Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Síða 12
10
Eins og sést í töflu 1 hafa hlutfallslega fleiri konur einhvern
tíma notað tíðahvarfahormón en hinar sem eru ekki komnar á
tíðahvörf eða vita ekki hvort svo er. Konur, sem aldrei hafa notað
Jákvætt samband var á milli hærri aldurs og
jákvæðra viðhorfa til notkunar hormóna (r=0,118;
p<0,006; N=541).
hormón, voru yngri (M=4,56 +1,9) en þær sem notuðu hormón
(M=3,12 +2,0) eða voru hættar notkun þeirra (M=3,53 +2,0)
(F(2,546)=29,153; p<0,001). í töflu 2 sést að konur greina
oftast frá því að hitakóf, svitakóf og svefntruflanir séu orsök
þess að þær nota hormón. 19 konur af 49, sem merktu við
annað, sögðu ástæðuna vera miklar eða óreglulegar blæðingar,
en ekki var boðið upp á þann svarkost í spurningunni.
Tafla 2.
Ástæöur þess að konur segjast nota eöa hafa notað
tíöahvarfahormón (N=252)
Hlutfall kvenna sem
Ástæöa notkunar greina frá ástæöu
Hitakóf 51%
Svitakóf 50%
Svefntruflanir 40%
Til aö sporna gegn beinþynningu 31%
Skapsveiflur 31%
Þunglyndi 11%
Brottnám annars eða beggja eggjastokka 10%
Kláöi og óþægindi í slímhúö þvag- og kynfæra 10%
Til aö fyrirbyggja hjartasjúkdóma 6%
Annaö
Hjá 23 konum höfðu báðir eggjastokkar verið fjarlægðir og
21 þeirra hafði einhvern tíma notað hormón. Var þar um
marktækan mun að ræða miðað við konur sem höfðu ekki látið
fjarlægja eggjastokka (Fisher-exact-próf; p<0,001). 18 þessara
kvenna notuðu hormón þegar rannsóknin var gerð. 80 konur
höfðu farið í legnámsaðgerð og höfðu 63% þeirra einhvern
tíma notað hormón og skáru þær sig úr þeim sem ekki höfðu
farið í slíka aðgerð hvað notkunina varðaði (Fisher-exact-próf;
p<0,001). Af þessum 80 konum notuðu 44% hormón þegar
rannsóknin var gerð.
Viðhorf til tíöahvarfa og notkunar tíöahvarfahormóna
Þátttakendur voru að jafnaði frekar hlutlausir í viðhorfi sínu
til tíðahvarfa og notkunar tíðahvarfahormóna. Viðhorf þeirra
til notkunar hormónanna virtist þó aðeins jákvæðara (M=2,2)
en viðhorfið til tíðahvarfanna sjálfra (M= 1,9). I töflu 3 sést að
konur, sem notuðu hormón, höfðu marktækt jákvæðara viðhorf
til notkunar tíðahvarfahormóna en þær sem voru hættar eða
hafa aldrei notað hormón. Hins vegar höfðu þær sem aldrei
hafa notað hormón jákvæðari viðhorf til tíðahvarfa en hinar
sem notuðu eða hafa notað hormón. Ekki reyndist munur á
viðhorfunum eftir því hvort konurnar voru komnar á tíðahvörf
(sjá töflu 3).
Einkenni tíöahvarfa
Tafla 4 sýnir hlutfall þeirra sem sögðust hafa
fundið fyrir einkennum tengdum tíðahvörfum út
frá notkun tíðahvarfahormóna og því hvort þær
voru komnar á tíðahvörf.
Það á við um flest einkenni sem spurt var um að
konur, sem voru komnar á tíðahvörf, höfðu frekar
fundið fyrir þessum einkennum en hinar. Konur,
sem notuðu eða voru hættar notkun hormóna,
höfðu einnig frekar fundið til þeirra en þær sem
aldrei hafa notað hormón (sjá töflu 4). Þegar
einkenni voru skoðuð út frá aldri kom í ljós að
yngri konur höfðu síður fundið til einkenna
en þær eldri sem fundu frekar fyrir hita- og
svitakófum, svefntruflunum og óþægindum í
slímhúð þvagrásar og legganga (sjá töflu 5).
Tafla 5.
Einkenni miðað við fæðingarár
Greinir frá einkenni
Einkenni Já M+sf Nei M+Sf t.++
Hita- og svitakóf 3,6+2,0 4,6+2,0 6,066*
Svefntruflanir 3,7+2,0 4,3+2,1 3,513*
Skapsveiflur 4,0+2,1 3,9+2,1 0,586
Vööva- og liöverkir 3,8+2,0 4,1+2,1 1,803
Mikil þreyta 4,1+2,0 3,9+2,1 -0,996
Vakna óúthvíld 4,1+2,0 4,0+2,1 -0,517
Viökvæmni 3,9+2,0 4,0+2,1 0,739
Minnkuö kynhvöt 3,8+2,0 4,1+2,1 1,204
Ónóg sjálfri sér 3,8+1,9 4,1+2,1 1,578
Kvíðaköst 3,7+1,9 4,1+2,1 1,864
Breytingar á hjartslætti 4,1+2,0 4,0+2,1 -0,747
Á erfitt meö einbeitingu 3,8+1,9 4,0+2,1 0,739
Óþægindi í slímhúö þvag- 3,6+2,0 4,1+2,1 2,007**
rásar og legganga
Grátköst af og til 3,9+2,0 4,0+2,1 0,458
Meiri kynhvöt 4,3+2,0 4,0+2,1 -0,802
Einkennalaus 4,9+1,9 3,8+2,0 -5,078*
+fæðingarár 195t=1...1957=7, þvi bendir lægra meðaltal
til hærri aldurs++ DF=543
*<0,01
" p<0,05
Fræösla um tíðahvörf
Rúmlega helniingur þátttakenda (51%) taldi
sig hafa fengið næga fræðslu um tíðahvörf, þó
töldu 84% þátttakenda að fræðsla urn tíðahvörf
ætti að vera meiri á vegum heilbrigðisyfirvalda.
Hlutfallslega færri konur, sem vissu ekki hvort
Tímarit hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005