Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 15
RITRÝND GREIN
Tekist á viö tíðahvörf
Tafla 7 sýnir jafnframt ástæður sem konur, sem
hættar voru notkun hormóna á þeim tíma sem
rannsóknin var gerð, gáfu fyrir þvf að þær hættu
notkuninni. Spurningunni um áhrif niðurstaðna
WHI-rannsóknarinnar á ákvörðun þeirra um að
hætta notkun hormóna svöruðu 42% þannig að
niðurstöðurnar hefðu auðveldað ákvörðun þeirra,
21% að þær hefðu ekki skipt máli því ákvörðunin
hefði þegar verið tekin og 16% að niðurstöðurnar
hefðu engu máli skipt.
74 konur höfðu hætt notkun hormóna eftir
að niðurstöður WHI-rannsóknarinnar lágu fyrir
og sögðu 60% þeirra að þær hefðu hætt vegna
niðurstaðnanna.
60 konur höfðu hugleitt að hefja notkun
hormóna, rúmur helmingur vegna svefntruflana,
um þriðjungur vegna hita- eða svitakófa, tæpur
fjórðungur vegna þunglyndis eða skapsveiflna.
Þriðjungur kvennanna sagði að niðurstöður
WHI-rannsóknarinnar gerði ákvörðun um að
hefja notkun hormóna erfiðari, 18% sagði að
niðurstöðurnar hefðu engin áhrif og fimmtungur
gerði sér ekki grein fyrir hvort rannsóknin hefði
áhrif á ákvörðun þeirra um að hefja notkun
tíðahvarfahormóna.
Þær konur, sem höfðu hætt notkun tíðahvarfa-
hormóna, hugleitt að hætta notkun eða hefja
notkun hormóna, voru spurðar að því við hverja
þær hafi rætt ákvörðun sína um að hætta eða
hugleiðingar sínar. Eins og sést í töflu 8 var
langalgengast að konur ráðfærðu sig við lækni.
Konur, sem hugleiddu að hætta notkun hormóna,
ráðfærðu sig jafnframt margar við maka sinn.
Enn fremur kemur fram að konur ræddu þessar
hugleiðingar lítið sem ekkert við mæður sínar.
Notkun annarrar meðferöar en hormónameðferöar
vegna einkenna sem tengjast tíðahvörfum
Algengast var að þátttakendur notuðu vítamín eða
steinefni vegna einkenna sem tengjast hormónum
eins og sjá má í töflu 9. Innan við 16% kvenna
beittu einhverri annarri meðferð sem gefinn var
kostur á að merkja við.
Tafla 8.
Aðilar sem þátttakendur ræöa við um hugleiðingar sínar og
ákvörðun um að hætta eöa hefja notkun tíðahvarfahormóna
Aðilar sem rætt var viö Hlutfall kvenna sem hafa hugleitt aö hætta notkun hormóna (n=72) Hlutfall kvenna sem eru hættar notkun hormóna (n=119) Hlutfall kvenna sem hugleiða aö hefja notkun hormóna (n=60)
Læknir 64 48 43
Maki 44 22 13
Vinkona(ur) 42 13 33
Enginn 14 40 37
Vinnufélagi 8 1 10
Börn 4 3 -
Móöir 4 3 2
Hjúkrunarfræðingur 4 3 3
Aörir 4 1 -
Aörir vinir 1 3 2
JÖnnur meðferð en tíðahvarfahormón vegna einkenna sem tengjast tíðahvörfum
Meöferö Hlutfall kvenna sem haföi beitt meðferö (N=561)
Ekkert af því sem talið er 42
Vitamín / steinefni 36
Slökun 16
Náttúruleg hormón 14
Jurtate 11
Náttúrulyf 11
Hugleiðsla 5
Smáskammtalækningar 2
Nálastungur 2
Hnykkingar 1
12,1; p<0,05). Sama átti við um hugleiðslu (76% á móti 14%[
á móti 10%; (2 (2)= 7,1; p<0,03). Marktækt færri konur, sem
voru ekki komnar á tíðahvörf (32%) eða vissu ekki hvort svo
var (32%), höfðu beitt einhverri þeirri meðferð sem nefnd var
heldur en hinar konurnar sem voru komnar á tíðahvörf (45%)
(X2 (2)= 10,783; p=0,005). Jafnframt höfðu hlutfallslega fleiri
konur, sem notuðu eða voru hættar notkun hormóna, notað
náttúruleg hormón heldur en konur sem aldrei höfðu notað
hormón (X2 (2)= 17,5; p<0,001).
Hlutfallslega fleiri konur komnar á tfðahvörf
(21%) notuðu náttúruleg hormón heldur en þær
sem voru ekki komnar á tíðahvörf (11%) eða
þær sem vissu ekki hvort svo væri (9%) (X2 (2)=
Heilsa og lífsstíll
Allur þorri þátttakenda (80% ) sagði almenna heilsu sína vera
góða eða mjög góða. Aðeins minna hlutfall sagði líkamlega
(75%) og andlega líðan (78%) góða eða mjög góða en 89%
Tímarit hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005