjúkrunarstjórnun frá Nýja hjúkrunarskólanum 1987 og B.S. prófi frá HÍ árið 2000. Elísabet Konráðsdóttir er hjúkrunarfræðingur á göngudeild barna með sykursýki á LSH. Hún tók hjúkrunarpróf frá Hjúkrunarskóla íslands árið 1982, lauk B.S. prófi frá Hl 1999 og stundar nú M.S. nám við hjúkrunarfræðideild HÍ. Oft er það neikvæða sýnilegra en það jákvæða í veikindum. Þjálfa þarf hæfileikann til að draga fram það jákvæða í lífi skjólstæðinganna þrátt fyrir eða vegna veikindanna. Mikilvægt er að hjálpa fólki að sjá það sem gengur vel. Benda þarf ákveðið á það jákvæða og orða þarf þær breytingar sem orðið hafa. Ef breytingar eru ekki settar í orð þá er ekki víst að þær verði túlkaðar sem breytingar (Wright og Leahey, 2005). Þá getur það haft þý'ðingu fyrir fjölskylduna að fá vitneskju um að allar fjölskyldur hafa sínu sterku hliðar sem þær hafa jafnvel ekki gert sér grein fyrir. Heimildaskrá Auður Ragnarsdóttir, Ellsabet Konráðsdóttir og Hildur Sveinbjörnsdóttir (2000). „Skin og skúrir" - Að vera móðir barns með sykursýki. Óbirt lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkr- unarfræði. Guðrún Kristjánsdóttir og Helga Bragadóttir (2001). Þarfir foreldra barna á sjúkrahúsum. Timarit hjúkrunarfrœðinga, 2 (77), 89-95. Marga Thome og Arna Skúladóttir (2005). Evaluating a family-centered intervention for infant sleep problem. Journal ofAdvanced Nursing, 50 (1), 5-11. Rakel Jónsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir (2003). Sykurlausn i munn við verkjum hjá fyrirburum og fullburða nýburum. Timarit hjúkrunarfrœðinga, 5 (79), 20-27. Ray, L. (2002). Parent and Childhood Chronicity: Making Visible the Invisible Work. Journal of pediatric nursing, 17(6), 424-436. Söderström, l.-M., Benzein, E., og Saveman, B.-l. (2003). Nurses experiences of interac- tions with family members in intensive care units. Scandinavian Journal of Caring Sciences, 17(2), 185-192. Wright, L.M., og Leahey, M. (2005). Nurses and Familes:A Guide to Family Assessment and intervention (4. útgáfa). Philadelphia, Pennsylvaniu: F.A. Davis Company. Lokaorð Við hjúkrunarfræðingar ráðum heilmiklu um það hvernig við nálgumst viðfangsefni okkar. Ef við ákveðum að nálgast þau meira út frá fjölskyldu- hjúkrun þá er það töluverð breyting fyrir flesta. Mörgum finnst erfitt að breyta venjubundnum vinnubrögðum. Venjur gefa okkur öryggi og tiy'ggja að ákveðin vinna sé unnin eftir ákveðnu ferli. Oiy'ggi er notalegt og við erum oft mjög ófús að ógna því öryggi sem felst í vananum. Til er orðatiltæki sem sum okkar halda mikið upp á sem hljóðar þannig í lauslegri þýðingu: „Ef eitthvað virkar skaltu ekki breyta því.“ Þegar sagt er aðj eitthvað virki er ekki þar með sagt að það virki vel. Fagleg vinnubrögð felast í því að spyrja gagnrýnið og leita leiða til að bæta sig í starfi. Okkur ber skylda til að fylgjast með nýjungum, skoða þærj gagnrýnið og taka upp þær sem við teljum að séu til bóta fyrir skjólstæðinga okkar. Til þess að þetta sé hægt þurfum við vera tilbúin í breytingar og þora að ögra viðhorfum okkar. Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja \ J ÚTFARARSTOFA ^Þgakirkjugarðanna ehf. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Timarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.