Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 54
hún verði tæknilegt ferli ef það er jákvætt ferli fyrir sjúklinginn og þá sem vinna innan vébanda heilbrigðiskerfisins. En það verður að vera bæði sveigjanleiki fyrir hendi innan þessa kerfis, fjármagn og tími svo ekki sé hægt að ásaka þetta afbragðsgóða fagfólk um að sóa tíma sínum í það sem sagt er að ekki eigi að felast í þjónustunni sem kerfið veitir. Þetta finnst mér vera grundvallaratriði. Chris: Hafa pallborðsmenn eitthvað frekar um þetta að segja? Haukur: Mig langar til að bæta nokkru við. Stundum fæ ég það á tilfinninguna að hugmyndin um heilbrigði og lækningu sé orðin að einkaviðfangsefni heilsugæslunnar. Frá sjónarhóli prests snýst heilbrigði, lækning og samúð þó fremur um heilbrigt samfélag ekki aðeins um það heilbrigði sem fengist er við á sjúkrahúsum heldur í samfélaginu í heild. Ef hægt er að stuðla að heilbrigði og lækningu í samfélaginu gæti það haft nokkur áhrif á líkamlegt heilbrigði og það tel ég vera mjög mikilvægt. Mig langar til að segja ykkur sögu. Gömul kona var að deyja á sjúkrahúsi í Reykjavík og ég sat hjá henni síðustu stundirnar og bað hana um að segja mér sögu sína. Hún tók því vel og sagði mér ævisögu sína. Eg sat þögull um hríð og sagði svo: „Myndirðu vilja bæta einhverju við? “ Hún hugsaði sig um smástund og bætti svo við „einni eða tveimur syndum sem reyndar voru býsna smávægilegar, hún hafði eitt sinn dansað við annan mann en eiginmanninn sinn. Við þögðum um stund og svo sagði hún: „Veistu hvað? Enginn hefur talað svona við mig áður? “ Ég varð hryggur hvers vegna hafði enginn talað svona við þessa konu fyrr? Við þögðum áfram og ég velti því fyrir mér hvernig ég ætti að svara þessu. En þá sagði hún: „Veistu að eitt samtal getur verið jafngildi marga æviára eða jafnvel betra en þau. “ Þetta var öflug yfirlýsing. Ég fór að hugsa um hvað þetta segði okkur um heilbrigði og lækningu og mér finnst þessi frásögn gefa alveg nýja sýn á allt það sem hefur með heilbrigði og lækningu að gera. Chris: Gaman væri að heyra áheyrendur leggja eitthvað til málanna í þessum umræðum. Hefur einhver eitthvað að segja um það sem hér hefur verið rætt? Sarah: I framhaldi af því sem sagt var þá erum við sem fagfólk alltaf svo upptekin af því að hlusta á ævisögur fólks að okkur gefst ekki tækifæri til þess að vinna úr því sjálf, að tæma okkur sjálf og endurnýja. Það er erfitt að halda áfram að hlusta á sögur ef maður finnur hvergi rými fyrir sjálfa sig en heldur áfram að skynja sársauka fólksins. A þessari ráðstefnu hefur komið fram að það verður að vera til leið fyrir fóllc að þjálfa færni sína og getu til takast á við svona samræður. Það snýst ekki bara um að endurspegla það sem við gerum heldur að geta verið í hugarró og gert sér í raun grein fyrir hvað það er að hlusta. Ég held að þannig nái maður að tæma sig. Ég veit ekki hvernig fólki er kennt að tæma sig. Hvernig kennir maður fólki að vera í hugarró? Haukur: Það er hægt en sú reynsla getur verið ógnvekjandi og heilbrigðisstarfsfólk grípur oft til aðgerða, t.a.m. að slá um sig með tæknilegri þekkingu sinni, til þess að forðast þennan tæmda huga og missir þannig af því sem sjúklingurinn reynir að tjá. Chris: Jón, getur þú svarað þessu á grundvelli þess sem þú sagðir áðan um menningu ykkar, sögu og hvað gert er fyrir íslenska lækna? Jón: Ég veit ekki hvort ég var að velta vöngum yfir því sem Sigurður sagði. Islendingum er tamt að segja sögur og útlendingar taka kannski eftir því að þegar við svörum spurningu byrjum við oft á því að segja sögu. Ég fór að hugsa um að maður þarf að vita hvert förinni er heitið. Ef maður er eins og Lísa í Undralandi og veit ekki hvert maður stefnir þá skiptir ekki máli hvaða leið er valin. Þess vegna þarf maður að vita hvert förinni er heitið. Maður verður að vita að maður sé að bæta líf fólks með því að braga úr byrðum þess sem verið er að hjálpa hverju sinni. Þegar ég lauk læknisnámi áttaði ég mig á því að manni er beint í eina átt og maður æðir í hana líkt og hraðbátur. Mér fannst ljóðlistin hafa gleymst svo ég lagði til í því teymi sem ég starfa í að við byrjum hópfundi okkar á Ijóði. Hjá okkur gildir sú regla að sá sem kemur með köku eða brauð fær að lesa uppáhaldsljóðið sitt. Maður reynir að vera eins heildrænn í hugsun og mögulegt er en það er ekki gaman að ræða sjúkdóma, félagslegt umhverfi o.s.frv. Þess vegna er gott að byrja með ljóði. Við erum svona átta manns á hverjum fundi og allir leggja sitt til málanna, presturinn líka. Það er nútímasinfónía og ákveðinn mishljómur í gangi. Þetta hugleiddum við og ákváðum að gera. I Cornell starfar kona sem heitir Rita en ég man því miður ekki hvað hún heitir að eftirnafni. Hún segir læknisfræðilegar sögur. Hún veltir vöngum yfir sögum sem sjúldingar segja henni. Hún kynnti bókmenntir til sögunnar í læknisfræði og það ótrúlega er að þetta er góð aðferð til þess að taka á flóknum málefnum sjúklinga. Oft vantar orð til þess að lýsa því sem maður á við og þá er gott að geta sagt sögur og túlkað þær. Ég hef til Tímarit hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.